1
Innlent

Hver er Lúkas Geir?

2
Fólk

Selja miðbæjargimstein með sér bílastæði

3
Stjórnandinn

Rík af reynslu og auðmjúk eftir röð áfalla

4
Innlent

Veiðimaður ákærður

5
Innlent

Ráðist á mann við vinnu

6
Fólk

Með fallegri húsum Reykjavíkur á sölulista

7
Menning

Hinn vannýtti rababari

8
Pólitík

Vilja sterkari og skýrari hagsmunagæslu

9
Pólitík

Þorgerður Katrín ræddi við varaþjóðaröryggisráðgjafa Trump

Til baka

Svipað snjóleysi ekki sést í janúar í áratugi

„En tíðarfarið að undanförnu er samt óvenjulegt í alla staði!“

Einar Sveinbjörnsson
Einar SveinbjörnssonVeðurfræðingurinn bendir á snjóleysið

Janúarmánuður var með öllu snjólaus í Reykjavík, sem telst afar óvenjulegt að sögn Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings. Hann greinir frá þessu í Facebook-færslu þar sem hann fer yfir snjófar í höfuðborginni og setur núverandi vetur í sögulegt samhengi.

„Í nýliðnum janúar mældist enginn snjór í Reykjavík. Hann var því snjólaus með öllu!“ skrifar Einar og bendir á að þótt slíkt sé fátítt hafi það þó gerst áður. „Það er fátítt að janúar sé alauður í Reykjavík, en hefur þó komið fyrir áður. Reyndar er langt um liðið. Eftir því sem ég kemst næst var svipað upp á teningnum 1929 og 1940.“

Hann nefnir einnig að í janúar 1961 og aftur árið 2002 hafi aðeins mælst einn alhvítur dagur í hvorum mánuði. Að sögn Einars var síðast alhvít jörð í Reykjavík 16. desember síðastliðinn, og einnig föl daginn þar á undan. „Það voru einu dagarnir með snjó í desember,“ skrifar hann.

Veturinn er skilgreindur sem tímabilið frá desember til mars og er því nú rúmlega hálfnaður. Einar rifjar upp veturinn 1976–77, sem var óvenju snjóléttur í höfuðborginni. „Þá mánuði 1976-77 var óvenju snjólétt í höfuðborginni og aðeins 5 alhvítir dagar í heild sinni.“

Að hans sögn hafa alhvítir dagar í Reykjavík aðeins verið tveir það sem af er þessum vetri. „Þennan veturinn eru þeir aðeins tveir (mikla fannkoman 27. október tilheyrir haustinu),“ skrifar hann og bætir viðr„ég tel ólíklegt að það snjói næstu 7 til 10 dagana.“

Einar undirstrikar þó að óvissa sé enn um framhaldið

„Ómögulegt er að segja hvað gerist eftir miðjan mánuðinn og þá er mars allur eftir,“ skrifar hann og bætir við að þrátt fyrir það sé veðurfarið undanfarið óvenjulegt. „En tíðarfarið að undanförnu er samt óvenjulegt í alla staði! Meira um það síðar.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Þorgerður Katrín ræddi við varaþjóðaröryggisráðgjafa Trump
Pólitík

Þorgerður Katrín ræddi við varaþjóðaröryggisráðgjafa Trump

„Við höfum verið að horfa upp á vaxandi togstreitu í alþjóðasamskiptum“
Vilja sterkari og skýrari hagsmunagæslu
Pólitík

Vilja sterkari og skýrari hagsmunagæslu

Með fallegri húsum Reykjavíkur á sölulista
Myndir
Fólk

Með fallegri húsum Reykjavíkur á sölulista

Rík af reynslu og auðmjúk eftir röð áfalla
Viðtal
Stjórnandinn

Rík af reynslu og auðmjúk eftir röð áfalla

Selja miðbæjargimstein með sér bílastæði
Myndir
Fólk

Selja miðbæjargimstein með sér bílastæði

Hver er Lúkas Geir?
Nærmynd
Innlent

Hver er Lúkas Geir?

Fluttur með sjúkrabíl eftir slys í Laugardalnum
Innlent

Fluttur með sjúkrabíl eftir slys í Laugardalnum

Stefán Einar segir ESB vera eins og „fötluð frænka“
Pólitík

Stefán Einar segir ESB vera eins og „fötluð frænka“

Tengdasonur Íslands glæsilegur í veislu Vanity Fair
Fólk

Tengdasonur Íslands glæsilegur í veislu Vanity Fair

Segir ummæli Sigmundar þau ljótustu sem íslenskur stjórnmálamaður hefur sagt
Innlent

Segir ummæli Sigmundar þau ljótustu sem íslenskur stjórnmálamaður hefur sagt

Innlent

Reykvísk eiginkona vill skilja við „þræl fíknidjöfulsins“
Innlent

Reykvísk eiginkona vill skilja við „þræl fíknidjöfulsins“

Hver er Lúkas Geir?
Nærmynd
Innlent

Hver er Lúkas Geir?

Fluttur með sjúkrabíl eftir slys í Laugardalnum
Innlent

Fluttur með sjúkrabíl eftir slys í Laugardalnum

Segir ummæli Sigmundar þau ljótustu sem íslenskur stjórnmálamaður hefur sagt
Innlent

Segir ummæli Sigmundar þau ljótustu sem íslenskur stjórnmálamaður hefur sagt

Loka auglýsingu