Lítið einbýli að Rómarstíg 2 á Suðureyri hefur verið sett á sölu á 7,9 milljónir króna.
Um er að ræða 21,7 fermetra hús sem telst með allra minnstu einbýlum landsins.
Húsið er byggt úr timbri og samanstendur af einu opnu rými. Það var upphaflega reist sem þjónusturými en býður upp á ýmsa möguleika fyrir nýtingu. Innandyra er parket á gólfum og veggir klæddir hvítmáluðum panel.
Allar helstu veitur eru tengdar við húsið, þar á meðal rafmagn, vatn og fráveita. Upphitun er með rafmagni. Ekki liggja fyrir upplýsingar um byggingarár eignarinnar.
Eignin vekur athygli fyrir smæð sína en sala á svo litlu einbýli er fremur óalgeng hér á landi. Ekki voru birtar myndir innan úr húsinu en það er allavega glæsilegt að utan.


Komment