Spænsk kona hefur verið ákærð fyrir að koma með gras til landsins í gegnum Keflavíkurflugvöll.
Hún er ákærð fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa, miðvikudaginn 23. október 2024, í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, haft í vörslum sínum 0,99 g af maríhúana, sem hún framvísaði við lögreglu.
Þess er krafist að konan verði dæmd til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Þá er þess krafist að gerð verði upptæk með dómi 0,99 g af maríhúana.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum er ákærandi í málinu en það verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness á Star Wars-deginum, sem er auðvitað fjórði maí.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment