1
Fólk

Rándýr Vesturbæjarperla á sölulista

2
Innlent

Maður varð fyrir hrottalegri hópárás ungmenna

3
Innlent

Harður árekstur á Grensásvegi

4
Innlent

Lögreglan gerir athugasemd við orðanotkun fjölmiðla

5
Heimur

Rússneskur hermaður myrti konu eftir fimm klukkustunda gíslatöku

6
Innlent

Ákærður fyrir skjalafals og brot á útlendingalögum

7
Innlent

Laugardalsmaður dæmdur fyrir hylmingu

8
Skoðun

Sorrý ég hélt að þetta væri skólablýantur

9
Innlent

Segir þrýsting Ísraela aukast á Íslandi

10
Peningar

Landsbankinn mokar inn peningum

Til baka

Segir þrýsting Ísraela aukast á Íslandi

„Það má aldrei verða að Ísland gerist aðili að IHRA.“

Kristinn Hrafnsson
Kristinn HrafnssonRitstjórinn varar við áróðri Ísraela

Kristinn Hrafnsson, ritstjóri WikiLeaks, segir að nú geisi „stríð um efnisveitur og vettvang umræðunnar“ þar sem markvisst sé reynt að ná yfirráðum yfir netrýminu. Í Facebook-færslu sem hann birti í kvöld tengir hann þessa þróun við yfirlýstan vilja „Ísraelista“ til að hafa stjórn á umræðu á netinu og nefnir sérstaklega eigendaskipti á TikTok sem dæmi.

„Nú ríkir stríð um efnisveitur og vettvang umræðunnar. Það stríð skal skoðað í ljósi yfirlýsinga Ísraelista um nauðsyn þess að taka völdin í netrýminu,“ skrifar Kristinn. Hann segir einn lið í því stríði vera að „þeirra maður, Larry Ellison, næstríkasti maður heims, fer fyrir hópi þeirra sem tóku yfir eignarstjórn á TikTok eftir að Kínverjar voru þvingaðir til sölu.“

Kristinn segir notendur þegar vera farnir að finna fyrir breytingum: „Í vikunni fóru notendur að finna fyrir ritskoðun og skuggabanni og í kjölfarið flykktist fólk á nýjan – nánast óþekktan vettvang – UpScrolled. Milljón notendur bættust þar við á par dögum.“

Aukinn þrýstingur á Íslandi

Að mati Kristins er sambærilegur áróður nú orðinn sýnilegri hér á landi. „Hér heima er þrýstingur og áróður Ísraelista að verða augljósari,“ skrifar hann og nefnir sem dæmi fréttir sem hann segir plantaðar, meðal annars fullyrðingar um að gyðingar í Reykjavík þori ekki að setja ljósastjaka í glugga fyrir jólin.

„Hann birtist í plöntuðum fréttum eins og þeim að gyðingar í Reykjavík þori ekki að setja gyðinglega ljósastjaka út í glugga fyrir jólin. Það var lélegur brandari (sjá mynd frá Laugarvegi),“ skrifar Kristinn og vísar þar í ljósmynd sem hann birtir með færslunni.

Hann gagnrýnir jafnframt harðlega tillögur starfshóps á vegum forsætisráðherra um að gera afneitun helfararinnar refsiverða. „Það var hins vegar ekkert fyndið við tillögur starfshóps forsætisráðherra sem lagði til að gera afneitun helfarar gyðinga refsiverða. Það er einfaldlega ekki rétt að gera fávitahátt að hegningarlagabroti.“

Varar við aðild Íslands að IHRA

Kristinn segir að enn alvarlegri hafi verið tillaga um að Ísland gengi í International Holocaust Remembrance Alliance. Hann segir að í skýrslu starfshópsins hafi verið látið ósagt að skilgreiningar IHRA á gyðingahatri hafi verið notaðar sem pólitískt vopn.

„Hin tillagan var verri en hún fól í sér að Ísland gengi í IHRA … en ósagt var í skýrslu starfshópsins að viðmið IHRA um hvað telst gyðingahatur hefur verið vopn Ísraelista til að kæfa gagnrýni á stjórnvöld í Ísrael meðal annars fyrir helförina gegn Palestínumönnum,“ skrifar hann og bætir við: „Það má aldrei verða að Ísland gerist aðili að IHRA.“

„Lágkúrugull liðinnar viku“

Að lokum beinir Kristinn spjótum sínum að ummælum varaformanns Sjálfstæðisflokksins um Palestínumenn. Hann segir þau hafa verið botninn á umræðu vikunnar.

„Rétt að nefna í þessum pakka heimskuleg ummæli varaformanns Sjálfstæðisflokksins um Palestínumenn sem eigi að senda heim í „friðinn“ . Það var lágkúrugull liðinnar viku í pólitíkinni – þrátt fyrir harða samkeppni,“ skrifar Kristinn.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Harður árekstur á Grensásvegi
Innlent

Harður árekstur á Grensásvegi

Landsbankinn mokar inn peningum
Peningar

Landsbankinn mokar inn peningum

Laugardalsmaður dæmdur fyrir hylmingu
Innlent

Laugardalsmaður dæmdur fyrir hylmingu

Sorrý ég hélt að þetta væri skólablýantur
Skoðun

Davíð Már Sigurðsson

Sorrý ég hélt að þetta væri skólablýantur

Ákærður fyrir skjalafals og brot á útlendingalögum
Innlent

Ákærður fyrir skjalafals og brot á útlendingalögum

Rándýr Vesturbæjarperla á sölulista
Myndir
Fólk

Rándýr Vesturbæjarperla á sölulista

Lögreglan gerir athugasemd við orðanotkun fjölmiðla
Innlent

Lögreglan gerir athugasemd við orðanotkun fjölmiðla

Maður varð fyrir hrottalegri hópárás ungmenna
Innlent

Maður varð fyrir hrottalegri hópárás ungmenna

Rússneskur hermaður myrti konu eftir fimm klukkustunda gíslatöku
Heimur

Rússneskur hermaður myrti konu eftir fimm klukkustunda gíslatöku

Frjósemisklíník klúðraði glasafrjóvgun
Heimur

Frjósemisklíník klúðraði glasafrjóvgun

Fréttamaðurinn Don Lemon handtekinn vegna mótmæla gegn ICE
Myndband
Heimur

Fréttamaðurinn Don Lemon handtekinn vegna mótmæla gegn ICE

Listería í íslenskum grænmetisbollum
Innlent

Listería í íslenskum grænmetisbollum

Innlent

Segir þrýsting Ísraela aukast á Íslandi
Innlent

Segir þrýsting Ísraela aukast á Íslandi

„Það má aldrei verða að Ísland gerist aðili að IHRA.“
Maður varð fyrir hrottalegri hópárás ungmenna
Innlent

Maður varð fyrir hrottalegri hópárás ungmenna

Harður árekstur á Grensásvegi
Innlent

Harður árekstur á Grensásvegi

Laugardalsmaður dæmdur fyrir hylmingu
Innlent

Laugardalsmaður dæmdur fyrir hylmingu

Ákærður fyrir skjalafals og brot á útlendingalögum
Innlent

Ákærður fyrir skjalafals og brot á útlendingalögum

Lögreglan gerir athugasemd við orðanotkun fjölmiðla
Innlent

Lögreglan gerir athugasemd við orðanotkun fjölmiðla

Loka auglýsingu