
Lögreglan leiðbeinir fólki á netinuSvikahrappar hafa verið að pretta fólk á Facebook
Mynd: Lára Garðarsdóttir
Í tilkynningu sem Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sendi frá sér varar hún við netsvikum í gegnum Facebook Messenger forritið
Að sögn lögreglu lýsa svikin sér þannig að fólk fær send skilaboð frá vinum eða kunningjum þar sem þeir óska eftir símanúmeri. Í kjölfarið er fólki tilkynnt að það hafi unnið verðlaun í Facebook-leik og þurfi að staðfesta vinninginn með rafrænum skilríkjum. Með þessum hætti hleypir fólk brotamönnunum inn á bankareikningana sína með tilheyrandi afleiðingum.
„Þumalputtareglan er því að senda ALDREI símanúmerið sitt í gegnum Facebook Messenger og samþykkja ALDREI rafræna auðkenningu að beiðni einhvers annars.“
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa
Komment
Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
