HeimurTimothée Chalamet leikur Bob Dylan Hjartaknúsarinn Timothée Chalamet æfir nú stíft fyrir hlutverk sitt sem Bob Dylan í myndinni Going Electric sem James Mangold leikstýrir. Myndin fjallar um þann tíma í lífi Dylans þegar hann skipti úr órafmagnaðri þjóðlagatónlist yfir í rafmagnað rokk, breyting sem olli miklum usla á sínum tíma. Bob Dylan sjálfur virðist hæstánægður með verkefnið og er sagður einn framleiðenda myndarinnar. Timothée...
HeimurKansai Yamamoto látinn Kansai Yamamoto japanski tískuhönnuðurinn er látinn, 76 ára að aldri. Banamein hans var hvítblæði. Yamamoto er af mörgum talinn frumkvöðull í tískuhönnun japana. Hann er þekktur fyrir hönnun hans fyrir tónlistarmanninn David Bowie. Samstarf þeirra hófst árið 1970 og varði í mörg ár, og hannaði Yamamoto meðal annars fatnað fyrir Ziggy Stardust, hliðarhjálf Bowie. Bowie sem Ziggy Stardust
HeimurLétti sig um 100 kg til að komast í draumarússíbanann: „Hann breytti lífi mínu“ Jared Ream var 215 kg. þegar hann ákvað að létta sig í þeim tilgangi að geta farið í Orion, nýjan rússíbana í skemmtigarðinum Kings Island sem staðsettur er í Mason í Ohio í Bandaríkjunum. Ream sem er 35 ára og búsettur í Daytona í Ohio er mikill áhugamaður um rússíbana, og eru þeir helsta ástríða hans í lífinu. Í bréfi...
HeimurSkrifa saman handrit að sjónvarpsþáttum um slúðurmiðla Rithöfundarnir Irvine Welsh, höfundur Trainspotting, og Bret Easton Ellis, höfundur American Psycho, eru nú í samningaviðræðum við Burning Wheel Productions um að skrifa í sameiningu handrit að sjónvarpsþáttaröð um bandaríska slúðurfjölmiðla og skoða í leiðinni þau siðlausu og ófaglegu vinnubrögð sem slíkir miðlar stunda. Vinnuheitið er American Tabloid og sagan segir nokkurra áratuga sögu slúðurblaðs, sem tekur pólitíska rétthugsun ekki...
HeimurFyrrverandi eiginkona Elton Johns krefst bóta vegna ævisögu hans Renate Blauel, fyrrverandi eiginkona söngvarans Elton Johns, hefur stefnt honum fyrir að tala um hjónaband þeirra í ævisögu sinni og krefst þriggja milljóna punda, sem samsvarar um 520 milljónum íslenskra króna, í bætur. Málið er nú rekið fyrir Hæstarétti og í málsskjölum kemur fram að Renate telur Elton John hafa brotið gegn því samkomulagi sem þau gerðu þegar þau skildu...
HeimurBræður stukku úr brennandi húsi – Björguðust á ótrúlegan hátt Eldur kom upp í fjölbýlishúsi í borginni Grenoble í Frakklandi á þriðjudag. Bræður, þriggja og tíu ára, tóku þá ákvörðun að stökkva út um glugga á þriðju hæð í húsinu til að forða sér frá eldinum. Fallið var um 10 metrar, en mannfjöldi fyrir neðan greip bræðurna. Greint var frá björguninni í erlendum miðlum, en Fréttablaðið greindi fyrst frá hérlendis....
HeimurSkotmaður á heimili dómara fannst látinn Skotmaður sem grunaður er um skothríð á heimili alríkisdómarans Esther Salas í gær fannst látinn í gær í Catskills fjöllunum í New York í Bandaríkjunum. Hann hefur verið nafngreindur sem Roy Den Hollander lögmaður og aktívisti. Sonur Salas lést í skotárásinni og eiginmaður hennar særðist. Hollander fannst látinn í bíl hans og er sagður hafa tekið eigið líf. Roy Den...
HeimurCovid-19Leiðtogar Evrópusambandsríkja ná sögulegu samkomulagi Leiðtogar Evrópsambandsins hafa náð samkomulagi um tilhögun 750 milljarða evra björgunarsjóð handa þeim ríkjum sambandsins sem illa hafa orðið úti í COVID-19 faraldrinum. Þá hafa þeir samið um sjö ára fjárhagsáætlun sambandsins. Leiðtogar sambandsins komust að samkomulagi í málinu í Brussel í morgun eftir fjögurra daga strangar viðræður. Að þeim loknum sagði Emmanuel Macron Frakklandsforseti að um væri að ræða...
HeimurCovid-19Alls greindust 259.848 með veiruna Alls greindust 259.848 manns með kórónaveiruna á einum sólarhringi. Smitum á heimsvísu hefur aldrei fjölgað jafn mikið og þarsíðasta sólarhring. Aukningin varð mest í Bandaríkjunum, Brasilíu, Suður-Afríku og á Indlandi. Þetta er samkvæmt gögnum frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, WHO. Þar kemur jafnframt fram að 7.360 manns hafi látist af völdum veirunnar, en COVID-19 hefur ekki dregið fleiri til dauða á einum sólarhring,...
HeimurBókin um Trump rýkur út Bók Mary Trump um föðurbróður hennar, Donald Trump bandaríkjaforseta, rýkur út. 950 þúsund eintök seldust á fyrsta degi í sölu og situr bókin í efsta sæti á metsölulista Amazon. Bókin „Too Much and Never Enough: How My Family Created the World‘s Most Dangerous Man,” sem útleggst á íslensku sem: „Of mikið og aldrei nóg: Hvernig fjölskylda mín skapaði hættulegasta mann...
HeimurSex ára drengur bjargaði systur sinni frá árás óðs hunds Bridger Walker, sex ára, ákvað að fórna sjálfum sér þegar óður hundur gerði sig líklegan til að ráðast á yngri systur hans fjögurra ára.
HeimurÍhuga að banna TikTok Bandarísk stjórnvöld íhuga að banna TikTok. Stjórnvöld í Bandríkjunum íhuga nú þann mögulega að banna TikTok og fleiri kínverska samfélagsmiðla vegna ásakana um að kínversk stjórnvöld noti forritið til þess að njósna um notendur þess. Þetta kom fram í máli Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, á bandarísku sjónvarpsstöðinni Fox News í gær. Þar sagði Pompeo að stjórnvöld þar í landi litu...