HeimurCovid-19Kórónusmitum fjölgar skyndilega aftur í Kína Kínversk yfirvöld hafa lokað ellefu íbúahverfum í höfuðborginni Beijing vegna nýrra COVID-19 smita sem komu upp og eru rakin til kjötmarkaðar í borginni. Fimm manns, þrír starfsmenn á markaðnum, tveir kúnnar og starfsmenn kjötrannsóknarstofnunar, sem unnu að því að taka hann út, greindust með veiruna og í kjölfarið tugir manns. Fólkið er nú undir eftirliti lækna. Þetta eru fyrstu smitin...
HeimurSegir Andrew látast vera samvinnuþýður Saksóknari í máli kynferðisafbrotamannsins og auðkýfingsins Jeffrey Epstein segir Andrew Bretaprins látast vera samvinnuþýður þegar kemur að rannsókn málsins þegar hann í raun hefur ekki veitt rannsakendum neinar upplýsingar. Bandaríski saksóknarinn Geoffrey Berman segir Andrew ítrekað hafa hafnað beiðni hans um viðtal vegna rannsóknar á máli Epstein. Lögmenn Andrews sendu frá sér yfirlýsingu í gær þar sem þeir hafna því...
HeimurCovid-19Mikil fækkun dauðsfalla af völdum Covid-19 í Bretlandi Dauðsföll af völdum Covid-19 í Bretlandi síðasta sólarhringinn voru fimmtíu og fimm sem eru færri dauðsföll en hafa verið skráð á einum sólarhring síðan útgöngubann hófst, þann 23. mars. Í Skotlandi og á Norður-Írlandi hafa engin dauðsföll af völdum Covid-19 verið skráð síðustu tvo sólarhringana. Sömu sögu er að segja af sjúkrahúsum í London, þar sem sjúkdómurinn hefur verið útbreiddastur,...
HeimurTelja sig laus við veiruna Næstum öllum takmörkunum sem settar voru á vegna kórónuveirufaraldursins hefur verið aflétt í Nýja-Sjálandi. Ekkert staðfest virkt smit er í landinu og telja yfirvöld þar í landi að þau séu laus við veiruna. Ekkert nýtt smit hefur greinst í Nýja-Sjálandi í tvær vikur. Jacinda Ardern forsætisráðherra Nýja-Sjálands segist hafa stigið lítinn dans þegar hún frétti að landið væri laust við...
HeimurSögulegir skór Elísabetar í nýrri útgáfu Glæsilegir skór sem Elísabet Bretlandsdrottning klæddist þegar hún tók við bresku krúnunni þann 2. júní 1953 hafa nú verið endurhannaðir og settir á markað á nýjan leik. Gylltu skórnir sem Elísabet klæddist við krýningarathöfnina voru úr smiðju franska skóhönnuðarins Roger Henri Vivier (1907 – 1998). Hann sagði skóna eiga að vera „skartgripi fyrir fæturna“. Núna, 67 árum síðar, eru skórnir...
HeimurSegir Donald Trump misnota vald sitt og ýta undir átök James Mattis, fyrrverandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, segir Donald Trump Bandaríkjaforseta ýta undir átök og sundrungu. Honum er misboðið vegna þess hvernig Trump kom fram við fólk sem tók þátt í friðsælum mótmælum í nágrenni við Hvíta húsið á mánudaginn. Þessu greindi hann frá í viðtali við The Atlantic magazine sem kom út í gær. Trump hefur verið gagnrýndur fyrir viðbrögð sín...
HeimurParísarbúar flykktust á kaffihús Kaffihús víða um Frakkland voru opnuð aftur í gær eftir ellefu vikna lokun vegna kórónuveirufaraldursins. Prísarbúar flykktust á kaffihús borgarinnar í gær og gæddu sér á kaffi og öðrum veitingum á útisvæðum þar sem ekki er leyfilegt að sitja inni af sóttvarnarástæðum. Sömuleiðis mega viðskiptavinir ekki drekka né borða standandi við barborð kaffihúsanna. Þetta er meðal þeirra reglna sem eru...
HeimurVerslunareigendur senda frá sér stuðningsyfirlýsingu þrátt fyrir skemmdarverk Skemmdarverk hafa verið unnin á fjölmörgum verslunum í mótmælunum sem hafa brotist út víða um Bandaríkin í kjölfar dauða George Floyd. Brotnar rúður, tómar hillur og varningur á víð og dreif einkennir margar verslanir þar sem skemmdarverk hafa verið unnin. Í umfjöllun New York Times um málið segir að skemmdarverkin geri illt geri illt verra þar sem margir verslunareigendur hafa...
HeimurCovid-19„Ég sé margt fólk en ég sé engar grímur“ Bandaríkjamenn flykktust út af heimilum sínum í gær og margir nutu lífsins á ströndinni í tilefni af Memorial Day, lögboðnum frídegi í Bandaríkjunum. Í öllum fylkjum Bandaríkjanna hefur verið slakað á takmörkunum sem settar voru á vegna útbreiðslu COVID-19 en áfram eru Bandaríkjamenn hvattir til að halda fjarlægð við hvorn annan á almannafæri, nota andlitsgrímur og passa áfram upp á...
HeimurMyndband: Forsætisráðherra Nýja Sjálands hélt ró sinni þegar stór skjálfti reið yfir Jacinda Ardern, forsætisráðherra Nýja Sjálands, lét stóran jarðskjálfta sem reið yfir Nýja Sjáland í gær lítið á sig fá. Skjálftinn reið yfir þegar hún var í viðtali í beinni útsendingu við The AM Show. Upptök skjálftans voru um 30 kílómetra norðvestur af bænum Levin sem er skammt frá Wellington, höfuðborg Nýja Sjálands. Skjálftinn mældist 5,8 stig og fannst vel í...
HeimurSegir ákvörðun Boris Johnson grafa undan trúverðugleika hans Breski þingmaðurinn Edward Davey er meðal þeirra sem hafa sem hafa gagnrýnt ákvörðum Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands um að verja brot aðalráðgjafa síns, Dominics Cummings, sem braut reglur á útgöngubanni. Forsaga málsins er sú að Cummings fór að minnsta kosti tvisvar akandi þvert yfir England til að heimsækja foreldra sína og koma syni sínum í pössun eftir að bæði hann...
HeimurBoris Johnson ver brot aðalráðgjafa síns Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, lýsti því yfir á daglegum blaðamannafundi ríksisstjórnarinnar í dag að hann ætlaði ekki að krefjast afsagnar aðalráðgjafa síns, Dominics Cummings, vegna brota þess síðarnefnda á reglum um útgöngubann í Bretlandi. Johnson segir Cummings hafa sýnt ábyrgð og farið að lögum. „Hann gerði það sem allir feður myndu gera,“ sagði Johnson á fundinum. Forsaga málsins er sú...