HeimurSkotárás í Flórída: Sneri aftur á vettvang þar sem hann skaut fréttamenn og níu ára stúlku Bandarískur fréttamaður og níu ára stúlka voru skotin til bana í Orlando í Flórída síðdegis í gær. Skotárásin átti sér stað nærri vettvangi annars morðs sem var framið nokkrum klukkustundum áður en sami maðurinn er grunaður um árásirnar. Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að annar fréttamaður og móðir stúlkunnar hafi einnig særst. Sjónvarpsfréttamenn voru á staðnum til að fjalla...
HeimurFerðamaður lést eftir hákarlaárás – Heyrðu fólk öskra á hjálp í sjónum Ástralskur ferðamaður lést eftir hákarlaárás á fjölmennri strönd í Nýju Kaledóníu síðdegis í gær. Maðurinn var á sundi við bát sem staðsettur var um 150 metrum frá Chateau-Royal ströndinni þegar hákarlinn réðst á hann og beit hann nokkrum sinnum. Björgunarsveitarmenn á ströndinni voru látnir vita af árásinni eftir að hafa heyrt öskur berast frá fólki í sjónum. Samkvæmt erlendum miðlum...
HeimurLögreglumennirnir fimm segja saklausir af morðinu á Tyre Nichols – Handóku hann með barsmíðum Hinir fimm fyrrverandi lögreglumenn sem sakaðir eru um að hafa drepið Tyre Nichols sögðust fyrir rétti í dag vera saklausir. Þeir Tadarrius Bean, Demetrius Haley, Desmond Mills Jr, Emmitt Martin III og Justin Smith tóku allir þátt í handtöku Nichols þann 7. janúar síðastliðinn. Hafði fórnarlambið verið stoppað af lögreglumönnunum vegna kæruleysilegs aksturslags. Myndskeið sem dreift var á samfélagsmiðlum sýndu...
HeimurÁttatíu og níu ára gamall þingmaður gleymdi uppsögn sinni: „Ég hef ekki sent neitt frá mér“ Hinn 89 ára gamli öldungadeildarþingmaður, Dianne Feinstein tilkynnti á þriðjudaginn að hún myndi hætta á Bandaríkjaþingi í lok kjörtímabilsins desember 2024. Hún gleymdi því svo aftur. Demókratinn aldraði sendi út tilkynningu á þriðjudaginn þar sem sagðist ætla að ljúka störfum á Bandaríkjaþingi í lok kjörtímabils hennar í lok árs 2024. Samkvæmt fréttamiðlum Vestra hafa fréttirnar legið í loftinu um nokkurt...
HeimurMYNDBAND: Kona sem myrti og sundurlimaði mann réðst á verjanda sinn í dómsal Tuttugu og fimm ára gömul kona réðst á lögmann sinn í miðju þinghaldi í Wisconsin í Bandaríkjunum í gær. Lögmaður konunnar hafði stuttu áður beðið dómara um að fresta réttahöldum málsins um tvær vikur en er konan, Taylor Schabusiness, ákærð fyrir morð. Lögmaður ákærðu bað um frest svo hægt væri að fá sérfræðing til þess að meta það hvort Taylor...
HeimurSat saklaus í fangelsi í 28 ár fyrir morð sem hann framdi ekki: „Þakka þér fyrir. Þú ert frjáls“ Dómari í Missouri í Bandaríkjunum ógilti í gær sakfellingu yfir manni sem var dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir tæpum 28 árum síðan. Maðurinn, Lamar Johnson var dæmdur fyrir morð, en hefur hann alla tíð haldið fram sakleysi sínu. Lamar, sem nú er fimmtugur, lokaði augunum og hristi höfuðið örlítið þegar meðlimur lögfræðiteymis hans klappaði honum á bakið er David Mason, dómari,...
HeimurPulitzer-blaðamaður segir CIA hafa sprengt Nord Stream 1 og 2: „Með beinni tilskipun frá Biden“ Hinn margverðlaunaði blaðamaður Seymour Hersh segir í nýrri frétt að bandaríski sjóherinn og CIA, með hjálp Norðmanna, hafi sprengt gasleiðslu Nord Stream 1 og 2 frá Rússlandi til Þýskalands en ekki Rússar eins og gefið hafði verið í skyn. Kristinn Hrafnsson ritstjóri Wikileaks skrifaði færslu á Facebook þar sem hann bendir á nýja frétt Pulitzer-verðlaunablaðamanninn Seymour Hersh þar sem hann...
HeimurTóku upp aftöku á fyrrum Wagner-liða: „Áttaði ég mig á að þetta var ekki mitt stríð“ Í nýju myndskeiði sem póstað var á hálfopinberri Telegram-rás málaliðanna í Wagner-flokknum, sýnir það sem virðist vera morð á fyrrum meðlimi hópsins. Útlagafréttamiðillinn rússneski Meduza segir frá því að nýtt myndskeið hafi nú birst á hálfopinberri Telegram-rás Wagner-málaliðanna sem barist hafa í stríðinu í Úkraínu og víða skilið eftir sig sviðna jörð, enda skeyta þeir ekki um alþjóðalög og reglur...
HeimurFimmtán ára drengur og stúlka handtekin – Grunuð um að hafa myrt sextán ára transstúlku Fimmtán ára piltur og stúlka voru handtekin í Cheshire í gær en eru þau grunuð um að hafa orðið sextán ára Briönnu Ghey að bana. Brianna var transstúlka en gangandi vegfarandi gekk fram á lík hennar á stíg við Linear Park í Culcheth, Warrington, síðdegis á laugardag. Í yfirlýsingu lögreglu segir að Brianna hafði verið stungin ítrekað og þykir lögreglu...
HeimurTikTok lokaði á rússneska áróðursmeistara – Voru með yfir 130.000 fylgjendur Samskiptaforritið TikTok uppgötvaði og blokkeraði 1.682 reikninga sem dreifði Rússneskum áróðri um stríðið í Úkraínu, til Evrópskra áhorfenda, samkvæmt tilkynningu úr herbúðum forritsins. Samkvæmt TikTok gerði áróðursvefurinn út frá Rússlandi en miðaði aðallega á íbúar Þýskalands, Ítalíu og Bretlands. Rússnesku áróðursnotendurnir, sem voru dulbúnir sem evrópskir notendur, notuðust oft við talgervlaforrit. Alls voru fylgjendur þeirra meira en 130.000 talsins. TikTok...
HeimurLjósmynd af konungsfjölskyldunni valin ein af ljósmyndum ársins – Lúðvík prins stal senunni Reuters ljósmyndarinn Hannah McKay er fréttaljósmyndari ársins 2022 hjá samtökum breskra fréttaljósmyndara. Meðal mynda hennar er afar spaugileg ljósmynd af konungsfjölskyldunni. Samkvæmt BBC voru ljósmyndir McKay valdar úr ríflega 2.000 umsóknum ljósmyndara sem starfa í Bretlandi og annars staðar. Þó að ljósmyndir hennar Hönnuh hafi allar verið glæsilegar stóð þó ein þeirra upp úr en hún sýnir konungsfjölskylduna á góðri...
HeimurBjörguðu stúlkubarni sem fæddist undir rústum í Sýrlandi Stúlkubarn sem fæddist undir rústum bygginga í Sýrlandi var bjargað á dögunum en þykir það kraftaverk að náðst hafi að bjarga barninu. Fréttamiðillinn Mirror greindi frá því að móðir barnsins hafi verið komin af stað í fæðingu á mánudaginn þegar jarðskjálfti að að stærð 7,8 stig varð á svæðinu. Barnið er nú komið í öruggt skjól og undir læknishendur. Skjáskot...