1
Fólk

Sjaldgæft raðhús til sölu í einni fjölmennustu götu landsins

2
Innlent

Ók eins og brjálæðingur í Hvalfjarðarsveit

3
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

4
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

5
Heimur

Flugáhöfn þurfti að stöðva kynferðislega iðju í háloftunum

6
Fólk

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni

7
Pólitík

Tómas Þór sakar ríkisstjórnina um „skítkast“ og svikin loforð

8
Innlent

Almenningur fékk ekki að vita hvernig alvarleg sakamál enduðu

9
Peningar

Bændur kveðja sinn eigin lífeyrissjóð

10
Fólk

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli

Til baka

Ráðist á Óskarsverðlaunaleikstjóra á heimili hans

„Annar bróðir minn slasaðist alvarlega og er nú á sjúkrahúsi.“

Hamdan Ballal
Hamdan Hallal og samstarfsfélagarHamdan Ballal býður fjölmiðlum að heimsækja sig 17. febrúar
Mynd: FREDERIC J. BROWN / AFP

Palestínski leikstjórinn Hamdan Ballal, sem hlaut Óskarsverðlaun á síðasta ári fyrir heimildarmyndina No Other Land, segir í yfirlýsingu að ísraelskir landtökumenn, studdir af yfirvöldum, hafi ráðist á heimili hans og fjölskyldu hans á Vesturbakkanum í gær. Fjórir fjölskyldumeðlimir hans hafa verið handteknir og einn fluttur á sjúkrahús eftir árásina.

Í yfirlýsingu sinni segir Ballal að sami landtökumaður og réðst á hann skömmu eftir Óskarsverðlaunin hafi aftur verið í fararbroddi árásarinnar:

„Í dag, tæpu ári eftir að við unnum Óskarsverðlaunin, leiddi sami landtökumaður og réðst á mig skömmu eftir að ég sneri heim frá Los Angeles — Shem Tov Lusky — enn eina árásina á heimili mitt og fjölskyldu mína.“

Ballal segir ástandið hafa versnað verulega á árinu sem liðið er frá því að hann hlaut Óskarsverðlaunin, bæði fyrir sig persónulega og á Vesturbakkanum í heild:

„Ég býð öllum blaðamönnum og stjórnarerindrekum að koma og heimsækja mig og fjölskyldu mína næstkomandi þriðjudag, 17. febrúar, til að heyra hvernig ástandið hefur versnað á árinu sem liðið er síðan við unnum Óskarsverðlaunin, rétt eins og það hefur gert víða um Vesturbakkann.“

Hann greinir frá því að fyrir tveimur vikum hafi ísraelskur dómstóll úrskurðað að svæðið í kringum heimili hans væri lokað öðrum en íbúum, en landtökumenn virði þann úrskurð að vettugi:

„Fyrir tveimur vikum tókst okkur að fá úrskurð frá ísraelskum dómstóli um að svæðið í kringum heimili mitt væri lokað öðrum en íbúum, en landtökumenn brjóta þann úrskurð og koma samt með búfé sitt nánast á hverjum degi.“

Samkvæmt Ballal bregðast yfirvöld ekki við kvörtunum fjölskyldunnar:

„Við hringjum á lögregluna, hún gerir ekkert. Herinn kemur, hann gerir ekkert.“

Hann segir að í dag hafi Shem Tov Lusky komið að heimili þeirra með búfé sitt. Þegar bróðir hans hringdi á lögreglu hafi herinn mætt fyrst og ráðist á fjölskylduna:

„Í dag kom Shem Tov Lusky — landtökumaðurinn sem réðst á mig á heimili mínu skömmu eftir að ég vann Óskarsverðlaunin í fyrra — með búfé sitt að heimili mínu. Bróðir minn hringdi í lögregluna til að tilkynna um innrásina. Herinn kom fyrst og gerði strax húsleit á heimili okkar og réðst á alla sem voru inni. Síðan handtóku þeir tvo bræður mína, frænda minn og frændsystkini. Annar bróðir minn slasaðist alvarlega og er nú á sjúkrahúsi.“

Ballal segir að í stað þess að bæta öryggi þeirra hafi dómsúrskurðurinn haft þveröfug áhrif:

„Úrskurður ísraelska dómstólsins átti að gera lífið aðeins rólegra fyrir okkur. En hið gagnstæða hefur gerst. Landtökumenn hafa aukið áreitni sína og ísraelsk yfirvöld hafa ekkert gert til að framfylgja úrskurðinum, og í dag tóku þau þátt í árásinni ásamt landtökumönnunum.“

Ballal hefur hvatt fjölmiðla og diplómata til að heimsækja sig og fjölskyldu sína til að varpa ljósi á stöðuna á Vesturbakkanum og segir atburðina sýna skýrt samspil landtökumanna og yfirvalda gegn palestínskum íbúum.

Hér fyrir neðan má lesa yfirlýsingu Ballal á ensku en það er leikarinn og gyðingurinn Mandy Patinkin sem deilir henni á Facebook en hann er harður andstæðingur Zionista-stjórnar Ísraels.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“
Heimur

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“

Spurði krakkana hvort þau væru með marijúana og sagði einum að „grjóthalda kjafti“.
Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu
Innlent

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu

Toyota á Íslandi innkallar vinsælan rafbíl vegna slysahættu
Innlent

Toyota á Íslandi innkallar vinsælan rafbíl vegna slysahættu

Vilja heimila hótelbyggingu við Grensásveg
Innlent

Vilja heimila hótelbyggingu við Grensásveg

Nettókostnaður loðdýraræktar á Íslandi 981 milljón króna
Innlent

Nettókostnaður loðdýraræktar á Íslandi 981 milljón króna

Greiddi ekki af láninu og nú vill Arion fá 84 milljónir
Peningar

Greiddi ekki af láninu og nú vill Arion fá 84 milljónir

Róbert Wessman fagnaði afmælinu með ástvinum
Myndir
Fólk

Róbert Wessman fagnaði afmælinu með ástvinum

Rasískir skemmdarvargar herja á bíla í Vesturbænum
Myndir
Innlent

Rasískir skemmdarvargar herja á bíla í Vesturbænum

Pawel snýr umræðunni að ESB eftir yfirlýsingu Rubios
Pólitík

Pawel snýr umræðunni að ESB eftir yfirlýsingu Rubios

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli
Myndir
Fólk

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli

Síðasta kjörtímabil Ingu
Slúður

Síðasta kjörtímabil Ingu

Handtekinn fyrir fjóra mismunandi glæpi
Innlent

Handtekinn fyrir fjóra mismunandi glæpi

Íbúum fjölgar hlutfallslega mest í minnsta sveitarfélaginu
Innlent

Íbúum fjölgar hlutfallslega mest í minnsta sveitarfélaginu

Heimur

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“
Heimur

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“

Spurði krakkana hvort þau væru með marijúana og sagði einum að „grjóthalda kjafti“.
Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum
Heimur

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö
Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens
Heimur

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall
Heimur

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl
Heimur

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl

Loka auglýsingu