HeimurNeyðist til að gefa börnum sínum dýrafóður: „Ástand okkar er hörmulegt“ Um Saher al-Amoudi neyðist til að vera skapandi í matargerð sinni. Hún býr nú til steiktar pönnukökur úr möluðu dýrafóðri sem hún kryddar með salti og öðru kryddi. Hún býr ásamt börnum sínum á Gaza. Konan býr með átta fjölskyldumeðlimum sínum á leikvelli UNRWA-skólanum í Jabalia flóttamannabúðunum í norðurhluta Gaza, eftir að heimili þeirra var eyðilagt. Hún harmar takmarkaða möguleika...
HeimurSjúkdómar herja á Gaza-búa: „Skelfilega flókið að koma í veg fyrir smit“ Sjúkdómara fara vaxandi á Gaza og læknir frá Al-Aqsa sjúkrahúsinu í Deir al-Balah segir að ómögulegt sé að koma í veg fyrir útbreiðslu þeirra. „Síðustu vikuna höfum við verið að glíma við tugi tilfella af lifrarbólgu A veirunnar, sem smitast um munn í gegnum mengaðan mat eða mengað vatn. Ekki nóg með það, tölur um maga- og garnabólgu, sýkt sár...
HeimurNetanyahu viðurkennir ekki lögmæti réttarhaldanna í Haag: „Hönnuð til að skaða rétt Ísraels“ Benjamin Netanyahu segir að ísraelsk yfirvöld viðurkenni ekki lögmæti yfirstandandi málsmeðferðar gegn Ísrael hjá Alþjóðaglæpadómstólnum í Haag. Í ljósi þess að yfirheyrslur við Alþjóðadómstólinn vegna hernáms Ísraels munu halda áfram á morgun, hefur skrifstofa Benjamins Netanyahus, forsætisráðherra Ísraels, gefið út yfirlýsingu þar sem hann segist ekki viðurkenna lögmæti yfirstandandi málsmeðferðar. Í yfirlýsingunni sagði að réttarhöldin væru „hönnuð til að skaða...
HeimurÞrjú ung börn fundust látin á heimili sínu: „Þetta er hræðilegur og afar átakanlegur harmleikur“ Móðir er í haldi lögreglu eftir að þrjú börn hennar fundust látin á heimili hennar í Bristol-borg. Kona, sem þekkt er undir nafninu Jasmine, er í gæsluvarðhaldi lögreglunnar á sjúkrahúsi, eftir að lögreglan uppgötvaði sér til skelfingar, eftir að hafa farið í velferðarathugun að heimili Jasmine um klukkan 12:40 í gær, að þrjú börn hennar, sjö ára drengur, þriggja ára...
HeimurHundar réðust á eiganda sinn og drápu hann Hundaræktandi lifði ekki af árás hunda. Í gær fundust líkamsleifar hundaræktanda í Compton í Los Angeles í Kaliforníuríki í Bandríkjunum en samkvæmt lögreglu staðarins lést maðurinn, á fimmtudaginn, eftir árás hunda sem hann var að rækta. Nágranni mannsins tilkynnti atvikið til lögreglu. Ekki liggur fyrir af hverju hundarnir réðust á manninn en lögreglan telur að hann hafi verið að gefa...
HeimurNíu slökkviliðsmenn slösuðust í stórri sprengingu – MYNDBAND Níu slökkviliðsmenn slösuðust eftir sprengingu í Kaliforníu. Í kröftugri sprengingu sem átti sér stað í Wilmington í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum slösuðust níu slökkviliðsmenn og þar af tveir alvarlega. Voru þeir á staðnum til að slökkva eld sem hafði komið upp í bíl snemma morguns á fimmtudag. Náðist atvikið á myndband og er í raun ótrúlegt að enginn hafi látist en...
HeimurNavalny sagður hafa fengið blóðtappa – Ekki vitað hvar hann verður krufinn Rússneski stjórnarandstæðingurinn Alexei Navalny lést í fangelsi í morgun, 47 ára að aldri. Alexei Navalny, sem lengi hefur verið þyrnir í augum Vladimir Putins, Rússlandsforseta, er látinn. Samkvæmt rússneska útlagamiðlinum Meduza er dánarorsök Alexei Navalny, sögð vera blóðtappi en í fréttum ríkismiðla í Rússlandi var sagt að hann hafi hnigið niður eftir göngutúr í alríkisfangelsinu sem hann afplánaði 19 ára...
HeimurLögreglan birtir teikningu af morðingja Rachel Morin Sex mánuðum eftir að fimm barna móðirin Rachel Morin var myrt af óþekktum aðila, á göngustíg nærri heimili sínu í Maryland, hafa lögregluyfirvöld á svæðinu birt teikningu af hinum grunaða. Vonast lögreglan til þess að teikningin hleypi nýju lífi í málið. Mannlíf hefur flutt fjölmargar fréttir af málinu en Rachel Morin var fimm barna móðir sem fór út að skokka...
HeimurBlaðaljósmyndari á Gaza birtir mynd sem hann getur ekki gleymt – Alls ekki fyrir viðkvæma Palestínski blaðaljósmyndarinn Motaz Azaiza birti ljósmyndina sem mun aldrei renna honum úr minni, á X-inu í dag. Motaza Azaiza er þekktur blaðaljósmyndari frá Gaza-ströndinni en hann hefur verið duglegur að mynda þann hrylling sem hefur átt sér stað og er enn að eiga sér stað á Gaza, þar sem Ísraelsher stundað grimmilegan hernað gegn Hamas en Sameinuðu þjóðirnar hafa reyndar...
HeimurSálfræðingur um börnin á Gaza: „Stríðið mun skilja eftir sársaukafull ör og minningar“ Dr. Mohammed Brighieth, geðlæknir við Birzeit háskólann á hinum hernumda Vesturbakka, segir að börn á Gaza séu sérstaklega viðkvæm fyrir stríðinu sem nú geisar á Gaza og að það geti komið fram í ýmsum myndum: ótta, kvíða, panik, truflandi draumum og martröðum. „Börnin á Gaza lifa einhvers staðar á milli sálrænna áfalla og viss dauða. Vegna þess að allt sem...
HeimurKarl III rýfur þögnina eftir krabbameinsgreininguna: „Góðar hugsanir hin mesta huggun og uppörvun“ Karl III Bretakonungur tjáði sig í fyrsta sinn eftir að greint var frá að hann væri með krabbamein. Þann 10. febrúar, fimm dögum eftir að Buckingham-höll tilkynnti að Karl III hafi greinst með krabbamein, skrifaði hinn 75 ára konungur persónulegt bréf til almúgans. „Mig langar að koma á framfæri innilegasta þakklæti fyrir þau mörgu skilaboð um stuðning og góðar óskir...
HeimurLík Hindar litlu fundið í bifreið frænda hennar: „Komdu og sæktu mig“ Lík hinnar sex ára gömlu palestínsku stúlku, Hind Rajab, er fundið, auk tveggja sjúkraliða sem reyndu að bjarga henni. Mannlíf sagði frá því á dögunum að hin sex ára Hind Rajab hefði verið í svartri Kia bifreið frænda hennar og fjölskyldu hans þar sem þau gerðu tilraun til að flýja árásir Ísraelshers á Gaza-borg þann 30. janúar síðastliðinn. Skriðdrekaherdeild gerði...