HeimurForsetaframbjóðandi lifði af bílasprengju í Rússlandi: „Viðbjóðsleg árás öfgafullra Nasista“ Þjóðernissinnaði stjórnmálamaðurinn og rithöfundurinn Zakhar Prilepin slasaðist alvarlega er sprengja sprakk í bifreið hans í rússnesku borginni Nizhny Novgorod í morgun. Samkvæmt fjölmiðlum var dóttir hans einnig í bílnum en hún komst út úr honum áður en sprengjan sprakk. Zakhar Prilepin Fram kemur í rússneska útlagamiðlinum Meduza, að bílstjórinn sem einnig er lífvörður hins rússneska stjórnmálamanns, lést í sprengingunni. Hann...
HeimurTikTok-stjarna féll fyrir eigin hendi: „Bobby var fullur af lífi og hlátri“ TikTok-stjarnan Bobby Moudy, 46 ára, lést á heimili sínu í Mississippi þann 28 apríl. Framdi hann sjálfsvíg. Lætur hann eftir sig eiginkonuna Jennifer og þrjú börn, Kaytlin, Max og Charleigh. ENews! sagði frá andlátinu. „Bobby var ástríkur eiginmaður, faðir, bróðir og vinur,“ sagði dóttir hans Kaytlin í TikTok-myndskeiði. „Þann 28. apríl varð hann fórnalamb sjálfsvígs. Bobby var fullur af lífi...
HeimurRík hjón dæmd í fangelsi fyrir mannsal: „Þið tókuð öll þátt í viðbjóðslegu braski“ Auðug hjón sem hugðust flytja ungan mann til Bretlands svo þau gætu tekið úr honum nýra handa nýrnaveikri dóttur þeirra, hafa verið dæmd í fangelsi. Samkvæmt Mirror fékk Ike Ekweremadu níu ára fangelsisdóm og átta mánuði að auki en þetta er í fyrsta skipti sem einhver er dæmdur fyrir líffærabrask í Bretlandi. Eiginkona hans, Beatrice, fékk fjögurra og hálfs árs...
HeimurDæmdur kynferðisbrotamaður myrti fimm unglinga í Oklahoma: „Okkur grunaði aldrei neitt misjafnt“ Sjö manneskjur eru látnar, þar á meðal fimm unglingar, eftir skotárás í dreifbýli fyrir utan smábæinn Henryetta í Oklahoma, Bandaríkjunum. Skotmaðurinn er talinn hafa framið sjálfsvíg eftir ódæðið. Perez Hilton, af öllum mönnum, segir frá málinu á síðu sinni. Þar kemur fram að á mánudaginn hafi lögreglumenn frá Okmulgee-sýslu verið að leita að tveimur unglingum sem tilkynnt hafði verið að...
HeimurFéll ofan í jökulsprungu – Sjáðu myndskeiðið! Myndskeið af skíðamanni hefur vakið mikla athygli á veraldarvefnum undanfarna daga en ekki er um venjulegt myndefni að ræða. Í myndskeiðinu sést hvar franskur skíðamaður, sem ekki vill láta nafn síns getið, skíðar á Meije-fjalli í frönsku Ölpunum en fellur svo ofan í sprungu í fjallinu. Í byrjun lítur út fyrir að hann hafi sloppið vel, það hægist verulega á...
HeimurGreindi sitt eigið krabbamein og varar við lúmskum einkennum:„Einkennin gætu verið lítil sem engin“ Kvensjúkdómalæknirirnn Lauren Juyja greindi sitt eigið endaþarmskrabbamein út frá tveimur vægum einkennum. Hún deilir nú einkennum sem geta verið merki þess að ekki sé allt eins og það eigi að vera. Lauren er 38 ára og er nú með krabbamein á fjórða stigi. Hún segir ekki nægilega rætt um endaþarmskrabbamein hjá fólki undir fimmtugu en í Bretlandi stendur öllum 60...
HeimurEnn einn lést vegna Fentanyl-ofnotkunar: „Við erum sorgmædd, við erum reið, við erum ringluð“ Fentanyl-faraldurinn er ekki aðeins á Íslandi því hann er svo sannarlega í henni Ameríku líka. Undanfarið hafa stjörnur verið að falla af himnum og deyja af völdum Fentanyl misnotkunar í bland við eiturlyfjaofneyslu. Dave Hollis er nýjasta þekkta manneskjan í Bandaríkjunum til þess að látast af völdum þess. Áður höfðu rapparinn Coolio og leikarinn Frank Vallelonga Jr. látist vegna fentanyl...
HeimurLeiðtogi kristilegs sértrúarsafnaðar hvatti fólk til að svelta sig til dauða Rúmlega 90 manns hafa fundist látnir á búgarði í Kenía en leiðtogi kristilegs sértrúarsafnaðar er grunaður um að hafa hvatt fólk til þess að svelta sig til dauða til þess að hitta Jesú. Paul Mackenzie Nthenge, leiðtogi sértrúarsafnaðarins, er grunaður um að hafa lokkað fólk til sín, skipað þeim að svelta sig og grafið það á landi búgarðsins. Breski miðillinn...
HeimurNý Barbie dúkka brýtur blað í sögunni: „Við viljum ekki vera falin frá alheiminum“ Leikfangaframleiðandinn Mattel hefur hafið framleiðslu á Barbie dúkkum með Down‘s heilkenni. Þykir þetta brjóta blað í sögu fyrirtækisins enda er dúkkan sú fyrsta sem á að vera með andlega fötlun. Framleiðandinn hannaði dúkkuna í samvinnu við Down‘s félag Bandaríkjanna. Mattel gaf fyrst út Barbie dúkku með fötlun árið 1997 þegar „Share a Smile Becky“ kom á markað en hún var...
HeimurÖkumaður stöðvaður með mikið magn kókaíns – Og lamb í aftursætinu Lögreglan í Glasgow, Skotlandi, stöðvaði ökumann sem grunaður var um akstur undir áhrifum lyfja á laugardaginn. Í bílnum fannst kókaín að andvirði 1,7 milljón króna. Þar fannst einnig lítið lamb. Lambið Samkvæmt Plymouth Herald var farþeginn frelsaður og farið með hann til bónda, eftir að lögreglan stöðvaði bílinn á M74 hraðbrautinni í Glasgow. Ökumaðurinn var handtekinn eftir að hann féll...
HeimurTíu fjölskyldumeðlimir skotnir til bana – Yngsta fórnarlambið aðeins 13 ára Tíu meðlimir úr sömu fjölskyldunni voru skotnir til bana á heimili þeirra í Suður-Afríku, að sögn lögreglu. BBC segir frá því að sjö konur og þrír karlmenn hafi verið myrt í árás á heimili í Imbali, nálægt borginni Pietermaritzburg, snemma í morgun. Lögreglustjórinn Bheki Cele sagði að tveir af þeim grunuðu hefðu verið handteknir, en að einn hafi verið skotinn...
HeimurÞetta eru hamingjusömustu þjóðir heims Samkvæmt nýlegum lista World Happiness Report kemur fram að Finnland er hamingjusamasta þjóð heims, sjötta árið í röð. Norrænu þjóðirnar Danmörk, Svíþjóð, Noregur og Ísland skora allar hátt í skýrslunni. Mælikvarðinn sem notaður er í skýrslunni eru eftirfarandi: heilbrigðar lífslíkur, félagslegur stuðningur, lítil spilling, örlæti í samfélaginu þar sem fólk sér um hvert annað og frelsi til þess að taka...