HeimurFimm hákarlaárásir með stuttu millibili við New York: „Hann náði í kálfann á mér“ Ferðamaður var bitinn af hákarli við strendur Long Island í vikunni, einungis nokkrum klukkustundum eftir að einstaklingur á brimbretti varð fyrir árás á sama svæði. Þar með hafa verið fimm hákarlaárásir í New York á einungis tveimur vikum. Á vef The Sun kemur fram að brimbrettamaðurinn Shawn Donnely kastaðist af bretti sínu þegar Tígurháfur réðist á hann undan ströndum Smith...
HeimurKevin Spacey fyrir dóm vegna fjögurra kynferðisbrota gegn þremur mönnum Óskarsverðlaunaleikarinn Kevin Spacey neitaði sekt í fjórum kynferðisbrotamálum fyrir dómi í Englandi í morgun. Réttarhöld munu því fara fram og er áætlað að þau hefjist í júní á næsta ári. Kevin Spacey er sakaður um að hafa brotið kynferðislega á þremur mönnum. Hin meintu brot eru sögð hafa verið framin á árunum 2005 til 2013 á meðan hann starfaði sem...
HeimurTelja að kynóður hákarl hafi rifið ferðamenn í sundur Tvær hákarlaárásir hafa orðið við strendur Egyptalands með stuttu millibili. Báðar enduðu þær með dauða fórnarlambanna, sem voru hreinlega rifin í sundur af rándýrinu. Sérfræðingar segja hugsanlegt að árásirnar tengist fengitíma, en aðrir telja að hætta á slíku skapist vegna dýrahræja sem kastað sé í sjóinn af skipum. Það var á vinsælum ferðamannastað við Rauðahafið að tvær konur voru tættar...
HeimurTwitter fer í mál við Elon Musk – Segja hann hafa dregið úr virði fyrirtækisins Stjórnendur Twitter hafa ákveðið að höfða mál gegn auðjöfrinum Elon Musk, eftir að hann hætti við kaup sín á fyrirtækinu. Forsvarsmenn fyrirtækisins höfða málið fyrir dómstólum í Delaware, með það fyrir augum að láta Musk standa við 44 milljarða dala yfirtöku sína á fyrirtækinu, en tilboð hans hljóðaði upp á 54 dali á hvern hlut. Musk, sem er í dag...
HeimurSmáskjálftahrina á eldfjallaeyjunni Tenerife – Segja lífið ganga sinn vanagang Alls hafa um 630 smáskjálftar gengið yfir Tenerife á Kanaríeyjum frá því laust fyrir klukkan sex í morgun. Involcan, eldfjallafræðistofnun Kanaríeyja, greinir frá þessu. Tenerife er stærst Kanaríeyjanna og á henni er eldfjallið Mt. Teide, sem jafnframt telst hæsti tindur Spánar. Skjálftarnir voru flestir langt undir yfirborði jarðar; sumir á 13 kílómetra dýpi. Rauðu punktarnir á myndinni sýna skjálftana. Mt....
HeimurStökk 15 metra og „sprengdi“ í sér hrygginn: „Ekki gera þetta“ Libby Sinden, 22 ára gömul kona, hefur birt myndband af sér á TikTok þar sem hún sést stökkva 15 metra niður af brú og ofan í á fyrir neðan. Þetta stökk átti eftir að verða henni örlagaríkt. Eins og Libby lýsir því sjálf þá „sprengdi“ hún í sér hrygginn með þessu uppátæki. Þetta kemur fram í breska blaðinu The Sun....
HeimurFjöldamorðinginn í Chicago um árásarmanninn í Field’s: „Þessi gaur er asni“ Faðir hins bandaríska , Robert E. Crimo, segir í viðtali við The New York Post, að um kvöldið 3. júlí, hafi sonur hans fordæmt byssumanninn sem framdi fjöldamorð í verslunarmiðstöðinni Field’s, í Kaupamannahöfn, 3. júlí síðastliðinn. Samkvæmt föðurnum ku Robert hafa sagt: „Hann fer, já, þessi gaur er asni,“ um danska skotárásarmanninn. Til að friða eigin samvisku um hvernig hann...
HeimurAfsögn Boris Johnson: „Ég óska honum samsvarandi eymdar og hann hefur úthlutað öðrum á ferli sínum“ Öll spjót hafa staðið að Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, undanfarið og mikill þrýstingur á að hann segi af sér. Er það vegna raða hneykslismála og umdeildra ákvarðana, sem má segja að hafi byrjað með gleðskap sem haldinn var í bústað Johnson og höfuðstöðvum ríkisstjórnarinnar í Downingstræti 10 í júní árið 2020, þegar strangt samkomubann var í gildi í Bretandi. Johnson...
HeimurÓlöglegur búnaður í bílum frá Hyundai og Kia – Málið er til rannsóknar Díselbílar frá bílaframleiðendum Hyundai og Kia frá 2020 eru taldir vera útbúnir ólöglegum hugbúnaði sem villi sýn á raunverulegum útblæstri. Félag íslenskra bifreiðaeiganda greinir frá á heimasíðu sinni að grunur leiki á að ólöglegum hugbúnaði hafi verið komið fyrir í yfir 210 þúsund díselbíla hjá framleiðendunum Hyundai og Kia. Rannsókn í málinu hefur verið staðfest af talsmanni Hyundai Motor Group....
HeimurSkotmaðurinn í gæsluvarðhald á lokaðri geðdeild – Birti óhugnanlegt myndband Karlmaðurinn sem grunaður er um skotárás í verslunarmiðstöðinni Field’s í Kaupmannahöfn í gær, þar sem þrír létust, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 28. júlí, eða næstu 24 daga. Þetta kemur fram á RÚV en lögreglan í Kaupmannahöfn greindi frá þessu upp úr hádegi. Maðurinn sem um ræðir er 22 ára gamall Dani og á blaðamannafundi dönsku lögreglunnar í dag...
HeimurSkotárásin í Fields – Aldur hinna látnu Eftir blaðamannafund með lögreglunni í Kaupmannahöfn greinir dr.dk frá að 17 ára drengur og stúlka og 47 ára gamall maður eru fórnalömb skotárásar gærdagsins, sem átti sér stað í verslunarmiðstöðinni Fields í Kaupamannahöfn. Auk þeirra látnu voru fjögur önnur skotnin – og eru þau öll á spítala þar sem gert var að sárum þeirra og ástand þeirra alvarlegt. Ekkert bendir...
HeimurKarlmaður ákærður fyrir morðið á Aleenu – Fannst með alvarlega höfuðáverka Jordan McSweeney hefur verið ákærður fyrir morðið á Zöru Aleenu í Ilford í austurhluta London. Aleena, sem var 35 ára gömul, fannst með alvarlega höfuðáverka á Cranbrook Road um klukkan þrjú, aðfaranótt sunnudags. Lést hún síðar um morguninn á sjúkrahúsi. Greindi fréttamiðillinn Sky News frá því að engar vísbendingar hefðu fundist um það hvort vopn hafi verið notað í árásinni....