
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti fjölbreyttum verkefnum í dag, þar á meðal útköllum vegna þjófnaðar, umferðarlagabrota og aðstoðar við einstaklinga sem þurftu á hjálp að halda.
Ölvaður aðili var aðstoðaður við að komast til síns heima frá miðborginni en að sögn vitna hafði hann verið í tapaðri baráttu við þyngdaraflið. Hann var þakklátur lögreglu fyrir aðstoðina.
Tilkynnt var um sofandi mann í anddyri fjölbýlishúss þar sem tilkynnandi treysti sér ekki til að vekja hann. Þegar lögregla kom á vettvang var maðurinn vaknaður og fór sjálfur á brott.
Öryggisvörður veitti lögreglu eftirför vegna aðila sem hafði stolið vörum úr verslun í Skeifunni. Lögreglan hafði uppi á viðkomandi og var hann handtekinn. Málið er nú til rannsóknar.
Í Hafnarfirði barst tilkynning um mann sem lá á hringtorgi, en hann var farinn þegar lögregla kom á staðinn.
Lögregla stöðvaði einnig ökumann sem var að spóla í umferðinni. Við nánari athugun kom í ljós að ökumaðurinn var sviptur ökuréttindum og grunaður um akstur undir áhrifum vímuefna. Hann var handtekinn en sleppt að lokinni blóðsýnatöku.
Þá var tilkynnt um hnupl í matvöruverslun í Kópavogi. Sá sem málið varðaði var æstur við komu lögreglu en róaðist fljótt og málið var afgreitt á vettvangi. Einnig var lögregla kölluð til bakarís í Kópavogi til að vísa einstaklingi út, sem var gert án frekari vandkvæða.
Tilkynning barst um að maður hefði gengið berserksgang við sjúkrastofnun, en sú reyndist ekki rétt. Maðurinn var rólegur þegar lögregla kom á vettvang og aðstoðaði lögreglan hann við að komast á viðeigandi stofnun þar sem hann óskaði eftir aðstoð.
Lögreglu barst einnig tilkynning um grunsamlegar mannaferðir við verslunarkjarna, en í ljós kom að eðlilegar skýringar voru á ferðum fólksins.
Rannsókn stendur yfir eftir að grjóti var kastað í gegnum rúðu í íbúðarhúsi. Einn aðili er grunaður um verknaðinn.
Að lokum var tilkynnt um slys þar sem knapi féll af hesti. Ekki liggja fyrir frekari upplýsingar um meiðsli að svo stöddu.

Komment