
Yfir 600 eldflaugar frá Íran, auk hundruða frá Hezbollah, hafa leitt til þess að milljónir Ísraela hafa þurft að halda sig innandyra og fylgja fyrirmælum heimavarnayfirvalda, fara í loftvarnabyrgi og vera nærri þeim stóran hluta dags og nætur.
Á sama tíma og þetta á sér stað hafa hafa svokallaðir landnemar frá Ísrael gengið berserksgang, í stað þess að fara eftir fyrirmælum yfirvalda. Þeir hafa gert hundruð árása síðasta mánuðinn í þessu stríði, sem hefur leitt til dauða sjö Palestínumanna, sært tugi annarra og neytt hundruð til að flýja heimili sín.
Mannréttindasamtök saka ísraelsk stjórnvöld um að bera ábyrgð að hluta, þar sem hermenn séu gjarnan á svæðinu þegar árásirnar eiga sér stað.
Þannig þurfa Palestínumenn ekki aðeins að takast á við brot úr sprengjum sem falla á samfélög þeirra, án þess að hafa aðgang að skýlum, en þeim er meinaður aðgangur, heldur einnig þessa miklu aukningu í árásum svokallaðra landnema.
Hér fyrir neðan má sjá eina slíka árás en þar má sjá ísraelska þorpara brjóta allt og bramla í fyrirtæki Palestínumanns á Vesturbakkanum.

Komment