Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Létti sig um 100 kg til að komast í draumarússíbanann: „Hann breytti lífi mínu“

Létti sig um 100 kg til að komast í draumarússíbanann: „Hann breytti lífi mínu“

Jared Ream var 215 kg. þegar hann ákvað að létta sig í þeim til­gangi að geta farið í Orion, nýjan rús­sí­bana í skemmti­garð­inum Kings Island sem stað­settur er í Mason í Ohio í Banda­ríkj­unum.

Ream sem er 35 ára og búsettur í Daytona í Ohio er mik­ill áhuga­maður um rús­sí­bana, og eru þeir helsta ástríða hans í líf­inu. Í bréfi sem hann skrif­aði og birt­ist á Dayton.com kemur fram að hann hefur ávallt verið stór maður, hann er 2,6 metrar á hæð og þegar hann var þyngstur var hann yfir 200 kg. Ream segir að stærð hans hafi oft valdið því að hann gat ekki farið í rús­sí­bana.

„Það er ekk­ert verra en að þurfa að ganga í burtu frá rús­sí­bana af því að þú mátt ekki fara með honum, það vitum við sem erum of hávaxin og/eða of þung,“ segir Ream. „Örygg­is­fest­ing­arnar kom­ast ekki utan um þig, þær meiða mann og ég veit alveg hvernig það er.“

Ream er með­limur í félagi banda­ríska áhuga­manna um rús­sí­bana. Þrátt fyrir ástríðu hans á rús­sí­bönum, en Ream segir að hugur hans sé eins og alfræði­orða­bók af skemmti­görðum og þekk­ingu um rús­sí­bana, ákvað hann að hætta að stunda áhuga­mál sitt þegar hann byrj­aði í skrif­stofu­vinnu. Þyngd hans jókst vegna skorts á hreyf­ingu og vegna óholl­ustu í matar­æði.

„Þegar ég varð yfir 150 kg vissi ég að ég myndi ekki lengur kom­ast í rús­sí­bana,“ segir Ream. „Sjálfs­traust mitt minnk­aði, blóð­þrýst­ingur og kól­esteról jókst. Ég hætti að vigta mig af því að það jók bara á þung­lyndið. Ég hætti að fara í skemmti­garð­ana af því að ég sá að það var engin ástæða til þess. Síðustu tíu ár hafa margir frá­bærir rús­sí­banar verið byggðir og ég hef misst af ferð með flestum þeirra.“

Jared Ream

Á þessum tíma var Ream búinn að prófa 295 rús­sí­bana og var búinn að gef­ast upp á því mark­miði sínu að ná 300.

Í ágúst 2019 frétti Ream að Kings Island skemmti­garð­ur­inn, sem hann heim­sótti oft sem barn með fjöl­skyldu sinni, væri að fá nýtt tæki: Orion, 90 metra háan rús­sí­bana hann­aðan af upp­á­halds­fram­leið­anda Ream, B&M.

„Þarna kom loks­ins hvatn­ingin sem mig vant­aði,“ segir Ream.  „Ég var búinn að lofa sjálfum mér því að ef rús­sí­bani hann­aður af B&M kæmi í Kings Islands, þá myndi ég taka mér ferð með honum, sama hvað. Ég ákvað dag­inn sem ég las til­kynn­ing­una að grenna mig og fara ferð með rús­sí­ban­anum opn­un­ar­dag­inn,“ segir Ream, sem keypti sér vigt sama dag og þá var hann 215 kg. Hann æfði sig í bíl­skúrnum heima hjá sér, pass­aði vel upp á matar­æðið og fastaði, auk þess að sofa tíu klukku­stundir á dag. Á 321 degi missti hann 95 kg.

Ream mættur í drauma­ferð­ina

Ream var boðið að vera við sér­staka opnun 1. júlí, degi áður en opnað var að nýju fyrir almenn­ing eftir að skemmti­garð­ur­inn lok­aði tíma­bundið vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.

„Þegar ég labb­aði inn garð­inn þá hugs­aði ég stöðugt um hversu hepp­inn ég væri að vera þar. Ekki aðeins var allt erf­iðið gott fyrir mig heilsu minnar vegna, heldur gat ég líka leyft mér að njóta ástríðu minnar aftur, nokkuð sem ég hafði ekki leyft mér í nokkur ár.“

Eftir að Ream hafði prófað að festa sig í prufu­sæti, fór hann í röð­ina og fór loks­ins ferð með rús­sí­ban­anum, sem varð sá 300-asti sem hann tók sér ferð með.

„Þú sást það ekki vegna grímunnar sem ég var með, en ég var eitt sól­skins­bros. Ég var svo ham­ingju­samur og spenntur að ég gleymdi að líta í kringum mig og njóta útsýn­is­ins. Við vorum strax komin á topp­inn og á leið­inni niður fyrsta frá­bæra „droppið.“ Restin af ferð­inni flaug hjá. Þar sem ég var einn vegna reglna um fjar­lægð milli fólks, þá leyfði ég hand­leggjum og fótum að slengj­ast til og frá.“

Þegar ferð­inni lauk fór Ream aðra ferð, og svo aðra, og þá fjórðu til. Í hvert skipti sat hann á nýjum stað. Hann segir að margir skilji það ekki, en Orion rús­sí­ban­inn var hvatn­ingin sem hann þurfti á að halda til að breyta lífi sínu.

„Bara hug­myndin um rús­sí­ban­ann gaf mér inn­blástur til að breyta lífi mínu. Ég hafði mikið fyrir því að kom­ast ferð með þessu trylli­tæki. Ég get í sann­leika sagt að það var þess virði, og ég veit að ég get farið fleiri og fleiri ferðir það sem eftir er ævinnar.“

Jared Ream
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco