1
Fólk

Jóhanna Guðrún gerði kaupmála við eiginmanninn

2
Peningar

Íslenskur auðjöfur segist hafa borgað alltof mikið í skatt

3
Fólk

LEGO-hús til sölu í Seljahverfi

4
Heimur

TikTok-stjarna líflátin opinberlega

5
Innlent

Lokaði fáklædda eiginkonu sína úti á svölum á nýársdag

6
Heimur

Féll niður brekku á Kanarí og lést

7
Innlent

Grunsamlegar mannaferðir í Árbænum

8
Fólk

Stjörnulögfræðingur vill flytja

9
Fólk

Reynir lenti í lífsháska á hæsta fjalli Afríku

10
Pólitík

Frammistaða Sigmundar Davíðs illa séð

Til baka

Sótölvaðir menn létu greipar sópa á hóteli

Hópur manna voru með ólæti inni á skemmtistað í miðborg Reykjavíkur

Lögreglan, ljós
Mynd: Shutterstock

Alls gista níu aðilar nú fangageymslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir nóttina. Skráð voru 75 mál í kerfum lögreglunnar á tímabilinu frá 17:00 í gær og til 05:00 í morgun. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar. Hér fyrir neðan má sjá nokkur dæmi um verkefni lögreglunnar á tímabilinu.

Lögreglunni sem starfar í Austur- og Vesturbæ Reykjavíkur, Seltjarnarnesi og í miðbæ Reykjavíkur, barst tilkynning um tvo þjófa á hóteli. Voru mennirnir sótölvaðir og hlýddu ekki fyrirmælum lögreglunnar. Voru þeir handteknir og er málið í rannsókn. Önnur tilkynning barst vegna manns sem lét illa og dundaði sér við að skemma sameign. Var hann vistaður í fangaklefa en málið er í rannsókn.

Sömu lögreglu barst einnig tilkynning um fáklæddan mann sem beraði sig á almannafæri. Ekki fylgdi sögunni hvort lögreglan hefði haft hendur í hári mannsins.

Þá var hópur manna með ólæti á skemmtistað í miðbænum en ekki stendur stafur um framhaldið í dagbók lögreglunnar. Á öðrum skemmtistað hafði pöddufullur maður unnið eignarspjöll en maðurinn var handtekinn og látinn gista fangaklefa.

Tilkynning barst lögreglunni um mann sem datt og hlaut skurð á höfuð. Sjúkraflutningamenn voru sendir á staðinn.

Lögreglunni sem sér um Hafnarfjörð, Garðabæ og Álftanes, barst tilkynning um sofandi mann á veitingastað. Var hann vakinn og gert að yfirgefa veitingastaðinn. Sama lögregla var kölluð að heimahúsi þar sem læti voru. Var húsráðanda gert að lækka í sér.

Þá barst lögreglunni tilkynning um líkamsárás en einn aðili var handtekinn í kjölfarið. Málið er í rannsókn.

Lögreglan sem vaktar Kópavog og Breiðholt var kölluð að heimahúsi þar sem óvelkominn aðili var en honum var gert að hypja sig.

Einnig var tilkynnt um æstan mann fyrir utan bar sem var að stofna til slagsmála og veitast að dyravörðum.

Lögreglan sem vinnur í Grafarvogi, Mosfellsbæ og Árbænum barst tilkynning um eld í ökutæki en slökkvilið var kallað út. Þá hafði sama lögregla afskipti af ökumanni sem hafði ekið út af veginum og tekið niður ljósastaur í leiðinni. Reyndist hann drukkinn og var hann vistaður í fangaklefa.

Víðsvegar um borgina bárust tilkynningar um ýmsa hluti sem fuku í hvassviðrinu, þar á meðal stillans, skilti, kerru og þakplötur.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Lokaði fáklædda eiginkonu sína úti á svölum á nýársdag
Innlent

Lokaði fáklædda eiginkonu sína úti á svölum á nýársdag

Eiginmaðurinn játaði brot sitt fyrir dómi
Áhorfendur bauluðu á Bandaríkjaforseta
Myndband
Heimur

Áhorfendur bauluðu á Bandaríkjaforseta

Stjörnulögfræðingur vill flytja
Fólk

Stjörnulögfræðingur vill flytja

Ísrael heldur áfram að takmarka aðstoð
Heimur

Ísrael heldur áfram að takmarka aðstoð

Féll niður brekku á Kanarí og lést
Heimur

Féll niður brekku á Kanarí og lést

Reynir lenti í lífsháska á hæsta fjalli Afríku
Fólk

Reynir lenti í lífsháska á hæsta fjalli Afríku

Frammistaða Sigmundar Davíðs illa séð
Pólitík

Frammistaða Sigmundar Davíðs illa séð

Íslenskur auðjöfur segist hafa borgað alltof mikið í skatt
Peningar

Íslenskur auðjöfur segist hafa borgað alltof mikið í skatt

Björn Leví hefur trú á Sjálfstæðisflokknum
Pólitík

Björn Leví hefur trú á Sjálfstæðisflokknum

Sigríður Björk lætur af embætti
Innlent

Sigríður Björk lætur af embætti

Jóhanna Guðrún gerði kaupmála við eiginmanninn
Fólk

Jóhanna Guðrún gerði kaupmála við eiginmanninn

Enski boltinn orðinn 65% dýrari á einu ári
Innlent

Enski boltinn orðinn 65% dýrari á einu ári

Innlent

Lokaði fáklædda eiginkonu sína úti á svölum á nýársdag
Innlent

Lokaði fáklædda eiginkonu sína úti á svölum á nýársdag

Eiginmaðurinn játaði brot sitt fyrir dómi
Sigríður Björk lætur af embætti
Innlent

Sigríður Björk lætur af embætti

Enski boltinn orðinn 65% dýrari á einu ári
Innlent

Enski boltinn orðinn 65% dýrari á einu ári

Boða nýjung í málefnum ungmenna
Innlent

Boða nýjung í málefnum ungmenna

Grunsamlegar mannaferðir í Árbænum
Innlent

Grunsamlegar mannaferðir í Árbænum

Loka auglýsingu