Lögregla hafði í nógu að snúast í nótt vegna fjölbreyttra útkalla, þar á meðal vegna þjófnaðar, innbrotstilraunar, umferðarlagabrota og óspekta.
Maður var staðinn að hnupli í matvöruverslun. Framburður var tekinn af honum á vettvangi og var hann að því loknu frjáls ferða sinna.
Tilkynnt var um konu sem sofnaði á stýri í ökutæki, en bifreiðin var farin af vettvangi þegar lögreglu bar að garði. Þá barst tilkynning um laust barn í bifreið, en einnig þar var bíllinn farinn þegar lögregla kom á staðinn.
Tveir menn voru sagðir hafa stolið slökkvitæki af veitingastað, notað það utandyra og skilið það síðan eftir áður en þeir fóru á brott. Málið er til skoðunar.
Tilkynnt var um yfirstandandi innbrot á hjúkrunarheimili, en við nánari athugun reyndist þar vera iðnmaður að störfum, nokkuð seint að kvöldi til.
Þá var tilkynnt um mann sem reyndi að komast inn í íbúð um nóttina. Samkvæmt tilkynnanda reyndi hann að opna hurðina með lykli sem passaði ekki og barði í kjölfarið harkalega á hurðina. Hann var farinn þegar lögreglu bar að.
Ökumaður var stöðvaður eftir að hafa ekið ítrekað hring eftir hring í hringtorgi. Í ljós kom að hann var undir áhrifum vímuefna, sviptur ökuréttindum og með fíkniefni meðferðis. Málið er í rannsókn.
Í miðborginni var maður handtekinn eftir að hafa ítrekað kastað sér utan í lögreglubifreið og sýnt af sér óspektir. Hann var mjög ölvaður og var vistaður í fangageymslu.
Óljós tilkynning barst um aðstoð lögreglu vegna nágrannadeilu. Tilsvarandi aðili sagði nágranna sinn hafa ýtt við sér, slegið til sín og hótað sér. Á meðan lögregla ræddi við tilkynnanda kom hinn aðilinn út með fjölda hnífa í buxnastrengnum. Hann var mjög ölvaður en ekki árásargjarn. Hann var handtekinn og vistaður í klefa.
Þá var tilkynnt um hóp drengja sem köstuðu grjóti í gegnum rúðu í grunnskóla í Reykjavík. Málið er til rannsóknar.
Loks fannst karlmaður utandyra slasaður á fæti og mjöðm, líklega eftir fall niður tröppur. Hann var fluttur á slysadeild til frekari aðhlynningar.


Komment