HeimurÍrsk Evrópuþingskona kallaði Joe Biden „slátrara“: „Forfeður þínir afneita þér“ Írska Evrópuþingkonan Clare Daly kallaði Bandaríkjaforseta „slátrara“ í magnþrunginni ræðu á þinginu í gær. Clare Daly hélt ræðu á Evrópuþinginu í gær þar sem hún sagði að þar sem Ísrael er að tapa fyrir dómi almennings, séu yfirvöld að gera örvæntingarfullar tilraunir til að auka átökin og koma þannig Bandaríkjunum í stríð við nágrannalönd á borð við Líbanon. „Allt með...
HeimurAð minnsta kosti 163 Palestínumenn drepnir síðasta sólarhring – Árás gerð á enn eitt sjúkrahúsið Ísraelski herinn drap 163 manneskjur og særðu 350, síðasta sólarhringinn, samkvæmt heilbrigðisráðuneyti Gaza. Fjöldi fórnarlamba sprengjuárása Ísraelska hersins eru enn föst undir braki húsa en björgunarmenn ná ekki til þeirra. Nú hafa að minnsta kosti 24.448 manns verið drepnir á Gaza frá 7. október, þar af um 10.000 börn. Þá hafa að minnsta kosti 61.504 slasast. Palestínska blaðakonan Bisan Owda,...
HeimurHáskólanemi fannst látinn í á eftir umfangsmikla leit Lögreglan í Massachusetts fann í gær lík háskólanemans Flordan ,,Flo‘‘ Bazile (21) eftir umfangsmikla leit. Bazile var framúrskarandi og efnilegur íþróttamaður sem æfði spretthlaup en NBC greindi frá þessu í morgun. Bazile sást síðast á mánudaginn á háskólasvæði Umass Dartmouth í Pine Dale Hall heimavist klukkan tvö um nóttina. Skömmu eftir að ekkert hafði spurst til Bazile var skipulögð leit...
HeimurAlþjóðaheilbrigðismálastofnunin heimsótti tvö sjúkrahús á Gaza – Ástandið grafalvarlegt Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (e.Who) lýsa ástandinu á tveimur stærstu sjúkrahúsum Gaza en skortur á heilbrigðisstarfsmönnum er gríðarlegur. Eftir að hafa heimsótt tvær stærstu sjúkrahúsin, af þeim sem enn standa á Gaza, hefur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin lýst ástandinu sem alvarlegu. Eftir að samtökin Læknar án landamæra, yfirgáfu Al-Aqsa sjúkrahúsið, auk tveggja annarra hjálparsamtaka, starfa þar aðeins 12 heilbrigðisstarfsmenn, sem er ekki nema 10 prósent af...
HeimurKennari ákærður eftir að upp komst um ástarsamband milli hennar og nemanda Sérkennari í Bandaríkjunum hefur verið ákærður eftir að hafa stundað kynlíf með menntaskólanema. Foreldrar drengsins eru reiðir vegna málsins og halda því fram að skólinn hafi hunsað ábendingar um ástarsambandið mánuðum saman. Kennarinn, Kara Lee(26), hefur nú verið ákærð fyrir þrjú brot en kynntist hún nemanum í Cross County High School þar sem hún starfaði. Atvikin eru sögð hafa átt...
HeimurHenti hundi út úr bíl á ofsahraða – MYNDBAND Bílstjóri sem var á flótta undan lögreglu henti hundi út úr bílnum. Það er furðulega algengt í Bandaríkjunum að lögreglumenn þurfi að elta glæpamenn fyrir ýmiss konar brot. Oftar en ekki rata slík mál í fjölmiðla og má nefna O.J. Simpson í þeim efnum en bílstjóri sem lagði á flótta undan lögreglu í gær í Los Angeles mun seint vera...
Heimur25 ára karlmaður látinn eftir skotárás Karlmaður er látinn eftir skotárás í Sandviken í Svíþjóð í gærkvöldi. Íbúar á svæðinu segjast hafa heyrt hátt í tíu skotum hleypt af en árásin átti sér stað rúmlega sex í gærkvöldi. Sænski miðillinn SVT fjallaði um málið en lýsti lögreglan því yfir að atvikið yrði rannsakað sem morðmál. Maðurinn sem lést var 25 ára gamall en ekki hefur verið...
Heimur„Allir vita að ég er með sjúkdóm sem er ekki góður“ Sven-Göran Eriksson(75), fyrrverandi landsliðsþjálfari Englands, hefur greint frá því að hann sé með banvænt krabbamein. Þjálfarinn sagði mat lækna benda til þess að hann ætti aðeins tæpt ár eftir ólifað en meinið fannst á síðasta ári. ,,Allir giskuðu á að þetta væri krabbamein og það er rétt. En ég verð að berjast eins lengi og ég get,“ sagði Eriksson í...
HeimurÍsrael meinuð þátttaka í mótum Alþjóða íshokkísambandsins Alþjóða íshokkísambandið (IIHF) hefur meinað Ísraelum að keppa á heimsmeistaramótum sínum, af öryggisástæðum. Fram kemur í frétt Al Jazeera að IIHF hafi „IIHF „hefur ákveðið að takmarka þátttöku ísraelska landsliðsins í IIHF meistaramótum þar til hægt er að tryggja öryggi og vellíðan allra þátttakenda [þar á meðal ísraelska þátttakenda].“ „Ráð IIHF tók þessa ákvörðun eftir vandlega íhugun og byggði á...
HeimurPalestínskum blaðamanni sleppt úr haldi Ísraela: „Við sættum pyntingum“ Palestínski blaðamaðurinn Diaa al-Kahlout, sem var varðhaldi ísraelskra yfirvalda, lýsir sársaukafullri vist sinni en honum var nýlega sleppt. Al Jazeera segir frá því að Diaa al-Kahlout, blaðamaður Al Araby Al Jadeed-fréttamiðilsins hafi verið sleppt fyrr í þessari viku eftir að hafa verið settur í varðhald af ísraelska hernum ásamt fjöldi annarra palestínskra karlmanna þann 7. desember síðastliðinn. Lýsti hann fyrir...
HeimurMóðir Melaniu Trump er látin: „Sterk kona sem bar alla tíð af sér þokka, hlýju og reisn“ Móðir forsetafrúarinnar fyrrverandi, Melaniu Trump, er látin, 78 ára að aldri. Amalija Knavs, móðir Melaniu Trump er látin en þetta staðfestir Trump í tilkynningu á samfélagsmiðlinum X. „Það er með djúpri sorg sem ég tilkynni um andlát minnar elskulegu móður, Amalija,“ skrifaði Melania í gær. „Amalija Knavs var sterk kona sem bar alla tíð af sér þokka, hlýju og reisn....
HeimurMótmælendur trufluðu Joe Biden í miðri ræðu: „Ég skil eldmóð þeirra“ Mótmælendur trufluðu ræðu Joe Biden Bandaríkjaforseta, sem hann hélt í Charleston, Suður-Karólínu. Biden, 81 árs, var í miðri kosningaræðu í kirkju í Charleston, Suður-Karónlínu þegar nokkrir mótmælendur létu í sér heyra varðandi stuðning Bandaríkjanna við þjóðarmorð Ísraels á Gaza. „Án sannleikans er ekkert ljós. Án ljóss er engin leið út úr þessu myrkri,“ sagði Biden en hann var að minnast...