Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti nokkrum útköllum í dag vegna umferðarlagabrota og annarra atvika.
Nokkrir ökumenn voru sektaðir fyrir umferðarlagabrot, meðal annars fyrir notkun farsíma við akstur og fyrir að aka gegn rauðu ljósi.
Tilkynnt var um innbrot í bílakjallara í Hafnarfirði. Lögregla mætti á vettvang og er málið nú til rannsóknar.
Einnig barst tilkynning um mann sem sparkaði í bifreiðar í Breiðholti. Maðurinn hafði sparkað í nokkrar bifreiðar og valdið skemmdum. Hann var handtekinn á vettvangi en síðar látinn laus að lokinni skýrslutöku.
Þá voru skráningarmerki fjarlægð af sex ökutækjum.
Tveir ökumenn voru handteknir vegna gruns um akstur undir áhrifum. Annar var grunaður um akstur undir áhrifum áfengis auk þess að hafa ekið án gildra ökuréttinda. Hinn ökumaðurinn er grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Báðir voru fluttir á lögreglustöð þar sem farið var með mál þeirra í hefðbundið ferli.


Komment