HeimurKrefjast rannsóknar eftir andlát knattspyrnukonu Foreldrar knattspyrnukonunnar Maddy Cusack hafa krafist rannsóknar í kjölfar sjálfsvígs dóttur þeirra á síðasta ári. Enska knattspyrnusambandið hefur safnað upplýsingum í tengslum við andlát konunnar til þess að kanna hvort reglur innan sambandsins hafi verið brotnar. Maddy spilaði með liðinu Sheffield United og var hún aðeins 27 ára gömul þegar hún lést. Maddy hafði glímt við andlega erfiðleika sem fjölskylda...
HeimurBanna loksins hundaát Ný lög í Suður-Kóreu banna slátrun og sölu hundakjöts en hefur það lengi tíðkast þar í landi að borða hunda. Markmiðið er að útrýma gamla siðnum fyrir árið 2027 en samkvæmt nýjum lögum er bannað að rækta og slátra hundum til manneldis. Auk þess er ólöglegt að selja og dreifa kjötinu en BBC fjallaði um málið. Neysla kjötsins er ekki...
HeimurDanskur karlmaður ákærður fyrir morðið á sautján ára stúlku Danskur karlmaður á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir morðið á sautján ára gömlu Emilie Meng. Þetta kemur fram í yfirlýsingunni frá lögreglunni í Lolland-Falster en maðurinn er einnig ákærður fyrir að hafa brotið gegn tveimur öðrum ungum stúlkum. Emilie fannst látin í stöðuvatni á Sjálandi þann 24. desember árið 2016 en hennar hafði verið saknað í fimm mánuði áður en...
HeimurSverrir Þór dæmdur í tæplega sjö ára fangelsi Sverrir Þór Gunnarsson, oft kallaður Sveddi Tönn, hefur hlotið dóm í Brasilíu fyrir fíkniefnabrot og er dómurinn sex ár og níu mánuðir. Hann var handtekinn snemma á síðasta ári og hafði í fórum sínum 150 grömm af maríjúana og 3,6 grömm af kókaíni sem voru ætluð til sölu. Handtaka Sverris var hluti af fjölmennri og stórri aðgerð í Brasilíu en...
HeimurGuðjón vill slíta stjórnmálasambandi við Ísrael: „Verður að ráðgast við þjóðina beint“ Umræða um samband Íslands við Ísrael hefur sjaldan verið meiri og er ástæðan hernaðaraðgerðir Ísrael á Gaza. Mörgum Íslendingum er svo nóg boðið að þeir vilja helst ekki taka þátt í Eurovision, þjóðaríþrótt landsins, verði Ísrael með. Sama má segja um fyrirhugaðan landsleik Íslands við Ísrael í mars. Guðjón Idir vill meina að Íslandi eigi að slíta stjórnmálasambandi við Ísrael....
HeimurVirtur blaðamaður um hryllinginn á Gaza: „Hef aldrei skammast mín jafn mikið fyrir að vera Ísraeli“ Hinn margverðlaunaði blaðamaður Gideon Levy, segist aldrei hafa skammast sín jafn mikið að vera Ísraeli og akkurat núna, þegar þjóðarmorð á Palestínumönnum er að eiga sér stað fyrir fyrir allra augum. Ísraelski blaðamaðurinn Gideon Levy sagði á dögunum að hann hefði aldrei skammast sín jafn mikið fyrir að vera Ísraeli og akkurat núna. Þessi orð lét hann falla á World...
HeimurMaður varð fyrir lest í Philadelphia eftir að hafa verið kýldur – Myndband Karlmaður í Philadelphia lést í gærkvöldi þegar hann lenti undir lest. Undanfari þessa hræðilega slyss var sá að maðurinn sem lést var að rífast við annan mann á lestarstöðinni, sem er staðsett rétt hjá Pennsylvaníuháskóla, og byrjuðu þeir að slást rétt við lestarteina á stöðinni. Maðurinn sem lést var kýldur í andlitið og við það missti hann jafnvægið og datt...
HeimurGengur laus eftir að hafa banað kærustu sinni Suður-Afríkumaðurinn Oscar Pistorius gengur út úr fangelsinu í Ástralíu í dag, frjáls maður. Oscar var dæmdur fyrir að bana kærustu sinni, Reevu Steenkamp,fyrir tæpum ellefu árum á heimili þeirra. Oscar hlaut rúmlega þrettán ára fangelsi en hefur skilorðsnefnd í fangelsinu nú veitt honum reynslulausn. Oscar, sem nú er 37 ára gamall, þarf að fylgja eftir ströngum reglum og sækja námskeið...
HeimurLangur listi yfir félaga Epstein loksins opinberaður – Sjáðu nöfnin Hin eftirsóttu dómsskjöl tengd Jeffrey Epstein hafa verið opinberuð en þau innihalda nöfn margra háttsettra manna. Michael Jackson, Prince Andrew og Leonardo DiCaprio eru nokkur af stóru nöfnunum þar ásamt stjórnmálamönnunum Bill Clinton og Donald Trump. Þeir sem eru nefndir í gögnunum eru margir hverjir þolendur Epsteins, starfsmenn hans sem sögðu sögur sínar í fjölmiðlum fyrir nokkrum árum síðan. Starfsmennirnir...
HeimurFimm daga gamalt barn lést í sprengjuárás Ísraelshers á sjúkrahús hjálparsamtaka Starfsmaður Sameinuðu þjóðanna á Gaza fordæmir sprenjuárás Ísraelsher á sjúkrahús Rauða hálfmánans á Khal Yunis-borg á Gaza, sem drap fimm manns, þar af fimm daga gamalt kornabarn. „Ekkert barn í heiminum ætti að drepa, hvað þá eitt sem er í skjóli undir merki mannúðarsamtaka,“ segir Gemma Connell, liðstjóri skrifstofu samhæfra mannúðarmála Sameinuðu þjóðanna á Gaza í myndskeiði sem Al Jazeera-fréttastofan...
HeimurÍsbjörn fannst dauður Veiran H5N1 fannst í dauðum ísbirni í norðurhluta Alaska í desember síðastliðnum. Yfirvöld í Alaska hafa staðfest að veiran hafi dregið björninn til dauða en talið er líklegt að hann hafi smitast með því að éta dauða fugla sem voru smitaðir. Milljónir fugla og þúsundir spendýra hafa drepist af veirunni síðustu tvö árin en ekki þykir ólíklegt að fleiri bjarndýr...
HeimurNeyðarbeiðni frá Mads Gilbert vegna ástandsins á Gaza: „Við þurfum að bregðast við núna!“ Norski læknirinn Mads Gilbert biðlar til framkvæmdarstjóra Sameinuðu þjóðanna um að koma Gazabúum til bjargar strax. Mads Gilbert vakti heimsathygli þegar hann var eini vestræni læknirinn, ásamt skurðlækninum og samlanda Mads, Erik Fosse, á Gaza þegar átök brutust út á milli Ísraelshers og Hamas 2008-2009. Erlendum fjölmiðlum var meinaður aðgangur að Gaza en Mads sendi myndskeið úr síma sínum þar...