1
Innlent

Telur stærra eldgos í aðsigi á Svartsengissvæðinu

2
Heimur

„Leiðinlegasti prestur í heimi“ er látinn

3
Heimur

Fréttakona og þrjú börn hennar létust í bruna

4
Innlent

Þrítugur karlmaður gripinn með illa fengnar milljónir

5
Fólk

Selja glæsilega Garðabæjarhöll

6
Fólk

Brann út og gjörbreyttist

7
Fólk

Eitt óvenjulegasta einbýli Reykjavíkur til sölu

8
Minning

Séra Ragnheiður Erla Bjarnadóttir er látin

9
Innlent

Tiger á Íslandi innkallar vinsæl glös

10
Innlent

IKEA innkallar kerti vegna eldhættu

Til baka

Nicki Minaj sögð skulda tugi milljóna

Framleiðslufyrirtæki hefur farið í mál við rappkonuna

Nicki Minaj
Nicki MinajEr einn vinsælasti rappari 21. aldar
Mynd: Gage Skidmore/Wikipedia

Bandaríska rapparanum Nicki Minaj hefur verið stefnt fyrir dóm, samkvæmt heimildum TMZ, vegna meintrar vangreiðslu til framleiðslufyrirtækis sem segist hafa lagt út yfir 275 þúsund bandaríkjadali, sem er rúmar 34 milljónar króna, vegna tónleikahalds og tengdrar þjónustu.

Samkvæmt dómsgögnum hefur fyrirtækið 24/7 Productions höfðað mál gegn Minaj og framleiðslufyrirtæki hennar, Pink Friday Productions. Fyrirtækið kveðst fyrst hafa unnið með listakonunni árið 2022 við tónleika.

Í lok árs 2023 segir fyrirtækið Minaj hafa leitað til þeirra á ný vegna tónleika hennar á Jingle Ball-hátíðinni og útgáfuhófs fyrir plötuna Pink Friday 2. Samkvæmt stefnu málsins lagði 24/7 Productions fram fjárhagsáætlanir sem voru samþykktar af teymi Minaj, og veitti þjónustu, þar á meðal skipulagningu, vettvangsstjórnun, mönnun, hljóð- og ljósabúnað, sviðsuppsetningu, flutninga og heildarumsjón.

Fyrirtækið heldur því fram að það hafi lagt út meira en 275 þúsund dali fyrir framleiðslukostnaði sem átti að endurgreiðast. Þá er því haldið fram að fyrirtæki Minaj hafi fengið um 650 þúsund dali greidda fyrir Jingle Ball-tónleikana eina saman, án þess að skuldin við 24/7 Productions hafi verið gerð upp.

Samkvæmt stefnunni hefur fyrirtækið ítrekað reynt að innheimta upphæðina á undanförnum árum, en fengið óljós svör frá teymi Minaj, meðal annars að málið yrði „skoðað nánar“.

24/7 Productions fer fram á skaðabætur vegna meints samningsbrots og krefst greiðslu sem nemur að minnsta kosti 275 þúsund bandaríkjadölum.

Rappkonan hefur ekki tjáð sig um stefnuna að svo stöddu.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Guðrún lýsir hryllingi á fósturheimili í Mosfellssveit
Innlent

Guðrún lýsir hryllingi á fósturheimili í Mosfellssveit

Segir eiganda fósturheimilisins hafa neytt fjögurra ára gamlan dreng að borða eigin ælu.
Okkar Borg birtir framboðslistann
Pólitík

Okkar Borg birtir framboðslistann

Séra Ragnheiður Erla Bjarnadóttir er látin
Minning

Séra Ragnheiður Erla Bjarnadóttir er látin

Spænskur ráðherra kallar Netanyahu „þjóðarmorðsbrjálæðing“
Heimur

Spænskur ráðherra kallar Netanyahu „þjóðarmorðsbrjálæðing“

Maki Nicolu Bulley stígur fram eftir harmleikinn
Heimur

Maki Nicolu Bulley stígur fram eftir harmleikinn

Ari Matt, Tinna Proppé og Björn Teits vilja verða sérfræðingur hjá Loga
Innlent

Ari Matt, Tinna Proppé og Björn Teits vilja verða sérfræðingur hjá Loga

Jóhann Óli og Davíð tóku sömu ákvörðun
Fólk

Jóhann Óli og Davíð tóku sömu ákvörðun

Katrín leiðbeinir fataáhugamönnum
Menning

Katrín leiðbeinir fataáhugamönnum

FIFA aflýsir þúsundum hótelbókana fyrir HM í knattspyrnu
Sport

FIFA aflýsir þúsundum hótelbókana fyrir HM í knattspyrnu

Kona ákærð fyrir minna en eitt gramm af grasi
Innlent

Kona ákærð fyrir minna en eitt gramm af grasi

IKEA innkallar kerti vegna eldhættu
Innlent

IKEA innkallar kerti vegna eldhættu

Illugi segir sókn fasistahreyfinga ekki óstöðvandi
Pólitík

Illugi segir sókn fasistahreyfinga ekki óstöðvandi

Eitt óvenjulegasta einbýli Reykjavíkur til sölu
Myndir
Fólk

Eitt óvenjulegasta einbýli Reykjavíkur til sölu

Heimur

Nicki Minaj sögð skulda tugi milljóna
Heimur

Nicki Minaj sögð skulda tugi milljóna

Framleiðslufyrirtæki hefur farið í mál við rappkonuna
„Leiðinlegasti prestur í heimi“ er látinn
Myndband
Heimur

„Leiðinlegasti prestur í heimi“ er látinn

Spænskur ráðherra kallar Netanyahu „þjóðarmorðsbrjálæðing“
Heimur

Spænskur ráðherra kallar Netanyahu „þjóðarmorðsbrjálæðing“

Maki Nicolu Bulley stígur fram eftir harmleikinn
Heimur

Maki Nicolu Bulley stígur fram eftir harmleikinn

Segja ísraelska hermenn hafa pyntað smábarn á Gaza
Heimur

Segja ísraelska hermenn hafa pyntað smábarn á Gaza

Loka auglýsingu