Glæsilegt einbýlishús við Víkurgötu 25 hefur verið sett á sölu og vekur athygli fyrir einstaka staðsetningu, vandaðan arkitektúr og umfangsmiklar framkvæmdir og auðvitað þá staðreynd að það er óklárað.
Um er að ræða 345 fermetra hús með sex svefnherbergjum sem stendur innarlega í botnlanga við götuna með óhindruðu útsýni yfir Urriðavatn og nærliggjandi náttúru.
Samkvæmt upplýsingum um eignina selst húsið á núverandi byggingarstigi í samræmi við skilalýsingu. Það verður fullbúið að utan með grófjafnaðri lóð. Að innan er húsið tilbúið undir spörslun og allir veggir hafa þegar verið reistir.
Framkvæmdir innandyra eru þó komnar langt á veg. Gólfhiti hefur verið lagður um allt húsnæðið, rafmagn er að mestu leyti ídregið og vönduð innbyggð blöndunartæki hafa verið sett upp, ásamt fleiri vönduðum lausnum.
Ásett verð eignarinnar er 298 milljónir króna.


Komment