1
Heimur

Níu ára drengur fastur erlendis eftir að honum var neitað um heimför

2
Innlent

Íris „eltihrellir“ handtekin

3
Fólk

Einbýli í Grjótaþorpinu til sölu á rosalegu verði

4
Innlent

Stebbi Jak hættir í Dimmu með látum

5
Skoðun

Burt með dýraeftirlit hjá Matvælastofnun

6
Fólk

Reynslubolti yfirgefur RÚV

7
Fólk

Eitt dýrasta hús Íslands lækkað talsvert í verði

8
Pólitík

Ragnar Þór breytir reglum um hjólastólalyftur

9
Minning

Björgvin Halldórsson er fallinn frá

10
Heimur

SNL-stjörnur heillaðar af íslenskum hreim

Til baka

Jakob fær rúmar fimm milljónir

Hætti sem aðstoðarmaður dómsmálaráðherra

Jakob Birgisson
Jakob Birgisson
Mynd: Móðurskipið/Saga Sig

Grínistinn Jakob Birgisson á rétt á, sem aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, biðlaunum í þrjá mánuði en þetta kemur fram í svari dómsmálaráðuneytisins.

Tilkynnt var nýlega að Þórdís Valsdóttir tæki við starfi Jakobs en hann ætlar að snúa sér að gríni samkvæmt tilkynningu sem hann setti á Facebook.

Heildarkostnaður við biðlaun Jakobs er 5.398.230 krónur en hann hóf störf sem aðstoðarmaður í byrjun 2025.

Jakob útskrifaðist frá Menntaskólanum í Reykjavík 2018. Hann hefur starfað sem uppistandari og hefur haldið fjölda sýninga um land allt. Samhliða uppistandi hefur Jakob starfað við texta- og hugmyndavinnu hjá auglýsingastofunni Hvíta húsinu. Þá hefur hann verið sjálfstætt starfandi við textagerð, stefnumótun og kynningarmál. Jakob á einnig feril í dagskrárgerð í útvarpi og sjónvarpi. Eiginkona hans er Sólveig Einarsdóttir hagfræðingur og eiga þau saman dæturnar Herdísi og Sigríði.

Tilkynning Jakobs þann 30. mars

Kæru vinir, smá tímamót! Ég hef ákveðið að hætta sem aðstoðarmaður dómsmálaráðherra. Það rúma ár sem er að baki í þessu starfi var sannkallað ævintýri og ekki laust við að maður sé margs vísari. Fyrst og fremst er ég þakklátur fyrir frábært tækifæri og einstakt samstarf við Obbu. Hún er traust og góð vinkona. Ég hef mikla trú á henni og ráðuneytið er fullt af eldkláru og duglegu fólki sem ég mun örugglega sakna. Síðan er sérstakt gleðiefni að vinkona mín Þórdís taki við af mér – ég get treyst því að ráðherra og öðrum félögum mínum muni farnast vel með aðstoð hennar.

Það hefur líklega ekki farið fram hjá mínum nánustu að undanförnu að grínið, uppistandið og ýmsar hliðargreinar þess hafa togað í mig. Þetta hefur ágerst þannig undir það síðasta að ég get ekki hunsað það lengur og bind því nú enda á ársleyfi mitt frá kölluninni.

Ég kveð stjórnarráðið í bili og sný aftur á minn gamla, góða vettvang. Það styttist í næstu sýningu. Ég get ekki beðið.

P.S. Nú er ég hættur, svo ég leyfi mér bara að segja þetta: mannanafnanefnd þarf auknar heimildir. Helst afturvirkar.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Svíi sagður hafa neytt eiginkonu sína til að stunda vændi
Heimur

Svíi sagður hafa neytt eiginkonu sína til að stunda vændi

Maðurinn er á sjötugsaldri
Varnarmálaráðherra Pakistan: „Ísrael er bölvun fyrir mannkynið“
Heimur

Varnarmálaráðherra Pakistan: „Ísrael er bölvun fyrir mannkynið“

DNA leiddi til handtöku í 21 árs gömlu morðmáli
Heimur

DNA leiddi til handtöku í 21 árs gömlu morðmáli

Gagnrýnir Facebook-færslu Stebba Jak harðlega
Innlent

Gagnrýnir Facebook-færslu Stebba Jak harðlega

Fylgi Pútíns í frjálsu falli
Heimur

Fylgi Pútíns í frjálsu falli

Inn í síðustu nótt Unu Torfa
Menning

Inn í síðustu nótt Unu Torfa

Konungur Kambódíu með krabbamein
Heimur

Konungur Kambódíu með krabbamein

Jón Hólmgeirsson er látinn
Minning

Jón Hólmgeirsson er látinn

Ungabarn lést í skelfilegri hundaárás
Heimur

Ungabarn lést í skelfilegri hundaárás

Ákærður fyrir að nýta sér veikindi fyrrum tengdaföður
Innlent

Ákærður fyrir að nýta sér veikindi fyrrum tengdaföður

Eitt dýrasta hús Íslands lækkað talsvert í verði
Myndir
Fólk

Eitt dýrasta hús Íslands lækkað talsvert í verði

Bandaríkin taka upp sjálfvirka herskylduskráningu
Heimur

Bandaríkin taka upp sjálfvirka herskylduskráningu

Fólk

Jakob fær rúmar fimm milljónir
Fólk

Jakob fær rúmar fimm milljónir

Hætti sem aðstoðarmaður dómsmálaráðherra
Pétur Óskar á hraðri uppleið í leiklistarheiminum
Viðtal
Fólk

Pétur Óskar á hraðri uppleið í leiklistarheiminum

Eitt dýrasta hús Íslands lækkað talsvert í verði
Myndir
Fólk

Eitt dýrasta hús Íslands lækkað talsvert í verði

Einbýli í Grjótaþorpinu til sölu á rosalegu verði
Myndir
Fólk

Einbýli í Grjótaþorpinu til sölu á rosalegu verði

Algjörlega einstakt hús við sjávarsíðuna til sölu
Myndir
Fólk

Algjörlega einstakt hús við sjávarsíðuna til sölu

Loka auglýsingu