
Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur hjartalækninum Skúla Tómasi Gunnlaugssyni vegna manndráps. Rannsókn málsins hefur staðið yfir um árabil og laut að sex tilvikum, en fimm þeirra hafa nú verið felld niður. Ákæra er hins vegar gefin út í einu máli. Þetta kemur fram í frétt RÚV.
Sjá einnig: Álit landlæknis á máli Skúla læknis: „Ómeðhöndlaðar sýkingar kunni að hafa verið aðal dánarorsök“
Sjá einnig: Móðir Óla var sjúklingur Skúla: „Þú ert að fremja morð hérna beint fyrir framan okkur“
Sjá einnig: Beggi Dan: „Síðustu vikurnar í lífi móður minnar voru henni hreinasta kvalræði“
Almar Möller, verjandi Skúla Tómasar, staðfestir í samtali við fréttastofu RÚV að gefin hafi verið út ákæra í einu máli.
Skúli Tómas hefur verið til rannsóknar hjá lögreglu og héraðssaksóknara í um fimm ár, grunaður um að hafa sett sjúklinga sína á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í lífslokameðferðir án nægjanlegs tilefnis. Hann var á tímabili sviptur læknaleyfi en fékk það síðar aftur og hefur starfað á Landspítalanum undanfarin ár.
Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum var starfsframlag hans hafnað um leið og ákæran lá fyrir.
Vonbrigði
Auk Skúla voru tveir aðrir heilbrigðisstarfsmenn til rannsóknar, læknir og hjúkrunarfræðingur, en mál þeirra voru felld niður.
Almar Möller segir í samtali við RÚV að ákvörðun héraðssaksóknara sé vonbrigði. Hann eigi erfitt með að skilja ákvörðun héraðssaksóknara um að ákæra Skúla Tómas en trúi því að málsmeðferð fyrir dómi sýni fram á að ekkert refsivert hafi átt sér stað.
Skúli Tómas er ákærður fyrir manndráp og brot á lögum um heilbrigðisstarfsmenn. Til vara er hann ákærður fyrir manndráp af gáleysi og brot á sömu lögum.

Komment