
Í tilkynningu frá Flying Tiger Copenhagen á Íslandi kemur fram að fyrirtækið hafi ákveðið að innkalla glös.
Vandamálið samkvæmt tilkynningu er að vörurnar innihalda aukið magn af blýi og kadmíum í prentinu á ytra byrði glasanna.
„Greining leiddi í ljós að losun þessara efna fer yfir leyfileg mörk ESB fyrir efni sem komast í snertingu við matvæli og því ætti að hætta frekari notkun vörunnar.“
Innkallaðar vörur
Glas 220 ml með litríkum blómum, vörunúmer 3060031, öll lotunúmer, selt síðan í janúar 2025.
Glas 220 ml með graskerjum, vörunúmer 3057450, öll lotunúmer, selt síðan í ágúst 2024.
Glas 220 ml með appelsínum, vörunúmer 3062993, öll lotunúmer, selt síðan í maí 2025.
Glas 220 ml með rauðum hjörtum, vörunúmer 3052986, öll lotunúmer, selt síðan í janúar 2024.
Glas 220 ml með jarðarberjum, vörunúmer 3053912, öll lotunúmer, selt síðan í febrúar 2024.
Glas 220 ml með sítrónum, vörunúmer 3055350, öll lotunúmer, selt síðan í maí 2024.

Komment