1
Fólk

Sjaldgæft raðhús til sölu í einni fjölmennustu götu landsins

2
Innlent

Ók eins og brjálæðingur í Hvalfjarðarsveit

3
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

4
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

5
Heimur

Flugáhöfn þurfti að stöðva kynferðislega iðju í háloftunum

6
Fólk

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni

7
Pólitík

Tómas Þór sakar ríkisstjórnina um „skítkast“ og svikin loforð

8
Innlent

Almenningur fékk ekki að vita hvernig alvarleg sakamál enduðu

9
Peningar

Bændur kveðja sinn eigin lífeyrissjóð

10
Fólk

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli

Til baka

British Museum fjarlægir heitið „Palestína“ úr sýningum eftir þrýsting hagsmunahóps

Þrýstihópur með tengsl við Ísrael fagnar breytingunum

British Museum
British MuseumOrðið Palestína fer fyrir brjóstið á sumum
Mynd: Shutterstock

British Museum hefur fjarlægt orðið Palestína úr textum og upplýsingaskiltum um forn-Miðausturlönd eftir að hagsmunahópur með aðsetur í Bretlandi lýsti yfir áhyggjum af notkun hugtaksins, að því er The Guardian greinir frá.

British Museum staðfesti að verið væri að yfirfara og uppfæra hluta sýningatexta og merkimiða eftir að „áhorfendaprófanir hafi sýnt að söguleg notkun hugtaksins Palestína … sé í sumum tilvikum ekki lengur merkingarbær,“ að því er fram kemur í yfirlýsingu frá UK Lawyers for Israel (UKLFI) sem birt var á laugardag.

Samtökin sögðu að í sýningum um hið forna Levant og Egyptaland hefðu verið „sögulega rangar“ tilvísanir til Palestínu. Að nota eitt heiti yfir þúsundir ára „þurrki út sögulegar breytingar og skapi ranga tilfinningu fyrir samfellu,“ sagði í yfirlýsingunni.

Í kjölfar ábendinganna staðfesti talsmaður safnsins að endurskoðun og uppfærsla texta og skilta væri í gangi, hverju tilviki fyrir sig. „Til dæmis hafa upplýsingaspjöld í Levant-salnum, sem fjalla um tímabilið 2000–300 f.Kr., verið uppfærð til að lýsa ítarlega sögu Kanaans og Kanaaníta, sem og tilkomu konungsríkjanna Júda og Ísraels, með þeim heitum,“ sagði í svari safnsins. Þá bætti safnið við að „endurskoðaður texti um Fönikíumenn hafi verið settur upp snemma árs 2025“.

Samkvæmt frétt The Telegraph hefur orðalagið „palestínskur uppruni“ verið breytt í „kanaanískur uppruni“ á upplýsingaspjaldi um Hyksosa.

Fulltrúi UKLFI sagði samtökin fagna því að safnið sé reiðubúið að endurskoða og breyta hugtökum sem þau telja „ónákvæm eða líkleg til að gefa ranga merkingu í dag“. Í síðustu viku gaf hópurinn út yfirlýsingu undir heitinu „British Museum undir þrýstingi til að breyta sögulega ónákvæmri notkun hugtaksins „Palestína“.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“
Heimur

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“

Spurði krakkana hvort þau væru með marijúana og sagði einum að „grjóthalda kjafti“.
Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu
Innlent

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu

Toyota á Íslandi innkallar vinsælan rafbíl vegna slysahættu
Innlent

Toyota á Íslandi innkallar vinsælan rafbíl vegna slysahættu

Vilja heimila hótelbyggingu við Grensásveg
Innlent

Vilja heimila hótelbyggingu við Grensásveg

Nettókostnaður loðdýraræktar á Íslandi 981 milljón króna
Innlent

Nettókostnaður loðdýraræktar á Íslandi 981 milljón króna

Greiddi ekki af láninu og nú vill Arion fá 84 milljónir
Peningar

Greiddi ekki af láninu og nú vill Arion fá 84 milljónir

Róbert Wessman fagnaði afmælinu með ástvinum
Myndir
Fólk

Róbert Wessman fagnaði afmælinu með ástvinum

Rasískir skemmdarvargar herja á bíla í Vesturbænum
Myndir
Innlent

Rasískir skemmdarvargar herja á bíla í Vesturbænum

Pawel snýr umræðunni að ESB eftir yfirlýsingu Rubios
Pólitík

Pawel snýr umræðunni að ESB eftir yfirlýsingu Rubios

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli
Myndir
Fólk

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli

Síðasta kjörtímabil Ingu
Slúður

Síðasta kjörtímabil Ingu

Handtekinn fyrir fjóra mismunandi glæpi
Innlent

Handtekinn fyrir fjóra mismunandi glæpi

Íbúum fjölgar hlutfallslega mest í minnsta sveitarfélaginu
Innlent

Íbúum fjölgar hlutfallslega mest í minnsta sveitarfélaginu

Heimur

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“
Heimur

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“

Spurði krakkana hvort þau væru með marijúana og sagði einum að „grjóthalda kjafti“.
Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum
Heimur

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö
Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens
Heimur

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall
Heimur

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl
Heimur

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl

Loka auglýsingu