HeimurHressandi æfing sem auðvelt er að gera heima í stofu Í þessari æfingarútínu er ýmsum bardagalistum blandað saman, eins og muay tay, tae kwon do, kung fu og capoeira. Það þarf engan búnað til að gera þessa hálftímalöngu rútínu heima í stofu, nema þá helst vatnsbrúsa til að væta kverkarnar. Þessi kemur sko blóðflæðinu af stað og endurnærir mann.
HeimurÞetta gerist þegar maður sofnar í viðurvist barna Leikarahjónin Channing Tatum og Jenna Dewan Tatum eiga saman dótturina Everly, sem er fjögurra ára. Everly hefur unun af því að leika sér með málningardót og taka foreldra sína í yfirhalningu, eins og mörg börn gera. Channing og Jenna deildu afrakstri dóttur sinnar um helgina þar sem hún hafði tekið þau í það sem virðist vera ofurhetjuyfirhalningu. „Þetta gerist þegar...
HeimurNotar hland og saur til að halda á sér hita Sjónvarpsmaðurinn Bear Grylls er hvað þekktastur fyrir alls kyns þætti þar sem hann þarf að bjarga sér einn og óstuddur í óbyggðum, til dæmis í þáttunum Man vs. Wild, þar sem hann heimsótti til að mynda Ísland. Nú eru þættirnir Face the Wild, með fyrrnefndum Bear, að fara í loftið á Facebook, en í þeim býður Bear tíu aðdáendum sínum...
HeimurBreytti fataskáp í ævintýraveröld fyrir dótturina Það er eitthvað svo spennandi við það þegar maður er lítill að eiga sitt eigið leyniathvarf, þar sem maður getur falið sig fyrir heiminum. Flestir láta sér nægja að börnin sín eigi sinn leynistað í hefðbundnum fataskápum en það var ekki nóg fyrir innanhússarkitektinn Lauru Medicus. Teikning af verkefninu. Laura vildi búa til eitthvað í anda Narníu fyrir ellefu ára...
HeimurÓlöglegt að deyja í þessum afskekkta bæ Í norska bænum Longyearbyen búa um tvö þúsund manns, en íbúar bæjarins þurfa að fylgja mjög sérstökum lögum: þeir mega alls ekki deyja í bænum. Longyearbyen er á Svalbarða, en þar er svo kalt að það hefur verið ólöglegt að deyja þar síðan árið 1950 þegar íbúar uppgötvuðu að lík væru ekki að rotna í kirkjugarðinum vegna kalds loftslags. Árið...
Heimur„Þessi stelpa er ekki feit“ Victoria’s Secret-fyrirsætan Bridget Malcom, sem hefur einnig setið fyrir í V Magazine og unnið fyrir Ralph Lauren, birti gamla mynd af sér í bikiníi á Instagram fyrir stuttu. Við myndina opnaði hún sig um líkamsímynd. „Þessi stelpa er ekki feit. Ég man þegar þessi mynd var tekin. Mér hafði verið sagt að ég þyrfti að grennast. Ekki í fyrsta sinn...
HeimurFjórtán konur gáfu brjóst á ströndinni og það var himnesk stund Ljósmyndarinn Trina Cary ákvað að bjóða alls konar konum að koma saman á strönd einni og gefa börnum sínum brjóst við sólarlag. „Þetta var gjörsamlega unaðslegt,“ skrifar ljósmyndarinn á vefsíðu sína og lætur fylgja með dásamlegar myndir af þessari brjóstagjafarstund. Algjör kyrrð. Margar af konunum sem mættu á ströndina hafa átt í erfiðleikum með brjóstagjöf, sem gerði stundina enn fallegri....
Heimur10 mínútna æfing sem gerir rassinn stinnan Þjálfarinn Nicole Steen er búin að setja saman tíu mínútna æfingarrútínu sem er ætluð til að gera rassinn stinnari, ef æfingin er gerð reglulega. Hér þarf engin tól eða tæki, bara eigin líkamsþyngd, en gott er að vera með mottu eða teppi fyrir hnén. Þessi æfing er vægast sagt algjör snilld.
HeimurÞessar kisumyndir eru hugsanlega það sætasta sem þú sérð í dag Japanski Twitter-notandinn Mttkmsan ákvað í sakleysi sínu um daginn að birta mynd af ketti nágranna síns er hann var að teygja sig í svefni. Þessi mynd Mttkmsan fór heldur betur eins og eldur um sinu í japanska Twitter-samfélaginu og er það nú orðið gríðarlega vinsælt þar í landi að birta myndir af kisum að teygja sig á samfélagsmiðlinum. Hér fyrir...
HeimurFegurð, glæsileiki og sérstaða Þeir eru hannaðir til að fanga athygli okkar út frá fegurð, glæsileika og sérstöðu. Þeir eru bílarnir sem við fáum aldrei að aka, einfaldlega vegna þess að suma þeira er ekki hægt að setja í gang.
HeimurHressandi æfingarrútína sem blandar saman dansi og styrktarþjálfun Í meðfylgjandi myndbandi má sjá hálftímalanga æfingarrútínu sem búin var til af þjálfaranum Megan Roup. Rútínan er mjög skemmtileg og blandar saman dansi og styrktarþjálfun, sem gerir hana ansi hressandi. Í myndbandinu má sjá konurnar nota lóð og sérstakar mottur, en auðvelt er að sleppa lóðunum eða fylla hálfslítra flöskur af vatni til að nota sem lóð. Þá er hægt...