HeimurÞað eru þrjátíu þúsund konur á biðlista fyrir þessi nærföt Umhverfisvæni fataframleiðandinn Everlane setti á markað nýja undirfatalínu á mánudag, en línan er mjög minimalísk og eru þægindi sett í fyrirrúm. Nú þegar eru tæplega þrjátíu þúsund konur á biðlista fyrir þessi nærföt og búist er við því að listinn muni aðeins lengjast næstu daga. Hægt er að fá toppa, brjóstahaldara og nærbuxur í línunni og er ekkert í henni...
HeimurBer olíu á bossa fáklæddar eiginkonunnar Leikkonan og fyrirsætan Emily Ratajkowski gekk að eiga kvikmyndaframleiðandann Sebastian Bear-McClard fyrir mánuði síðan og njóta þau nú lífsins í brúðkaupsferð. Take me back A post shared by Emily Ratajkowski (@emrata) on Mar 21, 2018 at 10:24am PDT Emily hefur verið dugleg að birta myndir úr ferðinni á Instagram, en athygli hefur vakið að Emily er nánast aldrei í fötum...
HeimurSvona getur þú fengið ódýrustu flugfargjöldin Oft hefur því verið haldið fram að best sé að panta flugfargjöld eins langt fram í tímann og hægt er til að tryggja lægsta verðið. Ný greining hjá fyrirtækinu CheapAir kollvarpar hins vegar þessari kenningu. Samkvæmt greiningu CheapAir er ódýrast að panta flug í Bandaríkjunum sjötíu dögum fyrir brottför. Ef ferðalangar ná ekki að bóka á þeim degi ættu þeir...
HeimurBorgaði margar milljónir fyrir að klæða stjörnur á Óskarnum Það er ekkert launungamál að kjólarnir sem frægustu konur heims klæðast á Óskarsverðlaunahátíðinni, sem og öðrum hátíðum, eru fokdýrir. Þekkt er að stjörnur fái kjóla lánaða frá hönnuðum á stóra daginn, en það er talin ein besta auglýsingin sem hönnuðir fá í bransanum. Hins vegar vita kannski færri að hönnuðurinn ber ekki aðeins kostnað af gerð kjólanna, sem hleypur á...
HeimurDonald Trump fastur í teiknimyndamartröð Donald Trump, Bandaríkjaforseti, fær á baukinn í nýju atriði úr smiðju fólksins sem hefur fært okkur 29 seríur af teiknimyndaþáttunum The Simpsons. Atriðið heitir A Tale of Two Trumps, eða saga um Trump-ana tvo, sem er vísan í skáldsöguna A Tale of Two Cities eftir Charles Dickens. Í atriðinu er Trump fastur í teiknimyndamartröð þar sem hann játar allar syndir...
HeimurÆðislegt kraftjóga sem losar um streitu Í meðfylgjandi myndbandi leiðir jógakennarinn Jess Taras okkur í gegnum þrjátíu mínútna kraftjógatíma sem reynir vel á bæði liðleika og styrk. Mikil áhersla er lögð á að styrkja kvið, bak og rass í þessari æfingu, en einnig einblínir Jess á öndun, sem gerir það að verkum að þessi æfing losar um streitu. Hægt er að gera æfinguna heima í stofu,...
HeimurDóttir Michael Jackson kyssir ofurfyrirsætu Paris Jackson, dóttir poppkonungsins sáluga Michael Jackson, sást kyssa ofurfyrirsætuna og Íslandsvininn Cöru Delevingne í Vestur-Hollywood í síðustu viku. Paris og Cara voru á tvöföldu stefnumóti með guðföður Paris, leikaranum Macaulay Culkin og kærustu hans, Brendu Song. Fréttavefurinn Us Magazine birtir myndir af stefnumótinu, þar sem Paris og Cara sjást kyssast innilega og faðmast. Myndirnar má sjá með því að...
HeimurFlengdi forsetann og stundaði með honum óvarið kynlíf Það er fátt meira á milli tannanna á fólki í dag en viðtal við klámmyndastjörnuna Stormy Daniels, sem heitir réttu nafni Stephanie Clifford, í þættinum 60 Minutes, sem sýndur var í gærkvöldi vestan hafs. Stormy heldur því fram að hún hafi átt í sambandi við Donald Trump, Bandaríkjaforseta en hafi verið borgað fyrir að þegja um sambandið í aðdraganda forsetakosninganna...
HeimurGeggjuð Zumba-æfing sem hressir, bætir og kætir Þjálfarinn Ai Lee Syarief er búin að búa til frábæra Zumba-æfingu sem er ekki algjörlega hefðbundin. Í æfingunni blandar Ai saman Zumba og styrktaræfingum og eitt er víst – þessi rútína á eftir að ná hjartslættinum upp. Æfinguna má sjá hér fyrir neðan og það eina sem maður þarf til að gera hana eru góðir hátalarar, skilningsríkir nágrannar og nóg...
HeimurSex ára drengur segir veðurfréttir og það er æði Hinn sex ára gamli Carden Corts varð internetstjarna á einni nóttu fyrir stuttu eftir að skólaverkefni sem hann gerði rataði á YouTube. Verkefnið fólst í því að krakkarnir í bekknum þurftu að búa til myndband þar sem þeir sögðu veðurfréttirnar, og má með sanni segja að Carden hafi leyst það verkefni með stæl. Myndbandið má sjá hér fyrir neðan, en...
HeimurTýndi 200 milljón króna trúlofunarhring á næturklúbbi Raunveruleikastjarnan og hótelerfinginn Paris Hilton ku hafa týnt trúlofunarhring sínum, sem metinn er á tvær milljónir dollara, tæplega tvö hundruð milljónir króna, á dansgólfinu á næturklúbbi á Miami um helgina, samkvæmt frétt Page Six. Betur fór en á horfðist, en Paris og unnusti hennar, Chris Zylka, þræddu næturklúbbinn með öryggisvörðum staðarins og fundu hringinn að lokum. Hafði hann lent í...
HeimurHundar nuddaðir með förðunarburstum er nýjasta æðið Hvernig væri að eyða þessum sunnudegi í að horfa á sæta hunda vera nuddaða og klappað með förðunarburstum, aftur og aftur og aftur? Það hefur skapast nýtt æði á Instagram sem felst í því að birta myndbönd af hundum sem eru dekraðir með förðunarburstum og það er sjúklega sætt. Ekki hafa áhyggjur, það er enginn farði í burstunum, heldur er...