1
Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli

2
Innlent

Óska eftir nýjum presti í Kópavogi

3
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

4
Innlent

Morðinginn Matthías kominn á Vernd

5
Innlent

Matvælastofnun varar við innkölluðum baunum

6
Pólitík

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum

7
Heimur

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“

8
Innlent

Arnar Már hrækti á lögreglumann

9
Heimur

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína

10
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

Til baka

Sólveig Anna gagnrýnir gleymsku samtímans

„Ef ég vil muna stuðning Biden við sálsjúku barnamorðingjana í Jerúsalem er ég þá að auli sem skil ekki hvað Trump er hættulegur?“

Sólveig Anna Jónsdóttir 2
Sólveig Anna JónsdóttirSólveig Anna veltir fyrir sér minnisleysi samtímans
Mynd: Bára Huld Beck

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, deildi í gær löngum og persónulegum hugleiðingum á Facebook þar sem hún rifjar upp reiði sína og vanmátt gagnvart utanríkisstefnu Bandaríkjanna á síðustu áratugum. Tilefnið er draumur sem hún segist hafa fengið um George W. Bush, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, sem hún telur bera ábyrgð á fjöldamorðum, pyntingum og innrásum í nafni heimsveldisins Bandaríkjanna.

„Mig dreymdi GWB í nótt. Hann hafði fyrirskipað að einhver yrði kyrktur – ég komst í mikið uppnám og sagðist ætla að kyrkja hann,“ skrifar Sólveig Anna og segir drauminn sennilega tengjast lestri hennar á bókinni The Obama Syndrome eftir Tariq Ali.

Hún lýsir því hvernig hugurinn hafi dregið hana „ofan í viðbjóðslega kjallara morðingja og pyntara heimsveldisins“ og rifjar upp þá reiði sem hún upplifði árum saman vegna „getuleysis míns til að gera nokkuð til að stoppa hryllinginn.“

Ísland og þátttaka í stríðum

Sólveig Anna segist hafa upplifað síðasta alvöru „bræðis-kastið“ þegar Ísland, undir stjórn vinstri flokka, studdi svokallaða R2P-kenningu og tók þátt í loftferðabanni yfir Líbíu.

„Síðasta alvöru bræðis-kastið sem ég fékk var þegar Ísland undir stjórn vinstri flokkanna sagðist hafa R2P og tók þátt í svokölluðu loftferðabanni á Líbíu sem hafði þær afleiðingar að hrein upplausn lagðist yfir landið og ríkir þar enn,“ skrifar hún.

Hún segist þá hafa orðið „í alvöru fullorðin í utanríkismálum“ og dregur þá ályktun að íslensk stjórnvöld lúti á endanum alltaf raunverulegu yfirvaldi.

„Á endanum munu öll sem komast til valda í lýðveldinu kasta sér niður frammi fyrir hinu raunverulega yfirvaldi og skipunum úr herbúðum þess. Engin mun standa upprétt – engin mun fær um öfgaleysi í framkomu við fjarlæg lönd og þjóðir.“

Gagnrýni á „öfgaleysi“ og sögulegt minnisleysi

Sólveig Anna segist hafa rifjað upp þessa hluti í kjölfar viðtals við formann Framsóknarflokksins þar sem hann lýsir flokknum sem flokki öfgaleysis.

„Ég minnti myndina af formanninum á þátttöku Íslands í glæpa-innrás Ameríku í Írak 2003, sem öfgalausi flokkurinn hans studdi ásamt vinum sínum í öfgalausa Sjálfstæðisflokknum,“ skrifar hún.

Hún veltir því fyrir sér hvers vegna fólk verði reitt eða háðsk þegar minnt er á glæpi Bandaríkjanna, bæði fyrir og eftir valdatöku Donalds Trump.

„GWB ber ábyrgð á fleiri morðum og meiri pyntingum en Trump – ef ég vil muna glæpi GWB er ég þá sek um að gera lítið úr geðveiki og níhílisma Trump?“ spyr hún og bætir við: „Ef ég vil muna stuðning Biden við sálsjúku barnamorðingjana í Jerúsalem er ég þá að auli sem skil ekki hvað Trump er hættulegur? Ef ég segi að ekkert land annað en Ameríka hafi kastað kjarnorkusprengju í fólk, ef ég segi að Ameríka hafi drepið allavega milljón, sennilega tvær, mögulega þrjár milljónir Víetnama - er ég þá sek um að breiða yfir staðreyndirnar um útþennslustefnu Trump og innanlandsglæpi?.“

Abu Ghraib, Víetnam og Hiroshima

Í færslunni tengir Sólveig Anna saman sögulegar myndir af ofbeldi Bandaríkjanna, allt frá Víetnam til Íraks.

„Erum við ekki nægilega góð í að berjast gegn fasískri tilhneigingu samtímans ef við viljum rifja upp Abu Ghraib – ef að myndirnar þaðan eru geymdar í skúffu í heilanum á okkur, rétt eins og myndirnar af napalm-börnunum í Víetnam eða öskustónni Hiroshima,“ skrifar hún.

Hún lýsir því hvernig þessar minningar snúi aftur, jafnvel í draumum.

„Heilinn opnar stundum skúffurnar um nætur og minnir okkur á innihaldið – minnir okkur á GWB að pynta fólk í dýflissu og við vöknum með gömlu, þungu tilfinninguna í hjartanu og þrýsting undir augnlokunum.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi
Heimur

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi

Grunaður morðingi hefur yfirgefið England
Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust
Landið

Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum
Pólitík

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Notuðu rafhlaupahjól við sölu fíkniefna
Heimur

Notuðu rafhlaupahjól við sölu fíkniefna

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

Rússar bókstaflega farnir að slást um bensíndropana
Heimur

Rússar bókstaflega farnir að slást um bensíndropana

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum
Myndband
Fólk

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“
Heimur

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“

Aftur gremja vegna Margrétar
Slúður

Aftur gremja vegna Margrétar

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína
Heimur

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Héraðsdómur Vesturlands dæmdi karlmann í fangelsi fyrir ítrekuð ofbeldisbrot gegn sambýliskonu sinni
Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi  þjóðaratkvæðagreiðslu
Innlent

Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli
Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli

Loka auglýsingu