1
Innlent

Hilmar Leifs hvetur Bubba til að kynna sér glæpastarfsemi

2
Minning

Jónas Sigurjónsson er fallinn frá

3
Heimur

Carly Douglas látin aðeins 36 ára gömul

4
Fólk

Pottur, pitsaofn og pláss fyrir alla

5
Heimur

Óður hestur drap ungmenni í Central Park

6
Heimur

Kona í sigurvímu „twerkaði“ í miðjum slagsmálum

7
Heimur

Einn látinn og tugir slasaðir eftir alvarlegt lestarslys í Bretlandi

8
Innlent

Bílstjóri ók þar sem alls ekki má aka

9
Landið

Nefbrot og meðvitundarleysi settu svip sinn á Akureyri

10
Innlent

Karlmaður dæmdur fyrir kynferðislegt áreiti gegn átta ungum stúlkum

Til baka

Oddný situr ekki aðgerðalaus

Hún er aðgerðasinni sem leggur sitt að mörkum til að hjálpa fjölskyldum á Gaza

Oddny
Oddný deilir sögu sinni á vefsíðunni Mæður gegn morðumTil stendur að 100 konur og kvár deili sögum sínum á vefsíðu þeirra.
Mynd: Alda Lóa

Reynslusaga Oddnýjar Bjargar Rafnsdóttur birtist fyrir nokkrum dögum á vefsíðunni Mæður gegn morðum. Oddný er í hópi þeirra hversdagslegra kvenna og kvára sem hafa lagt sitt að mörkum í að hjálpa fjölskyldum á Gaza. Hún er leikskólakennari og býr á Hrauni í Aðaldal í Þingeyjarsveit en er í samskiptum við um 30 fjölskyldur á Gaza.

Oddný sneri aftur á samfélagsmiðla til þess að taka þátt í grasrótarstarfi og berjast fyrir Palestínu. Í miðjum sauðburði var hún að senda tölvupósta á sveitarfélög og vekja athygli á sniðgöngu fyrirtækja, svo sem Rapyd á samfélagsmiðlum. Í kjölfar þess hafði Doha, móðir fjölfatlaðs barns sem býr á Gaza, samband við Oddnýju í leit að aðstoð. „Ég hélt fyrst að þetta væri skam þar sem saga hennar var svo hrikaleg.“ Dohu var synjað af Ísraelsmönnum að yfirgefa Gaza til þess að leita að heilbrigðisþjónustu fyrir barnið sitt. Hún þurfti því að horfa á barnið sitt deyja í höndunum sínum. Doha á fleiri börn, eitt 10 ára, annað 9 ára og eitt nýfætt sem er enn á brjósti. Þau glíma nú við mikla hungursneyð ofan á stríðsátökin.

Í samstarfi við Kristínu S. Bjarnadóttur fór Oddný að safna peningi fyrir fjölda fjölskyldna á Gaza. Þær hafa nú stofnað Vonarbrú, almannaheillafélag með starfsemi yfir landamæri. Markmið félagsins er að styrkja þær rúmlegu 60 fjölskyldur sem þær Oddný og Kristín hafa verið að styrkja óformlega. Vonarbrú tekur ávallt við frjálsum framlögum og unnið er að því að skrá félagið til leiks í Reykjavíkurmaraþonið svo hægt sé að hlaupa til styrktar þeirra.

„Ég veit hvað allt kostar á Gaza,” segir Oddný í pistli sínum en hún er í beinu sambandi við margar fjölskyldur á svæðinu. „Fyrir tveimur vikum kostaði kíló af kindakjöti 27 þúsund krónur en kind á fæti 5000 dollara. Ég veit hvað leigan undir tjöldin kostar en hún hækkar stöðugt. Ein af okkar skjólstæðingum yfirgaf tjaldbúðir þegar leigan hækkaði skyndilega.“

Oddný lýsir margs konar lífshættulegum aðstæðum sem fólkið á Gaza þarf að glíma við. Hún segir tengslin við fólkið verða sterkari eftir að sitja með þeim í sprengiregni heilu næturnar.

Á meðan að gríðarlegar hörmungar ganga yfir út í heimi er eðlilegt að finna fyrir vanmætti en Oddný er ein þeirra hversdagslegra kvenna sem hafa látið hendur standa fram úr ermum.

Hægt er að lesa pistil Oddnýjar í heild sinni á vefsíðu Mæður gegn morðum.

Mæður gegn morðum

Á næstu vikum og fram eftir hausti birtast á síðunni Mæður gegn Morðum hugleiðingar 100 kvenna og kvár af mennskunni einsog hún snertir þau á ólíka vegu og sögur af reynslunni sem safnast upp í baráttunni fyrir frjálsri Palestínu.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Kleip í konurassa af hlaupahjóli
Innlent

Kleip í konurassa af hlaupahjóli

Nefbrot og meðvitundarleysi settu svip sinn á Akureyri
Landið

Nefbrot og meðvitundarleysi settu svip sinn á Akureyri

Hilmar Leifs hvetur Bubba til að kynna sér glæpastarfsemi
Innlent

Hilmar Leifs hvetur Bubba til að kynna sér glæpastarfsemi

Carly Douglas látin aðeins 36 ára gömul
Heimur

Carly Douglas látin aðeins 36 ára gömul

Einn látinn og tugir slasaðir eftir alvarlegt lestarslys í Bretlandi
Heimur

Einn látinn og tugir slasaðir eftir alvarlegt lestarslys í Bretlandi

Karlmaður dæmdur fyrir kynferðislegt áreiti gegn átta ungum stúlkum
Innlent

Karlmaður dæmdur fyrir kynferðislegt áreiti gegn átta ungum stúlkum

Kona í sigurvímu „twerkaði“ í miðjum slagsmálum
Myndband
Heimur

Kona í sigurvímu „twerkaði“ í miðjum slagsmálum

Óður hestur drap ungmenni í Central Park
Myndband
Heimur

Óður hestur drap ungmenni í Central Park

Pottur, pitsaofn og pláss fyrir alla
Myndir
Fólk

Pottur, pitsaofn og pláss fyrir alla

Bílstjóri ók þar sem alls ekki má aka
Innlent

Bílstjóri ók þar sem alls ekki má aka

Jónas Sigurjónsson er fallinn frá
Minning

Jónas Sigurjónsson er fallinn frá

Réðst harkalega á barnsmóður sína
Innlent

Réðst harkalega á barnsmóður sína

Fólk

Pottur, pitsaofn og pláss fyrir alla
Myndir
Fólk

Pottur, pitsaofn og pláss fyrir alla

Húsið var reist árið 1964
Lofa langlífi með grískri lífsspeki
Fólk

Lofa langlífi með grískri lífsspeki

Lögreglumaður sýndi óvænta danstilburði á 17. júní
Myndband
Fólk

Lögreglumaður sýndi óvænta danstilburði á 17. júní

Eitt flottasta einbýli höfuðborgarsvæðisins komið á sölu
Myndir
Fólk

Eitt flottasta einbýli höfuðborgarsvæðisins komið á sölu

Málmhausar skelltu sér í golf
Myndir
Fólk

Málmhausar skelltu sér í golf

Sunnuvegshöll komin á sölulista
Myndir
Fólk

Sunnuvegshöll komin á sölulista

Loka auglýsingu