
Ungabarn lést eftir alvarlega hundsárás í bænum Redcar and Cleveland á Teesside í Englandi, en íbúar á svæðinu segja að um hafi verið að ræða stúlku sem var aðeins nokkurra mánaða gömul.
Atvikið átti sér stað í Dormanstown-hverfinu um klukkan 13:30 í gær og kallaði á umfangsmikla viðbragðsáætlun lögreglu. Vopnaðir lögreglumenn voru sendir á vettvang og sáust meðal annars á þaki bifreiðar í því sem lýst hefur verið sem „átökum“ við að minnsta kosti einn hund.
Talið er að árásin hafi átt sér stað inni á heimili en íbúar segja að kona hafi heyrst öskra „náið barninu“ eða „hjálpið barninu“ þegar árásin átti sér stað.
Samkvæmt nágrönnum slasaðist kona einnig í atvikinu og var flutt á sjúkrahús. Sjúkraflutningamenn sendu þrjár einingar á vettvang og var konan flutt á sjúkrahús til frekari meðferðar.
Lögreglan í Cleveland í Norður-Jórvíkurskíri, segir að einn hundur hafi verið felldur á vettvangi en annar hundur hafi verið haldlagður á heimilinu. Ekki liggur enn fyrir af hvaða tegund hundarnir voru.
Vitni lýsa því að hundurinn sem felldur var hafi verið grár og hvítur og líkst svokölluðum „pocket bully“. Hann hafi sést hlaupa um götur hverfisins eftir árásina.
„Þetta hefur sjokkerað alla,“ sagði einn íbúi í hverfinu. „Ég fór grátandi að sofa í gær og tók börnin mín með mér. Þetta er skelfilegt.“

Komment