
KeflavíkurflugvöllurMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Stjórnarráðið/Birgir Ísleifur
Þremur erlendum ríkisborgurum hefur verið vísað frá Íslandi, en um er að ræða þrjá karla um tvítugt en þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.
Þeir voru allir handteknir á miðborgarsvæðinu eftir hádegi í gær í kjölfar tilkynninga um þjófnaði á svæðinu að söng lögreglu. Þremenningarnir voru færðir á lögreglustöð og við yfirheyrslur játuðu þeir sök. Mennirnir stálu fatnaði, sem var haldlagður og komið aftur í réttar hendur. Þeir höfðu dvalið á Íslandi í nokkra daga þegar málin komu upp í gær.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment