Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Missti fimm mánaða tvíbura sína í loftárás Ísraela: „Ég fékk ekki nóg af þeim“

Missti fimm mánaða tvíbura sína í loftárás Ísraela: „Ég fékk ekki nóg af þeim“
Rania Abu Anza Mynd: Trausti Hafsteinsson

Það tók Raniu Abu Anza 10 ár og þrjár umferðir af tækni­frjóvgun að verða ólétt en aðeins nokkrar sek­úndur að missta fimm mán­aða gömlu tví­bura sína, strák og stelpu.

Ísra­elski her­inn gerði árás á heim­ili stór­fjöl­skyldu hennar í Rafah í suð­ur­hluta Gaza seint á laug­ar­dag, og drápu börn hennar, eig­in­mann og 11 aðra ætt­ingja og níu til við­bótar er saknað undir rúst­unum, að sögn eft­ir­lif­enda og heil­brigð­is­yf­ir­valda á staðnum.

Árásin

Hún hafði vaknað um tíu­leytið til að gefa Naeim, stráknum, brjóst og fór aftur að sofa með hann á öðrum hand­leggnum og Wissam, stelpuna, á hinum. Maðurinn hennar svaf við hlið þeirra.

Spreng­ingin kom einum og hálfum klukku­tíma síðar. Húsið hrundi.

„Ég öskr­aði eftir börn­unum mínum og eig­in­manni,“ sagði hún í gær við AP frétta­stof­una, þar sem hún grét og rugg­aði sér hald­andi barna­teppi þétt upp að sér. „Þau voru öll dáin. Faðir þeirra tók þau og skyldi mig eftir.“

Hún lok­aði aug­unum, hall­aði höfð­inu að veggnum og klapp­aði teppa­búnt­inu með róandi lát­bragði, sem hún hafði loks­ins fengið tæki­færi til að sýna.

Loft­árásir Ísra­els­hers hafa reglu­lega lent á fjöl­mennum fjöl­skyldu­heim­ilum frá því stríðið hófst á Gaza, jafn­vel í Rafah, sem Ísrael lýsti sem öruggu svæði í októ­ber en er nú næsta skot­mark hrika­legra árása þeirra.

Loft­árás­irnar koma oft án við­vör­unnar, vana­lega um miðja nótt.

Ísraelar segj­ast reyna að forð­ast að skaða óbreytta borg­ara og kenna her­skáum armi Hamas um dauða þeirra og segja þá stað­setja bar­daga­menn, jarð­göng og eld­flauga­árásir í þéttum íbúða­hverfum. En her­inn tjáir sig sjaldan um ein­staka árásir, sem oft drepa konur og börn.

Í gær tjáði her­inn sig ekki um árás­ina en sagð­ist „fara eftir alþjóða­lögum og geri raun­hæfar var­úð­ar­ráð­staf­anir til að draga úr skaða borg­ara.“

Af þeim 14 sem voru drepin í húsi Abu Anza, voru sex þeirra börn og fjögur þeirra konur, sam­kvæmt Dr. Marwan al-Hams, for­stjóra spít­al­ans sem líkin voru flutt í. Auk eig­in­manns hennar og barna, missti Rania einnig systur sína, frænda sinn, ólétta frænku sína auk ann­arra ætt­ingja.

Ættingi hennar, Farouq Abu Anza, sagði að um 35 manns hafi verið í hús­inu, sum hver partur af þeim fjöl­mörgu sem misst höfðu heim­ili sín áður. Sagði hann fólkið hafa verið óbreytta borg­ara, að mestu börn og að eng­inn bar­daga­maður hafi verið meðal þeirra.

Reyndu í áratug

Rania og eig­in­maður hennar, Wissam, bæð 29 ára, eyddu ára­tug í að reyna að eign­ast börn. Tvær tækni­frjóvg­anir höfðu mis­tek­ist en snemma á síð­asta ári fengu þau þær fréttir að hún væri orðin ólétt, eftir þriðju tækni­frjóvg­un­ina. Tví­burarnir fæddur 13. októ­ber.

Að hennar sögn var eig­in­maður hennar, dag­launa­maður, svo stoltur að hann krafð­ist þess að fá að skýra dóttur sína eftir honum.

„Ég fékk ekki nóg af þeim,“ sagði hún. „Ég sver að ég fékk ekki nóg af þeim.“

Minna en viku áður höfðu bar­daga­menn Hamas ráð­ist inn í suð­ur­hluta Ísrael í óvæntri árás þar sem um 1200 manns var drepin, að mestu leiti óbreyttir borg­arar. Þá voru 250 teknir í gísl­ingu, þar á meðal börn og unga­börn.

Örvænting

Ísrael svar­aði með einni mann­skæð­ustu og mest eyði­leggj­andi her­ferð í seinni tíð. Stríðið hefur drepið yfir 30.000 Palest­ínu­menn, sam­kvæmt heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu á Gaza. Um 80 pró­sent íbúa Gaza, sem eru 2,3 millj­ónir, hafa flúið heim­ili sín og fjórð­ungur íbú­anna stendur frammi fyrir hung­ursneið.

Ráðu­neytið sagði í síð­asta mán­uði að meira en 12.300 palest­ínsk börn og ungir ung­lingar hefðu verið drepnir í stríð­inu, um 43 pró­sent af heild­ar­fjölda lát­inna. Konur og börn sam­an­lagt eru þrír fjórðu þeirra sem hafa lát­ist. Ráðu­neytið gerir ekki grein­ar­mun á óbreyttum borg­urum og stríðs­mönnum í tölum sínum.

Ísrael seg­ist hafa drepið yfir 10.000 bar­daga­menn Hamas en hafa ekki sýnt neinar sann­anir fyrir því.

Fyrir börnin sem lifa af hefur stríðið gert lífið að hreinu hel­víti, segja mann­úð­ar­starfs­menn, og að sem sum þeirra á norð­ur­hluta Gaza séu óbjarg­andi.

„Van­mátt­ur­inn og örvænt­ingin meðal for­eldra og lækna við að átta sig á því að björg­un­ar­að­stoð, í aðeins nokk­urra kíló­metra fjar­lægð, er haldið utan seil­ingar, hlýtur að vera óbæri­leg, en enn verra eru ang­ist­aróp þess­ara barna sem deyja hægt og rólega frammi fyrir augum heims­ins,“ sagði svæð­is­stjóri UNICEF, Adele Khodr, í yfir­lýs­ingu í gær.

Fram að gær­deg­inum hafði Abu Anza fjöl­skyldan verið nokkuð heppin. Rafah hafði sloppið við hina gríð­ar­leg eyði­legg­ingu sem Norður-Gaza hlaut, sem og borgin Khan Younis í Suður-Gaza, þar sem Ísra­elskir skrið­drekar og fót­göngu­liðar hafa barist blokk fyrir blokk, við víga­menn Hamas, eftir öldu loft­árása. Þá er Rafah einnig hluti af sífellt minnk­andi svæði þar sem enn er hægt að fá ein­hverja mann­úð­ar­að­stoð.

En Ísrael hefur sagt að Rafah sé næst og að um það bil 1,5 milljón manns sem sótt hefur þar skjól, verði fært annað, án þess að gefa upp hvert.

„Við höfum engan rétt,“ sagði Rania. „Ég missti fólkið sem var mér kær­ast. Ég vil ekki búa hér. Ég vil kom­ast burt úr þessu landi. Ég er þreytt á þessu stríði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife