HeimurTýndi 200 milljón króna trúlofunarhring á næturklúbbi Raunveruleikastjarnan og hótelerfinginn Paris Hilton ku hafa týnt trúlofunarhring sínum, sem metinn er á tvær milljónir dollara, tæplega tvö hundruð milljónir króna, á dansgólfinu á næturklúbbi á Miami um helgina, samkvæmt frétt Page Six. Betur fór en á horfðist, en Paris og unnusti hennar, Chris Zylka, þræddu næturklúbbinn með öryggisvörðum staðarins og fundu hringinn að lokum. Hafði hann lent í...
HeimurGerði allt vitlaust með opinberun um samkynhneigðan kærasta Söngkonan Christina Aguilera opnaði sig í þættinum Untucked, sem var sýndur strax á eftir frumsýningu á fyrsta þætti í tíundu seríu af þættinum RuPaul’s Drag Race. Þættirnir snúast um að finna næstu stórstjörnu í dragi. Dragdrottningarnar spurðu Christinu spjörunum úr og barst lagið Infatuation af plötunni Stripped frá árinu 2002 í tal, en í því lagi syngur hún um elskhuga...
HeimurSýnir og sannar að rassar á Instagram eru ekki ekta Einkaþjálfarinn Anna Victoria birti mynd á Instagram í vikunni sem hefur vakið talsverða athygli. Á myndinni setur hún saman tvær myndir, einni af afturenda sínum í eðlilegri stöðu og annarri af því sem hún kallar Instagram-afturenda. Við myndina uppljóstrar hún sannleikanum um téða Instagram-afturenda. A post shared by Anna Victoria (@annavictoria) on Mar 20, 2018 at 6:25pm PDT „Eitt sem...
HeimurHjálpar fólki að lækka kaloríufjöldann með einföldum hætti Amanda Meixner heldur úti Instagram-síðunni meowmeix, sem hefur notið gríðarlegra velgengni síðustu misseri. Amanda birtir alls kyns fróðleik um mat og mataræði á síðunni, og hjálpar fólki til að mynda að lækka kaloríufjöldann sem það innbyrðir á einfaldan og myndrænan hátt. Amanda hefur til að mynda birt tvær myndir hlið við hlið af skál með grískri jógúrt, ávöxtum og súkkulaði....
HeimurSvona eyðir þú Facebook-síðunni þinni Í ljósi nýjustu fregna af fyrirtækinu Cambridge Analytica og hvernig það notfærði sér persónuupplýsingar milljóna notenda Facebook í Bandaríkjunum í pólitískum tilgangi, hafa margir notendur samfélagsmiðilsins um allan heim velt fyrir sér hvort best væri að hætta alfarið á Facebook. En það getur verið erfitt að segja skilið við samfélagsmiðilinn, eins og fréttavefur Huffington Post fjallar um. Í umfjölluninni er...
HeimurDeilir fallegri og eggjandi bumbumynd Raunveruleikastjarnan Khloé Kardashian á von á sínu fyrsta barni með kærasta sínum, körfuboltamanninum Tristan Thompson. Khloé hefur verið dugleg að leyfa aðdáendum sínum að fylgjast með meðgöngunni á Instagram og hefur birt ófáar bumbumyndirnar síðan hún opinberaði óléttuna fyrir þremur mánuðum síðan. Nú styttist í litla kraftaverkið, en Khloé birti ofboðslega fallega og eggjandi óléttumynd af sér í undirfötum í...
HeimurDeilir loksins myndum úr brúðkaupinu Fyrirsætan Kate Upton gekk að eiga körfuboltamanninn Justin Verlander í Toskana á Ítalíu í nóvember í fyrra en deildi brúðkaupsmyndunum fyrst núna í vikunni á Instagram, aðdáendum hennar til mikillar ánægju. A post shared by Kate Upton (@kateupton) on Mar 18, 2018 at 10:36am PDT Parið trúlofaði sig árið 2016 og eins og sést á brúðkaupsmyndunum hér fyrir neðan var...
HeimurSjáið hvernig blóðmaur nær taki á húðinni Þeir sem hafa lent í því að blóðmaur eða blóðmítill hreiðri um sig á húðinni vita hve erfitt það getur verið að losa sig við maurinn. Í meðfylgjandi myndbandi má sjá nákvæmlega af hverju blóðmaurarnir sitja sem fastast þegar þeir komast í gómsætt fæði, það er blóð. Munnur þeirra er nefnilega hannaður til að festa sig við húðina, jafnvel svo...
HeimurKom í heiminn skælbrosandi eftir erfiða fæðingu Angel Taylor, 33ja ára kona frá Bremerton í Washington-fylki í Bandaríkjunum, var sett um miðbik mars mánuðar, en þurfti óvænt að leggjast inná sjúkrahús, ólétt af sínu þriðja barni, þann 5. mars vegna þess að blóðþrýstingur ófædda barnsins var orðinn lífshættulega lágur. Angel og maður hennar þurftu því að pakka saman í flýti, þar sem þau höfðu ekki búist við...
HeimurSumar konur fá fullnægingu 55 sinnum í mánuði Ný rannsókn sýnir fram á að sumar konur fái fullnægingu allt að 55 sinnum í mánuði, en þær konur stunda kynlíf með öðrum konum. Rannsóknin var birt í Archives of Sexual Behavior en rannsakendur skoðuð kynlíf tæplega þrjú þúsund kvenna. Konunum var skipt í tvo hópa: þær sem stunda aðallega kynlíf með körlum og þær sem stunda aðallega kynlíf með...
HeimurÞetta er ástæðan fyrir því að íbúð Monicu var fjólublá Leikmyndahönnuðurinn John Shaffner, sem sá um að hanna leikmyndina fyrir sjónvarpsþættina sívinsælu Friends, opnar sig í samtali við Great Big Story um af hverju íbúð einnar aðalpersónunnar, Monicu, var fjólublá. Fjólublár er mjög afgerandi litur og eflaust fáir sem væru til í að mála heila íbúð í þessum lit, en John þurfti einmitt að berjast við aðra yfirmenn við gerð...
HeimurGrínast með sakaferilinn í nýrri auglýsingu Leikkonan Lindsay Lohan, sem var eitt sinn ein alræmdasta partípían vestan hafs, er nýtt andlit lögfræðiþjónustunnar lawyer.com. Lindsay slær á létta strengi í nýrri auglýsingu frá fyrirtækinu og gerir stólpagrín að sér sjálfri. „Þegar lawyer.com hafði samband við mig var ég fyrst ringluð og örlítið hrædd því ég hélt að ég væri í vandræðum. Þegar þeir svo spurðu hvort ég...