
Maður sem gengur undir viðurnefninu „Scar“, hefur verið handtekinn en sænsk yfirvöld hafa lengi unnið að því að fá hann framseldan til Svíþjóðar frá Grikklandi.
Gæsluvarðhaldsþinghald yfir honum, sem er grunaður um um tíu alvarlega ofbeldisglæpi á árunum 2023 til 2024, fer fram á miðvikudag.
„Það er ánægjulegt að einstaklingur sem við grunum um svo mörg alvarleg brot sé kominn hingað, þannig að við getum dregið hann til ábyrgðar,“ segir saksóknarinn Mats Ihlbom.
18 ára ungmenni skotið til bana
Meðal þeirra fjölmörgu alvarlegu brota sem maðurinn er grunaður um eru tvö morð, morðtilraun, mannrán og stórfelld vopnalagabrot.
Hann er meðal annars grunaður um að hafa verið hvatamaður í umtöluðu morði við Mälarhöjdens IP í suðurhluta Stokkhólms 27. september 2023, þar sem 18 ára drengur var skotinn til bana.
Samkvæmt heimildum Aftonbladet grunar lögreglu að hinn 26 ára gamli hafi bæði skipulagt og framið nokkur af þekktustu morðum síðustu ára.
Þá er hann einnig sagður tengjast morðinu á rapparanum Nils „Einár“ Grönberg, samkvæmt mörgum heimildum Aftonbladet. Hann hefur þó aldrei verið ákærður í því máli vegna skorts á sönnunargögnum.
Samkvæmt upplýsingum SVT verður hann engu að síður yfirheyrður vegna morðsins á Einár.
„Hann er ofar í stigveldinu en þeir sem hlaupa um á götum borgarinnar. Það eru margar mismunandi grunsemdir og við teljum að hann hafi bæði verið gerandi og hvatamaður við ólíkar aðstæður,“ segir Mats Ihlbom.
Lykilmaður í glæpaneti
Ildar „Scar“ Galiyev, 26 ára, hefur verið lýst sem lykilpersónu í svokölluðu Dalen-glæpanetinu í suðurhluta Stokkhólms.
„Í nokkrum tilvikum hafa ungmenni verið notuð til að framkvæma glæpina og grunur leikur á að brotin tengist átökum milli glæpaneta,“ segir í tilkynningu sænsku ákæruvaldsins.
Mats Ihlbom vill þó ekki tjá sig nánar um hvaða glæpasamtök Galiyev tengist.
„Það er líklega almenn vitneskja hvaða hópi hann tengist,“ segir hann.
Óljóst er hvernig maðurinn mun bregðast við ásökununum. Gæsluvarðhaldsúrskurður verður kveðinn upp á morgun í héraðsdómi Södertörn.

Komment