1
Pólitík

Viktor Orri hæðist að Snorra Mássyni

2
Innlent

Nína Richter lýsir kynbundnu vinnustaðaeinelti á fjölmiðli

3
Fólk

Kópavogshöll með flugvélaskúr til sölu

4
Innlent

Sérsveitin áberandi á höfuðborgarsvæðinu í dag

5
Innlent

„Ég stend með þolendum kynferðisofbeldis, alltaf“

6
Innlent

Fannar var hræddur við marga á Stuðlum

7
Fólk

Glúmur gat ekki brosað til gullfallegrar konu

8
Heimur

Vinur Vilhjálms prins féll til bana af hótelþaki

9
Innlent

Spáir að dómsmálaráðherra víki ríkislögreglustjóra tímabundið

10
Innlent

Hópuppsögn hjá Icelandair

Til baka

Segist hafa orðið vitni að hrottalegri líkamsárás leigubílstjóra

„Konan var alblóðug í framan og á höndum“

Leigubílar í röð
Leigubílar að bíða eftir farþegumMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Víkingur

Íslensk athafnakona, sem ekki vill koma fram undir nafni, segir frá grimmu ofbeldi sem hún varð vitni að síðustu nótt en að hennar sögn var gerandi leigubílstjóri og fórnarlambið ung kona.

„Ég vaknaði við hræðileg stingandi öskur á hjálp fyrir utan heimili mitt í nótt. Þar var ung kona sem var verið að draga út úr leigubíl og var hún barin, tekin hálstaki, dregin á fótunum á blautri götunni, öskrað á ,kölluð niðrandi orðum og að lokum ók hann á hana og bakkaði og keyrði burt. Ég hélt að það væri verið að drepa hana,“ segir konan í færslu, sem nú hefur verið eytt.

„Við vorum mörg sem sáum þetta allt og líka börn. Konan var alblóðug í framan og á höndum og í miklu sjokki og kallaði til mín og bað mig að koma til sín. Ég hljóp út til hennar og þá voru fleiri grannar komnir út til að hlúa að henni. Við vorum nokkur sem hringdum í lögregluna sem kom að mér fannst um 10 mínútum síðar og sjúkrabíll í kjölfarið,“ heldur hún áfram.

Konan faðmaði athafnakonuna í framhaldinu og sagðist ekki vilja fara ein inn í bíl með lögreglunni og bað hana að koma með sér. Hún hafi verið lafandi hrædd.

Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu
Lögreglan mætti á svæðið
Mynd: Víkingur

„Ég veit að þetta var tilkynnt til nokkra fjölmiðla í dag, ekki af mér heldur af öðrum sem voru vitni að þessum hræðilega atburð en engin hefur fjallað um þetta mál. Í tilkynningu kemur meðal annars fram að leigubílsstjórinn hafi verið stór þrekinn af erlendum uppruna,“ segir athafnakonan. Rétt er að taka fram að Mannlífi hefur ekki borist tilkynning um þetta mál.

Vitnið segist hafa séð leigubílstjórann vel. „Hann öskraði eins og ljón og var sturlaður af reiði við konuna og meðferðin hrikaleg þó svo að hann hafi séð okkur nokkur út um gluggana okkar kallandi á hann að biðja hann um að stoppa. Ég sá líka bílinn vel og ein náði bílnúmerinu. Lögreglan hafði ekki mikin áhuga á að fá að ræða við þá sem sáu allt. Lögreglan sagði líka hluti við konuna sem við hefðum ekki átt að heyra sem vorum stödd þarna. Trúnaðarmál,“ segir konan um manninn og málið.

„Ég ætlaði ekki að þora að segja frá þessu hér en við höfum öll samfélagslega ábyrgð og ég ætla að hafa þetta hér í kvöld og mikið vona ég að þessi leigubílstjóri hafi verið handtekinn , missi leyfið (ef hann er með leyfi) og að unga konan sé í lagi. Miðað við þessa hræðilegu reynslu.“

Konan segir í lokin að það eigi að felast öryggi í því að taka leigubíl heim til sín og spyr svo hvert við séum komin sem samfélag.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Upprættu sjö ofbeldisfull glæpasamtök á Costa del Sol
Heimur

Upprættu sjö ofbeldisfull glæpasamtök á Costa del Sol

Reyndu meðal annars að myrða tvo Svía
Lögreglan varar við vasaþjófum á höfuðborgarsvæðinu
Innlent

Lögreglan varar við vasaþjófum á höfuðborgarsvæðinu

Harrý snertir hjartastrengi þegna sinna
Heimur

Harrý snertir hjartastrengi þegna sinna

Samkomulag Íslands við Kína í höfn
Innlent

Samkomulag Íslands við Kína í höfn

Spáir að dómsmálaráðherra víki ríkislögreglustjóra tímabundið
Innlent

Spáir að dómsmálaráðherra víki ríkislögreglustjóra tímabundið

Barbie-áhrifavaldur fannst látinn heima hjá sér
Heimur

Barbie-áhrifavaldur fannst látinn heima hjá sér

Tvær breytingar á hópi Arnars
Sport

Tvær breytingar á hópi Arnars

Árbæingur ákærður fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot
Innlent

Árbæingur ákærður fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot

Sextán ára stúlka á Gaza lætur pensilinn tala fyrir börnin
Heimur

Sextán ára stúlka á Gaza lætur pensilinn tala fyrir börnin

Neyðarkallinn heiðrar minningu Sigurðar Kristófers
Innlent

Neyðarkallinn heiðrar minningu Sigurðar Kristófers

Sjarmerandi og sögufræg miðbæjarperla til sölu
Myndir
Fólk

Sjarmerandi og sögufræg miðbæjarperla til sölu

Innlent

Lögreglan varar við vasaþjófum á höfuðborgarsvæðinu
Innlent

Lögreglan varar við vasaþjófum á höfuðborgarsvæðinu

Þrjú nýleg dæmi um þjófnað á greiðslukortum
Sérsveitin áberandi á höfuðborgarsvæðinu í dag
Innlent

Sérsveitin áberandi á höfuðborgarsvæðinu í dag

Samkomulag Íslands við Kína í höfn
Innlent

Samkomulag Íslands við Kína í höfn

Spáir að dómsmálaráðherra víki ríkislögreglustjóra tímabundið
Innlent

Spáir að dómsmálaráðherra víki ríkislögreglustjóra tímabundið

Árbæingur ákærður fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot
Innlent

Árbæingur ákærður fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot

Neyðarkallinn heiðrar minningu Sigurðar Kristófers
Innlent

Neyðarkallinn heiðrar minningu Sigurðar Kristófers

Loka auglýsingu