1
Fólk

Björgvin Franz kominn með kærustu

2
Minning

Egill minnist Björns sem lést í hitabylgjunni í París

3
Pólitík

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum

4
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

5
Fólk

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum

6
Minning

Leikkonan Þrúður Vilhjálmsdóttir látin

7
Minning

Megas er látinn

8
Heimur

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi

9
Landið

Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust

10
Heimur

Rússar bókstaflega farnir að slást um bensíndropana

Til baka

Netsvindlarar notfæra sér andlát Davíðs Odddsonar í gróðaskyni

Lofa milljónum í nafni Davíðs í „RÚV-frétt“.

Davíð Oddsson
Davíð OddssonSvikahrappar nota nafn Davíðs heitins til að reyna að ná fé af fólki

Nýtt svindl hefur farið á kreik á Facebook þar sem reynt er að hafa fé af fólki með falsaðri frétt sem lítur út fyrir að vera frá RÚV. Í svindlinu er andlát Davíðs Oddssonar notað til að vekja athygli og byggja upp trúverðugleika.

Davíð Oddsson
Mynd: Facebook-skjáskot

Um er að ræða svokallaða „gervifrétt“ sem er sett fram með útliti og framsetningu sem líkist frétt á vef RÚV. Þar er haldið fram að Davíð hafi skilið eftir sig leynilegan fjárfestingarreikning sem hafi margfaldast í verðmæti með notkun á svokölluðum gervigreindarvettvangi.

Davíð Oddsson2
Mynd: Skjáskot

Í textanum eru settar fram óraunhæfar fullyrðingar um gríðarlega ávöxtun á skömmum tíma og lesendur hvattir til að skrá sig á fjárfestingarsíðu með lágmarksinnborgun. Þá fylgja jafnframt fölsuð ummæli og athugasemdir frá einstaklingum með íslensk nöfn til að auka trúverðugleika efnisins, þar á meðal frá ekkju Davíðs, Ástríður Thorarensen og Vilhjálmi Bjarnasyni, viðskiptafræðingi og fyrrverandi þingmanni Sjálfstæðisflokksins.

Davíð Oddsson6
Mynd: Skjáskot

Þá er einnig minnst á son Davíðs og Ástríðar, Þorstein og birt gervigreindarmynd af þeim feðgum nema hvað að „sonurinn“ er ekkert líkur hinum raunverulega syni Davíðs.

Davíð Oddsson5
Mynd: Skjáskot

Líkist frétt en er augljóst svindl

Í textanum eru settar fram óraunhæfar fullyrðingar um gríðarlega ávöxtun á skömmum tíma og lesendur hvattir til að skrá sig á fjárfestingarsíðu með lágmarksinnborgun. Þá fylgja jafnframt fölsuð ummæli og athugasemdir frá einstaklingum með íslensk nöfn til að auka trúverðugleika efnisins, þar á meðal frá ekkju Davíðs, Ástríður Thorarensen og Vilhjálmi Bjarnasyni, viðskiptafræðingi og fyrrverandi þingmanni Sjálfstæðisflokksins. ns sem ekki sóttist eftir lúxus“, „Fjármálastefna sem enginn vissi af“ og „Baráttan um stafræna arfleið“.

Davíð Oddsson4
Mynd: Skjáskot
Davíð Oddsson3
Mynd: Skjáskot

Í lok „fréttarinnar“ er síðan lesendum beint í skráningarferli þar sem þeir eru hvattir til að leggja inn fé með loforðum um mikinn hagnað og enga áhættu, sem eru klassísk einkenni netsvindls.

Fyrir neðan falsfréttina má svo sjá fjöldi athugasemda frá gervifólki sem bera íslensk nöfn.

„Jón Jónsson“ segir til dæmis:

„Þeir lögðu þetta nokkuð fljótt. Mjög kurteis stúlka hringdi í mig og útskýrði allt. Ég byrjaði með litla upphæð, 30.000 króna og núna er ég með meira en 1 milljón króna á reikningnum mínum. Ég er að fara í frí.“

Davíð Oddsson7
Mynd: Skjáskot

Lögreglan varar við

Slík svik eru ekki ný af nálinni en hafa færst í aukana á samfélagsmiðlum. Lögreglan hefur ítrekað varað við fjárfestingartilboðum sem lofa óraunhæfri ávöxtun, sérstaklega þegar þau eru kynnt í dulbúningi frétta eða með stuðningi nafngreindra einstaklinga sem hafa ekkert með málið að gera.

Almenningur er hvattur til að sýna aðgát, smella ekki á grunsamlega hlekki og forðast að skrá persónuupplýsingar eða leggja inn fé á óþekktum síðum.

Hvernig þekkja má netsvindl

Helstu einkenni svindls af þessu tagi eru:

  • Frétt sem virðist koma frá þekktum miðli en er í raun fölsuð
  • Óraunhæf loforð um mikinn og skjótan hagnað
  • Þrýstingur um að skrá sig strax eða „tryggja sér sæti“
  • Vitnisburðir frá óstaðfestum aðilum eða fölskum notendum
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur
Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur

Myndefni sýnir tvo menn sem lögreglan leitar nú að.
Lögreglan leitar að tveimur mönnum
Innlent

Lögreglan leitar að tveimur mönnum

„Looksmaxxing“ stjarnan Connor Murphy drukknaði í Taílandi
Heimur

„Looksmaxxing“ stjarnan Connor Murphy drukknaði í Taílandi

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann
Innlent

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann

Katie Couric missti minnið tímabundið
Heimur

Katie Couric missti minnið tímabundið

Björgvin Franz kominn með kærustu
Fólk

Björgvin Franz kominn með kærustu

Egill minnist Björns sem lést í hitabylgjunni í París
Minning

Egill minnist Björns sem lést í hitabylgjunni í París

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar
Innlent

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar

Leikkonan Þrúður Vilhjálmsdóttir látin
Minning

Leikkonan Þrúður Vilhjálmsdóttir látin

Áhyggjur af veikindum í norska liðinu
Sport

Áhyggjur af veikindum í norska liðinu

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum
Innlent

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi
Heimur

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi

Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur
Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur

Myndefni sýnir tvo menn sem lögreglan leitar nú að.
Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Lögreglan leitar að tveimur mönnum
Innlent

Lögreglan leitar að tveimur mönnum

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann
Innlent

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar
Innlent

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum
Innlent

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum

Loka auglýsingu