
Ísraelskir hermenn eru sagðir hafa beitt eins árs barn pyntingum á miðsvæði Gaza til að þvinga föður þess til að játa við yfirheyrslu. Þetta greinir Palestine TV frá með vísan til palestínska blaðamannsins Osama Al-Kahlout.
Sjónvarpsstöðin birti myndir sem sýna áverka á barninu, sem er nefnt Karim, eftir að það var handtekið af ísraelskum hermönnum nærri flóttamannabúðunum Al-Maghazi á miðju Gaza-svæðinu.
Samkvæmt vitnum hafði faðir barnsins, Osama Abu Nassar, orðið fyrir miklu áfalli eftir að hestur hans, sem hann notaði til að afla tekna, drapst. Þegar hann var á leið með barnið sitt til að kaupa nauðsynjar lenti hann í skothríð nálægt heimili sínu. Hermenn neyddu hann þá til að skilja 18 mánaða gamlan son sinn eftir á jörðinni og ganga að nærliggjandi eftirlitsstöð, þar sem hann var afklæddur og yfirheyrður.
Fullyrt er að hermennirnir hafi pyntað barnið fyrir framan föðurinn, meðal annars með því að brenna annan fót þess með sígarettum, og stinga nagla í fót þess, samkvæmt læknisvottorði.
Í vottorðinu kemur fram að barnið hafi hlotið brunasár eftir sígarettur og stungusár á fæti vegna nagla.
Barninu var sleppt um tíu klukkustundum síðar og afhent fjölskyldu sinni í gegnum Alþjóða Rauða krossinn í Al-Maghazi. Faðirinn er enn í haldi ísraelskra yfirvalda.
Fjölskyldan hefur óskað eftir því að alþjóðastofnanir grípi inn í til að tryggja lausn föðurins svo hann geti haldið áfram læknismeðferð.
Samkvæmt heilbrigðisyfirvöldum á Gaza hafa að minnsta kosti 677 Palestínumenn látið lífið og 1.813 særst í árásum Ísraels frá því að vopnahlé tók gildi í október 2025.
Vopnahléið átti að binda enda á tveggja ára stríð sem hefur kostað yfir 72.000 Palestínumenn lífið og meira en 171.000 hafa særst frá október 2023, auk þess sem um 90% borgaralegra innviða hafa orðið fyrir eyðileggingu. Fjölmargar mannúðarstofnandir og sérfræðingar segja að um sé að ræða þjóðarmorð.

Komment