Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Þrjú ung börn fundust látin á heimili sínu: „Þetta er hræðilegur og afar átakanlegur harmleikur“

Þrjú ung börn fundust látin á heimili sínu: „Þetta er hræðilegur og afar átakanlegur harmleikur“
Parhús fjöl­skyld­unnar Mynd: Trausti Hafsteinsson

Móðir er í haldi lög­reglu eftir að þrjú börn hennar fund­ust látin á heim­ili hennar í Bristol-borg.

Kona, sem þekkt er undir nafn­inu Jasmine, er í gæslu­varð­haldi lög­regl­unnar á sjúkra­húsi, eftir að lög­reglan upp­götv­aði sér til skelf­ingar, eftir að hafa farið í vel­ferð­ar­at­hugun að heim­ili Jasmine um klukkan 12:40 í gær, að þrjú börn hennar, sjö ára drengur, þriggja ára stúlka og 10 mán­aða strákur, væru dáin.

Yfir­lög­reglu­þjónn­inn Vicks Hayward-Melen, hjá Avon og Somerset lög­regl­unni, sagði við fjöl­miðla að rétt­ar­rann­sókn verði gerð á börn­unum í vik­unni, svo hægt sé að finna dán­ar­or­sök­ina. Hún hélt áfram: „42 ára kona var hand­tekin og flutt á sjúkra­hús með meiðsl sem hún hafði hlotið,“ en að þau væru „ekki lífs­hættu­leg.“

Yfir­lög­reglu­þjónn­inn Vicks Hayward-Melen

Vicks sagði við fjöl­miðla að hugur lög­regl­unnar væri hjá ást­vinum barn­anna. „Ég vil byrja á að segja að þetta er hræði­legur og afar átak­an­legur harm­leikur þar sem þrjú ung börn týndu lífi sínu. Hugur okkar er mjög með ást­vinum barn­anna, sem nú eru að ganga í gegnum skelfi­lega þrauta­göngu. Áhyggju­fullur borg­ari hafði sam­band við okkur og bað um að vel­ferð­ar­at­hugun yrði gerð hjá íbú­unum, snemma á sunnu­dags­morgun, 18, febr­úar. Lög­reglu­menn komu á stað­inn klukkan 12:40 og fundu þrjú börn látin. Krufning verður nú gerð á börn­unum til að kom­ast að dán­ar­or­sök­unum og það er mik­il­vægt að við gefum ekki frek­ari upp­lýs­ingar um þetta fyrr en rétt ferli hefur verið fram­kvæmt. Ekki er lík­legt að krufn­ing­arnar verði búnar fyrr en í fyrsta lagi um miðja þessa viku, jafn­vel í lok vik­unnar. „Formleg auð­kenn­ing hefur ekki enn átt sér stað, en við teljum að fórn­ar­lömbin séu sjö ára drengur, þriggja ára stúlka og 10 mán­aða gam­all drengur. Aðstand­endur þeirra hafa verið látnir vita og fá alla þá aðstoð og stuðn­ing sem þeir þurfa af sér­hæfðu fjöl­skyldu­á­fallateymi. 42 ára kona var hand­tekin á vett­vangi og flutt á sjúkra­hús vegna meiðsla sem hún hlaut. Ástand hennar er ekki í lífs­hættu og er hún enn í haldi lög­reglu á þess­ari stundu.“

Vicks sagði aukreitis að málið sé rann­sakað sem ein­angar atvik.

„Ein­kenn­is­klæddir lög­reglu­menn frá Hverf­is­lög­regluteym­inu munu vera á svæð­inu á næstu dögum til að veita nær­sam­fé­lag­inu full­vissu og stuðn­ing, svo vin­sam­leg­ast ræðið við okkur ef þið hafið ein­hverjar áhyggjur. Það er mik­il­vægt að leggja áherslu á að við erum að með­höndla þetta sem ein­angrað atvik og við teljum ekki að það sé nein við­var­andi hætta fyrir sam­fé­lagið.“

Þá sagði Vicks að lög­reglan væri auð­mjúk yfir við­brögðum sam­fé­lags­ins.

„Við erum auð­mjúk yfir við­brögðum sam­fé­lags­ins við þessum harm­leik. Á tímum mik­illar sorgar og van­trúar höfum við séð sjálf­sprottna umhyggju og stuðn­ing. Innan nokk­urra klukku­stunda frá því atvikið átti sér stað var stað­bundin kirkja opnuð fyrir fólk til að safn­ast saman og syrgja. Þetta er það sem að vera í sam­fé­lagi snýst um og við viljum þakka öllum þeim sem halda áfram að bjóða upp á þessa mik­il­vægu og óeig­in­gjörnu þjón­ustu.“

Og hún hélt áfram: „Dauði svo ungra barna er mikið áfall fyrir allt sam­fé­lagið og þetta atvik hefur haft mikil og djúp áhrif á okkur öll í lög­regl­unni. Við munum tryggja að allir þeir sem taka þátt í við­brögð­unum og rann­sókn­inni í kjöl­farið fái hvers kyns vel­ferð­ar­stuðn­ing sem þeir kunna að þurfa. Ég veit að fólk mun krefj­ast svara, en rann­sókn­arteymið er á allra fyrstu stigum rann­sókar sem verður mjög við­kvæm, flókin og ítar­leg og það mun taka tíma að kom­ast að öllum stað­reyndum. Við gerum ráð fyrir að við þurfum að fram­kvæma frek­ari rann­sóknir á vett­vangi það sem eftir er vik­unnar og það verða nokkrar girð­ingar á meðan við gerum þetta.“

Leigu­bíl­stjóri í Bristol, 42 ára að aldri, seg­ist hafa síð­ast séð móð­ur­ina og börnin hennar þrjú fyrir tveimur vikum síðan. „Hún var glöð. Börnin hennar voru öll glöð,“ sagði hann og bætti við að fjöl­skyldan væri partur af súd­anska sam­fé­lag­inu í Bristol. „Hún er mjög ljúf mann­eskja. Þetta er mjög sorg­legt.“

Eig­in­maður Jasminar er tal­inn vera, líkt og hún, frá Súdan, sam­kvæmt nágranna þeirra en það er ekki vitað hvort hann hafi verið á heim­il­inu þegar morðin voru framin. Gatan er í rólegu hverfi um sex kíló­metra frá mið­borg Bristol.

Sagt var frá mál­inu á Mirror.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife