Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Pulitzer-blaðamaður segir CIA hafa sprengt Nord Stream 1 og 2: „Með beinni tilskipun frá Biden“

Pulitzer-blaðamaður segir CIA hafa sprengt Nord Stream 1 og 2: „Með beinni tilskipun frá Biden“

Hinn marg­verð­laun­aði blaða­maður Seymour Hersh segir í nýrri frétt að banda­ríski sjó­her­inn og CIA, með hjálp Norð­manna, hafi sprengt gasleiðslu Nord Stream 1 og 2 frá Rúss­landi til Þýska­lands en ekki Rússar eins og gefið hafði verið í skyn.

Kristinn Hrafns­son rit­stjóri Wikileaks skrif­aði færslu á Facebook þar sem hann bendir á nýja frétt Pulitzer-verð­launa­blaða­mann­inn Seymour Hersh þar sem hann segir að sjó­her Banda­ríkj­anna og CIA, með aðstoð Norð­manna hafi eftir langan und­ir­bún­ing, sprengt gasleiðsl­urnar Nord Stream 1 og 2 sem flutti gas frá Rúss­landi til Þýska­lands. Er þetta þvert á það sem haldið hefur verið fram hingað til en Rússar hafa verið grun­aðir um verkn­að­inn. Banda­ríkja­stjórn harð­neitar ásök­unum.

Blaða­mað­ur­inn Hersh hlaut Pulitzer-verð­launin fyrir að afhjúpa hræði­lega glæpi banda­ríkja­hers í Víetnam­stríð­inu en hann vakti einnig verð­skulda athygli er hann upp­lýsti um pynt­ingar Banda­ríkja­hers á föngum í Abu Ghraib fang­els­inu í Írak. Síðustu ár segir Kristinn hefur Hersh mætt tals­verðri gagn­rýni fyrir til að mynda, not­ast mikið við nafn­lausa heim­ilda­menn.

Færslu Kristins má lesa hér fyrir neðan:

„Það er rúm hálf öld síðan Seymour (Sy) Hersh, þá ungur blaða­maður, opin­ber­aði slá­andi fréttir af fjöldamorði banda­rískra her­manna í My Lai í Vietnam, í einum hroða­leg­asta við­burði í blóð­ugri sögu stríðs­ins þar sem 500 óbreyttum og vopn­lausum borg­urum var slátrað á einum degi í yfir­veg­aðri sturlun. Það var reynt að þagga málið niður og lagt á ráðin á æðstu valda­stöðum Banda­ríkj­anna að koma höggi á trú­verð­ug­leika Sy Hersh. Ekki gékk það eftir og hlaut hann Pulitzer verð­launin fyrir opin­ber­un­ina. Það var ekki í mynd­inni að reyna að smyrja á blaða­mann­inn að vera hand­bendi komm­ún­ista fyrir það eitt að benda á óhæfu­verk Banda­ríkja­hers.

Við tók langur blaða­mann­fer­ill sem skil­aði mörgum við­ur­kenn­ingum og merki­legum sögum. Meðal minni­stæðra er opin­berun hans á pynt­ingum Banda­ríkja­hers á föngum í Abu Ghraib fang­els­inu í Írak. Ávallt hefur Sy Hersh verið þyrnir í augum stríðsafla í Ameríku en var samt í ára­tugi tal­inn einn merkasti rann­sókn­ar­blaða­maður Banda­ríkj­anna.Síðasta ára­tug­inn hefur þó tek­ist að höggva í trú­verð­ug­leika blaða­manns­ins. Það hefur verið áber­andi að aðrir blaða­menn verja gjarnan meira púðri í að grafa undan til­trú á sögum hans en leita að stað­fest­ingum eða afsönnun á rétt­mæti þeirra. Sér­stak­lega hafa menn höggvið í að hann notar mikið nafn­lausa heim­ild­ar­menn og þá um leið sé fréttin dauð og ómerk – afgreitt mál.Í gær birti Hersh frétt um að Banda­ríski sjó­her­inn og CIA með aðstoð Norð­manna, hafi und­ir­búið með leynd og löngum fyr­ir­vara, spreng­ingu gasleiðslu Nord Stream 1 og 2 frá Rúss­landi til Þýska­lands. Þessi áform um hern­að­ar­að­gerð gegn innviðum í eigu rúss­neskra, þýskra, franskra og sviss­neskra fyr­ir­tækja hófust sam­kvæmt Hersh löngu áður en Rússar réð­ust inn í Úkraínu fyrir tæpu ári. Það var þyrnir í augum Banda­rískra stjórn­valda að Vestur-Evrópa yrði enn háð­ari ódýru rúss­nesku gasi en áður var, með auk­inni flutn­ings­getu í neð­an­sjáv­ar­leiðslum Nord Stream. Leiðsl­urnar voru loks sprengdar 21. sept­em­ber með beinni til­skipun frá Biden Banda­ríkja­for­seta skv Hersh. Banda­ríkja­menn (CIA og for­seta­emb­ættið) þver­neita ábyrgð á verkn­að­inum og full­yrða nú að frétt Sy Hersh sé röng. Tals­maður Hvíta húss­ins segir þetta upp­spuna frá rótum en for­seta­emb­ættið reyndi með skipu­legum lekum á liðnu hausti að koma því á flot að Rússar sjálfir hefðu sprengt eigin leiðslur. Illa gékk að festa þá skýr­ingu í sessi enda fylgdu heldur holar skýr­ingar á því hvernig í ósköp­unum Rússar ættu að hagn­ast á þeim sjálf­skaða.Fyrir áhuga­menn um blaða­mennsku er fróð­legt að fylgj­ast með við­brögðum við frétt Sy Hersh. Utan hins ensku­mæl­andi frétta­heims er yfir­leitt getið að fréttin komi frá Pulitzer verð­laun­uðum blaða­manni. Fyrsta umfjöllun Reuters um málið var hins vegar að fréttin væri frá „blogg­ara“ en Sy Hersh birti frétt­ina á Substack. Mín spá er að smám saman verði aukin umfjöllun um hversu vafa­samur Sy Hersh sé, hann hafi hall­ast í seinni tíð að „sam­sær­is­kenn­ingum“, not­ist ótæpi­lega við vafa­sama nafn­lausa heim­ild­ar­menn og ekki er úti­lokað að menn geri því skóna að hann sé hand­bendi Pútíns en það síð­asta er í auknum mæli notað til að höggva í trú­verðu­leika þeirra sem birta fréttir sem eru ekki for­skrif­aðar útfrá hags­munum Banda­ríkja­stjórnar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife