
Hornleikarinn Þorkell Jóelsson er látinn, 73 ára að aldri. Morgunblaðið greindi frá andláti hans.
Þorkell fæddist í Reykjavík 28. maí 1952 og stundaði hann nám við Gagnfræðaskóla Brúarlands í Mosfellsbæ og lauk síðar stúdentsprófi úr hagfræðideild Verzlunarskóli Íslands. Hann hóf ungur tónlistarnám hjá Birgi D. Sveinssyni í Skólahljómsveit Varmárskóla. Síðar færði hann sig yfir á franskt horn og hóf nám við Tónlistarskólinn í Reykjavík hjá Viðari Alfreðsson. Síðar menntaði sig meira erlendis.
Þorkell starfaði sem hornleikari hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands frá árinu 1976 og var fastráðinn frá 1980 til 2015. Hann starfaði einnig lengi sem blásarakennari og stjórnaði lúðrasveitum í Mosfellsbæ og Reykjavík frá 1975 til 2025.
Hann var mikill náttúruunnandi og ferðaðist víða með fjölskyldu sinni bæði innanlands og utan.
Þorkell lætur eftir sig eiginkonu og þrjár dætur.
Komment