HeimurKamilla drottning tekur sér pásu frá skyldum sínum: „Konungurinn er stoltur og ánægður“ Kamilla Bretlandsdrottning er að taka sér hlé eftir að hafa tekið að sér auknar konunglegar skyldur í kjölfar veikinga Karls III. Hin 76 ára eiginkona Karls III konungs hefur tekið að sér mun fleiri verkefni í kjölfar krabbameinsgreiningar konungsins. The Times segir frá því að Kamilla hafi fríað dagatalið sitt fyrir þessa viku, svo hún geti notið tímans með Karli...
HeimurSamfélagsmiðlar Meta liggja niðri á heimsvísu Miðlar samfélagsmiðlarisans Meta liggja alveg niðri víða um heim. Á Íslandi, sem og víða um heim, liggja samfélagsmiðlar Meta niðri, en engar upplýsingar hafa verið gefnar upp um ástæðu þess. Sjá má á síðunni downdetector.com, sem heldur utan um bilanir á síðum og smáforritum, að fleiri hundruð þúsund manns hefur tilkynnt um bilanir og má búast við að talan sé...
HeimurFimm létust í flugslysi í Nashville: „Höggið var skelfilegt og enginn lifði af“ Fimm létust þegar eins hreyfils flugvél hrapaði nálægt hraðbraut í Nashville, Bandaríkjunum. Flugvélin hrapaði eftir að hafa flogið framhjá Charlotte Pike-afreininni, sagði lögreglan í færslu á samfélagsmiðlinum X og bætti við að unnið væri að því að ákvarða hvaðan flugvélin var að koma. Alríkisflugmálastjórnin er nú á vettvangi og samgönguöryggisráðið er væntanlegt síðar í dag, að sögn lögreglu. Flugturninn á...
HeimurSást til Kate Middleton í fyrsta skipti í marga mánuði – MYND Sást loksins til hennar. Loksins hefur sést til Kate Middleton en prinsessan hefur haldið sig úr sviðsljósinu síðan í desember en hún fór í aðgerð á kvið um miðjan janúar. Ýmsar samsæriskenningar hafa flogið hátt á internetinu í fjarveru hennar en nú virðist vera að hún sé komin aftur á stjá. Prinsessan sást í gær með móður sinni í bíl...
HeimurMissti fimm mánaða tvíbura sína í loftárás Ísraela: „Ég fékk ekki nóg af þeim“ Það tók Raniu Abu Anza 10 ár og þrjár umferðir af tæknifrjóvgun að verða ólétt en aðeins nokkrar sekúndur að missta fimm mánaða gömlu tvíbura sína, strák og stelpu. Ísraelski herinn gerði árás á heimili stórfjölskyldu hennar í Rafah í suðurhluta Gaza seint á laugardag, og drápu börn hennar, eiginmann og 11 aðra ættingja og níu til viðbótar er saknað...
HeimurNetverjar hæðast að rödd hlaupadrottningar: „Hún á betra skilið“ Sögð hljóma eins og Mikki Mús. Viðtal við hollensku hlaupadrottninguna Femke Bol fer nú eins og eldur um sinu á internetinu en ástæðan er sú að hún er sögð vera með rödd sem svipar mikið til Mikka Mús. Bol er ein fremsta íþróttamanneskja Hollands í dag og sérhæfir hún sig í 400 metra hindrunarhlaupi en hún hefur verið sú talin...
HeimurHópslagsmál og skotárás í skemmtigarði í Bandaríkjunum – MYNDBAND Unglingar létu öllum illum látum í skemmtigarði í Bandaríkjunum um síðustu helgi. Gestir í skemmtigarðinum Six Flags í Georgíu-fylki í Bandaríkjunum urðu vitni að skelfilegum hópslagsmálum í garðinum laugardagskvöldið 2. mars en var þetta opnunarkvöld skemmtigarðsins. Lögregluyfirvöld á svæðinu segja að 500-600 unglingar hafi verið með uppþot sem hafi þróast yfir í hópslagsmál milli unglingana og urðu aðrir gestir mjög...
HeimurMágkona Justin Biebers handtekin fyrir að henda notuðum túrtappa í barþjón Alaia Baldwin, mágkona Justin Biebers, var handtekin og ákærð á dögunum fyrir líkamsárás. Ku hún hafa hent notuðum túrtappa í barþjón og ráðist á nokkra barþjóna í Savannah, í Georgíu í Bandaríkjunum. Samkvæmt lögregluskýrslum sem fréttamiðillinn ET hefur undir höndunum kemur fram að lögreglunni hafi borist tilkynning um klukkan hálf þrjú að nóttu. Alaia hafði verið vísað út af starfsfólki...
HeimurLögreglan í skotbardaga við eftirlýstan hjólareiðamann – MYNDBAND Skothríð lögreglu náðist á upptöku. Lögreglumenn í Norður-Karólínufylki í Bandaríkjunum skutu mörgum skotum á hjólreiðamann og náðist það á upptöku. Atvikið átti sér stað fyrr í þessari viku. Ástæða viðbragða lögreglu var að hjólreiðamaðurinn var eftirlýstur fyrir að hafa skotið annan mann að ástæðulausu fyrir framan grunnskóla skömmu áður. Hinn 38 ára Savell Hightower var handtekinn eftir skotbardaga við lögreglu...
HeimurÍsraelsher sakaður um að skjóta á hungraða Gaza-búa: „Algerlega óviðunandi blóðbað“ Yfirmaður Sameinuðu þjóðanna hefur hvatt til óháðrar rannsóknar á dauða meira en 100 Palestínumanna á meðan hjálpargögn voru send á Gaza. Að minnta kosti 117 dóu í skotárás Ísraelshers í gærkvöldi, á hóp hungraðra Gaza-búa sem safnast hafði saman við vörubíla sem fluttu þeim mat. Um 760 særðust. António Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, fordæmdi atvikið og sagði „örvæntingarfulla almenna borgara“...
HeimurVitni í máli Madeleine McCann stígur fram: „Hann fullvissaði mig um að barnið myndi ekki skaðast“ Hinn grunaði í hvarfi Madeleine McCann, er sagður hafa unnið á tapasbarnum sem foreldrar stúlkunnar borðuðu kvöldmat á daglega í fríi þeirra á Algarve. Breti sem bjó á svæðinu segist hafa heyrt af barnaránsáætlun viku áður en stúlkan hvarf. Christian Brueckner hafði að sögn unnið á barnum þar sem Kate og Gerry McCann voru að borða með vinum kvöldið sem...
HeimurTalsmaður utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna hló að athugasemd blaðamanns: „Góður þessi!“ Matthew Miller, talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins hló vandræðalega er blaðamaður skaut inn athugasemd á blaðamannafundi í gær. Talsmaður utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna, Matthew Miller, ræddi ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í gær. Nokkuð vandræðalegt augnablik varð á fundinum þegar Miller ræddi um samskipti Bandaríkjanna og Ísraels. „Ísrael, líkt og önnur lönd á svæðinu, er fullvalda ríki, sem tekur sínar...