
Það verður ekki sagt að rithöfundurinn Hallgrímur Helgason sé mikill stuðningsmaður Miðflokksins ef marka má nýja færslu sem rithöfundurinn setti á samfélagsmiðla. Segir hann flokkinn vera rasískan, menningarlausan og að hann hylli kynferðisafbrotamenn.
„Þetta er nýi Neiflokkurinn. Þau eru á móti öllu sem lagt er fram, á móti öllum málum og öllum nýjum hugmyndum, en taka aðeins undir með þeim sem vilja þröngva samtíðinni í bakkgír. Nýjum lágpunkti náði varaformaðurinn “ungi” um helgina þegar hann (auðvitað) bar blak af miðaldaviðhorfum og homófóbíu kaþólsku kirkjunnar. Og bættist þar enn við listann langa, flokkurinn berst nú jafn hart gegn samkynhneigðum, transfólki, útlendingum og borgarlínu, þjóðaratkvæði, ESB og grænlenska fánanum við Ráðhúsið. Þetta er nýja íhaldið, ískalt og grímulaust, alveg laust við virðuleg leiktjöld gamla íhaldsins, menningarlaust, rasískt og eineltisríkt, með Wintris í vasanum og alltaf til í málþóf fyrir milljarðamæringana okkar, vill konurnar aftur inn í eldhús og setur kynferðisbrotamanninn í fyrsta sæti,“ skrifar Hallgrímur og lét hann fylgja með mynd af leiðtogum flokksins.
Rithöfundurinn nafngreinir ekki hinn meinta kynferðisafbrotamann en Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í komandi borgarstjórnarkosningum, var sakaður um kynferðisafbrot af Vítalíu Lazarevu árið 2022 en ákæra í málinu var ekki gefin út eftir rannsókn lögreglu.

Komment