HeimurKona og tvö börn urðu fyrir árás í gærkvöldi Lögreglan í London var kölluð út í gærkvöldi þegar að maður skvetti ætandi efni á konu og tvö börn. Konan var með börnin inni í bifreið sinni í Clapham-hverfinu í London þegar maðurinn skvetti á þau efninu. BBC fjallaði um málið en að sögn vitna var aðkoman átakanleg þar sem konan öskraði að hún gæti ekki séð. Þrír lögreglumenn og...
HeimurDonald Trump ætlar í „heilagt stríð“ við Taylor Swift Donald Trump kann ekki að meta Taylor Swift. Forsetinn fyrrverandi Donald Trump ætlar í stríð við söngkonuna en frá þessu greinir tímaritið Rolling Stone. Talið er líklegt að söngkonan vinsæla muni greina fljótlega frá því að hún styðji Joe Biden í næstu forsetakosningum. Trump mun vera ósáttur við að hennar miklu vinsældir gætu nýst Biden og hefur talað við samstarfsmenn...
HeimurSex ára stúlka föst í bifreið eftir árás Ísraelshers – Ekkert vitað um afdrif björgunarmanna Sex ára palestínsk stúlka er föst í bíl með látnum fjölskyldumeðlimum sínum, eftir árás ísraelska hersins. Rauði hálfmáninn hefur misst sambandið við sjúkraliða sem gerðu tilraun til að bjarga stúlkunni seint á mánudaginn. Hjálparsamtökin Rauði hálfmáninn í Palestínu hefur misst samband við sjúkraliða samtakanna sem gerðu tilraun seint á mánudaginn, til að bjarga sex ára stúlku úr bifreið sem varð...
HeimurBýður sig formlega fram til forseta Rússlands – Vill enda stríðið og sleppa pólitískum föngum Rússneski forsetaframbjóðandinn Boris Nadezhdin hefur skilað inn 105.000 undirskriftum kjósenda sem styðja framboð hans til yfirkjörstjórnar landsins. Boris Nadezhdin, forsetaframbjóðandi og friðarsinni, tilkynnti á Telegram í dag að hann hafi nú skilað inn nægum fjölda meðmæla svo hann geti boðið sig fram gegn Vladimir Putin, sitjandi forseta. Samkvæmt rússneskum lögum þarf Nadezhdin 100.000 staðfestar undirskriftir til bjóða sig formlega fram....
HeimurBandarísk herþota hrapaði nærri Suður-Kóreu Bandarísk F-16 herþota hrapaði í sjóinn við Suður-Kóreu í gær en bandaríski herinn greindi frá þessu í dag. Vélarbilun kom upp um borð í herþotu Bandaríkjahers en flugmaðurinn náði að losa sig úr vélinni áður en hún hrapaði til sjávar. Björgunarsveitir Suður-Kóreu tókst að bjarga manninum og þakkaði herinn fyrir aðstoðina. „Við erum mjög þakklát björgunarsveitum Kóreu og öllum liðsfélögum...
HeimurKonan sem þóttist vera Madeleine biðst afsökunar: „Bjóst ekki við að ég fengi líflátshótanir“ Konan sem reyndi að telja heiminum trú um að hún væri Madeleine McCann hefur beðist afsökunar á framkomu sinni. Kona, að nafni Julia Wandelt (22), steig fram á samfélagsmiðlum á seinasta ári og sagðist vera viss um að hún væri Madeleine. Madeleine hvarf sporlaust þegar hún var í fríi með foreldrum sínum í Portúgal árið 2007 en málið vakti heimsathygli....
HeimurSárþjáður drengur þarf að bíða í 12 mánuði eftir tannlæknatíma: „Ó, æ, æ, ekki að borða“ Þriggja ára drengur í Bretlandi, sem þjáist af alvarlegu tannvandamáli, neyðist til að bíða í að minnsta kosti ár eftir tannlæknaþjónustu. Mirror segir frá hinum þriggja ára gamla Sid Hall, sem þjáist af því sem á ensku kallast hypomineralisation, stundum kallað kalktennur en hann þarf að láta fjarlægja fjórar þeirra. En vegna ungs aldurs hans verður hann að gangast undir...
HeimurUtanríkisráðherra Noregs með yfirlýsingu: „Við eigum ekki að beita milljónum manna hóprefsingu“ Utanríkisráðherra Noregs segir að það ætti ekki að „beita milljónum manna hóprefsingu“ með því að hætta greiðslum til Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna í Palestínu. Espen Barth Eide, forsætisráðherra Noregs sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem hann útskýrir ákvörðun Noregs að halda áfram styrkjum sínum til Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna í Palestínu (e. UNRWA), þrátt fyrir ásakanir ísraelskra stjórnvalda á hendur...
HeimurÍsraelskir hermenn dulbjuggu sig sem lækna og skutu þrjá til bana á sjúkrahúsi – Myndband Sérsveitarmenn Ísraelshers, dulbúnir sem læknar, skutu þrjá Palestínumenn til bana á sjúkrahúsi á Vesturbakkanum. Myndband úr öryggismyndavél Ibn Sina-sjúkrahússins í Jenin á Vesturbakkanum, hefur verið í mikilli dreifingu á netinu undanfarið en þar sjást sérsveitarmenn, sumir klæddir sem læknar, æða um gang sjúkrahússins með alvæpni um hánótt. Að sögn hersins voru mennirnir sem drepnir voru, að skipuleggja hryðjuverkaárás, samkvæmt frétt...
HeimurEngin jarðarför fyrir Nágranna-leikarann: „Frjáls andi sem ekki var hægt að halda aftur af“ Engin jarðarför verður fyrir Nágranna-stjörnuna Troy Beckwith, sem lést á dögunum aðeins 48 ára að aldri. Samkvæmt systur Troy, lést leikarinn, sem þekktastur var fyrir hlutverk sitt sem Michael Martin í Nágrönnum frá 1992 til 1998, eftir erfiða baráttu við krabbamein. Ættingi Troy, Shane Beckwith sagði á samfélagsmiðlum frá dánarorsökum frænda síns í dag. „Fjölskyldan vill að allir viti að...
HeimurTveir bræður skotnir af leyniskyttum Ísraelshers: „Barn með hvítan fána og þeir skjóta samt?“ Leyniskyttur Ísraelshers skutu bræður til bana, eftir að herinn hafði fyrirskipað íbúum blokkar að yfirgefa heimili sín. Hinn 13 ára gamli Nahedh gekk eftir svokallaðri rýmingarleið sem Ísraelsher hafði fyrirskipað íbúum blokkar í borginni Khan Younis. Nahedh hélt á hvítum fána, til merkis um að engin hætta stafaði af honum. Stuttu síðar lá hann í götunni. Leyniskytta Ísraelshers hafði skotið...
HeimurGlæpamenn rændu hundi og keyrðu á konu í Los Angeles – MYNDBAND Ótrúlegur hundaþjófnaður átti sér stað í Los Angeles. Ali Zacharias var að borða hádegismat í miðbæ Los Angeles um helgina með hundinum Onyx, frönkum bolabít, þegar kona gekk að hundinum og kallaði á hann að koma til sín. Zacharias hélt fyrir að konan væri að ruglast á hundum og pældi lítið í málinu þar til konan greip í hundaól Onyx...