
Séra Ragnheiður Erla Bjarnadóttir er látin.
Þjóðkirkjan greinir frá þessu í tilkynningu.
Ragnheiður fæddist í Reykjavík 7. júní 1953. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1973 og B.Sc.-prófi í líffræði frá Háskóla Íslands árið 1976, með áherslu á grasafræði. Árið 1987 lauk hún cand.theol.-prófi frá Guðfræðideild Háskóla Íslands.
Ragnheiður var skipuð sóknarprestur í Raufarhafnarprestakalli árið 1988 og gegndi því embætti til ársins 1991. Að því loknu stundaði hún nám í fornleifafræði við Boston University og lauk þaðan MA-prófi.
Hún starfaði um árabil í ferðaþjónustu sem leiðsögumaður með sérhæfingu í menningu, náttúru og sögu Íslands. Þá stundaði hún einnig söngnám bæði hérlendis og erlendis.
Ragnheiður sinnti sjálfstæðum rannsóknum, meðal annars á íslenskum altaristöflum, og heimsótti allar kirkjur landsins.
Komment