
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að mjög alvarlegu umferðarslysi sem varð á Miklubraut í Reykjavík í gærkvöld, en tilkynning um slysið barst kl. 23.18.
Þar hafði bifreið staðnæmst við stólpa Vegagerðarinnar, á móts við hús Hjálpræðishersins, eftir að hafa verið ekið austur Miklubraut. Lögreglan leitar einnig eftir myndefni frá þeim sem fóru þarna um í aðdraganda slyssins og á það við um báðar akstursáttir, þ.e. til austurs og vesturs. Mörg ökutæki eru búin myndavélum og því viðbúið að myndefni frá áðurnefndum tíma sé að finna í fórum einhverra.
Lögreglan óskar eftir því þeir sem eiga slíkt sendi upplýsingar um slíkt á netfangið [email protected] og gefa þar upp bæði nafn sitt og símanúmer. Í framhaldinu verður haft samband við viðkomandi. Upplýsingum má einnig koma á framfæri í síma 444 1000.

Komment