HeimurÞjófar á Tenerife flugvellinum reyndust vera starfsmenn Lögreglan á Tenerife handtók í gær tvo töskubera á flugvellinum á Tenerife fyrir að stela úr töskum farþega. Mennirnir störfuðu við það að ferja töskur í flugvélar en voru það starfsmenn öryggisteymis flugvallarins sem komu að mönnunum sem voru handteknir í kjölfarið. Mikil aukning hefur verið á þjófnaði úr ferðatöskum á eyjunni sem er afar vinsæll ferðamannastaður en vandamálið komst...
HeimurÚrskurðuð látin fyrir 30 árum en fannst á lífi í Puerto Rico: „Léttir að hún liggi ekki í skurði“ Bandarísk kona, Patricia Kopta, var úrskurðuð látin fyrir þrjátíu árum eftir að hún hvarf sporlaust frá heimili sínu. Hún fannst nýlega á lífi á elliheimili í Puerto Rico. Patricia og eiginmaður hennar höfðu verið gift í tvo áratugi þegar hún hvarf en hann segist feginn að hún hafi ekki verið myrt og að það sé vel hugsað um hana. „Það...
HeimurSegir Karl III hafa gert stór mistök: „Þetta lítur skelfilega út“ Sérfræðingur í bresku konungsfjölskyldunni segir Karl III konung hafa gert „stór mistök“ að reka Harrý prins og Meghan Markle eiginkonu hans, af heimili þeirra, Frogmore Cottage, og bjóða Andrési prins að flytja þangað. Andrés, prins og meintur barnaníðingur Eins og heimurinn veit, þá hafa hertoginn og hertogaynjan af Sussex staðfest þær fregnir að þau hafi verið „beðin um að yfirgefa“...
HeimurJarðfræðingur fann steingerving Kökuskrímslisins úr Sesamstræti í Brasilíu – MYNDIR Gimsteinasafnarinn Mike Bowers og meðhjálpari hans, Lucas Fassari, fundu á dögunum heldur óvenjulegan stein. Steininn er svokallaður agat steinn sem á yfirborðinu virðist frekar ómerkilegur en þegar litið er inn í hann kemur annað í ljós. Við nánari skoðun kom í ljós að í honum fannst einstakur karakter – sjálft Kökuskrímslið úr sjónvarpsþáttunum Sesamsstræti. Líkindin eru sláandi blátt andlitið, geðveikislega...
HeimurLögmaður dæmdur sekur um morð á eiginkonu sinni og syni Bandaríski lögmaðurinn Alex Murdaugh var í nótt dæmdur sekur um að hafa orðið syni sínum og eiginkonu að bana í þeim tilgangi að draga athygli frá milljóna dala efnahagsbrotum sínum. Í frétt BBC segir að kviðdómur hafi komist að niðurstöða á innan við þremur klukkustundum en réttarhöld hafa farið fram í Suður-Karólínu síðastliðnar sex vikur. Maggie Murdaugh, 52 ára, og...
HeimurKraftaverk í Tyrklandi – Hundur fannst á lífi í rústum, 23 dögum eftir jarðskjálftana Sannkallað kraftaverk varð þegar hundur fannst á lífi í rústum byggingar, 23 dögum eftir hina mannskæðu jarðskjálfta í Tyrklandi og Sýrlandi. Björgunarsveit fann hundinn Alex á lífi í rústum húss í Hatay, Tyrklandi, 23 dögum eftir að hrikalegir jarðskjálftar fóru um svæðið. Meira en 50.000 létu lífið í Suður-Tyrklandi og Norður-Sýrlandi og þúsundir er enn saknað.
HeimurMissti sveindóminn eftir 270 kílóa þyngdarmissi: „Ég er ekki ennþá sáttur með líkama minn“ Hinn 38 ára Casey King upplifði kynlíf í fyrsta skiptið eftir um 272 kílóa þyngdarmissi. Casey var 322 kíló þegar hann kom fram í þáttunum The Family By The Ton árið 2019. Hæsta þyngd sem hann hefur náð voru um 383 kíló, hann glímdi við ýmsa heilsukvilla og var ekki fær um að hugsa um sig sjálfur. Casey baðaði sig...
Heimur260 kindur brunnu inni í fjárhúsi á bænum Unaósi Sá ömurlegi atburður átti sér stað að eldur kviknaði rétt upp úr hádegi í fjárhúsi á bænum Unaósi í Hjaltastaðarþinghá. Það er RÚV er greindi fyrst frá. Kemur þar fram að slökkvilið Múlaþings kom flhjótt á staðinn og barðist við eldinn. Því miður voru um það bil 260 kindur inni í fjárhúsinu er eldurinn kviknaði; nær öruggt er talið að...
HeimurMeðlimur Manson hópsins er látin Linda Kasabian, fylgjandi Manson hópsins er látin, 73 ára að aldri. Manson hópurinn myrti leikkonuna Sharon Tate auk sex annarra árið 1969 en þá var Linda títug að aldri. Morðin skóku heiminn og hefur öfgahópur Manson verið talinn einn sá hrottalegasti fyrr og síðar. Linda fékk það verkefni að standa vörð fyrir utan hús leikkonunnar og gæta þess að enginn...
HeimurSmáforritið TikTok bannað í búnað ríksins – Liggur undir grun um að áframselja persónuupplýsingar Öllum alþingismönnum og starfsfólki sem starfa hjá danska ríkinu hefur verið ráðlagt af netöryggissérfræðingum þar í landi að hlaða hvorki niður né nota smáforritið TikTok. Gildir það um allan búnað sem er í eigu ríksins, þar á meðal símtæki. Fyrirtækið ByteDance, sem er eigandi TikTok, hefur aðgang að persónuupplýsingum notenda sinna og liggur það undir grun um að framselja gögnin...
HeimurSíberískur sjaman í áframhaldandi nauðungarvistun á geðdeild – Ætlaði að hrekja Pútín frá völdum Dómstóll í Ussuriisk í Rússlandi, hefur nú framlengt nauðungarvistun sjamans frá Yakut, á geðdeild en hann var handtekinn og sendur í slíka vistun árið 2021. Sjamaninn eða töfralæknirinn Aleksandr Gabyshev, lagði af stað gangandi til Moskvu-borgar frá Síberíu árið 2019 en tilgangurinn með henni var að hrekja Vladimír Pútín frá Kremlin, með þessum mótmælum. Vakti ganga hans mikla athygli í...
HeimurMáluðu úkraínska fánann á götuna fyrir framan rússneska sendiráðið – Fjórir í varðhaldi Fjórir einstaklinga hafa verið handteknir eftir að hafa málað götuna fyrir utan rússneska sendiráðið í London, í fánalitum Úkraínu. Hópurinn Led by Donkeys, sem stofnaður var í þeim tilgangi að mótmæla Brexit árið 2018, er á bak við mótmælin. Máluðu þau götuna í Kensington Palace Gardens í bláum og gulum litum úkraínska fánans, í tilefni af ársafmæli árásarstríðs Rússlands inn...