Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Svona eyðir þú Facebook-síðunni þinni

Svona eyðir þú Facebook-síðunni þinni
|

Í ljósi nýj­ustu fregna af fyr­ir­tæk­inu Cambridge Analytica og hvernig það not­færði sér per­sónu­upp­lýs­ingar millj­óna not­enda Facebook í Banda­ríkj­unum í póli­tískum til­gangi, hafa margir not­endur sam­fé­lags­mið­ils­ins um allan heim velt fyrir sér hvort best væri að hætta alfarið á Facebook.

En það getur verið erfitt að segja skilið við sam­fé­lags­mið­il­inn, eins og frétta­vefur Huffington Post fjallar um. Í umfjöll­un­inni er talað við Serge Egelman, yfir­mann rann­sókna hjá Berkeley Laboratory for Usable and Experimental Security, fyr­ir­tæki sem er tengt Kali­forn­íu­há­skóla. Hann segir að Facebook geri ýmis­legt til að halda not­endum sínum.

Þar sem aðal­tekju­liður Facebook sé að safna gögnum um fólk hefur fyr­ir­tækið unnið að því að gera not­endum sam­fé­lags­mið­ils­ins erfitt að eyða síðu sinni, eða prófíl, að sögn Serge. Er það reyndar tekið fram að þegar eitt­hvað er birt á inter­net­inu þá sé ekki hægt að eyða því hvort sem er. Fram að árinu 2007 eyddi Facebook ekki út not­enda­upp­lýs­ingum þó að not­endur eyddu síðum sínum. Þeir gerðu not­enda­síð­urnar ein­fald­lega óvirkar, sem þýddi að not­endur gætu auð­veld­lega skráð sig á Facebook á nýjan leik og fengið allar upp­lýs­ingar um sig til baka, sem og myndir og mynd­bönd sem not­endur höfðu birt. Árið 2008 byrj­aði Facebook að bjóða uppá var­an­lega eyð­ingu á síðum.

Margir nota sam­fé­lags­miðla til að birta myndir úr dag­lega líf­inu, svo sem af matnum sem þeir borða.
Í dag eru því tveir kostir í boði fyrir not­endur Facebook: að gera síðu eða prófíl óvirkan, þannig að not­andi geti snúið aftur á Facebook og haldið öllu efni sínu, eða eyð­ing, sem eyðir not­enda og öllum gögnum um hann úr gagna­banka Facebook. Einfalt er að óvirkja prófíl­inn sinn en öllu erf­ið­ara er að eyða honum alfarið úr kerf­inu.

Til að eyða prófíl algjör­lega þarf að hafa sam­band við Facebook og fara í gegnum marg­skipt og tíma­frekt ferli. Síðan þarf not­andi að bíða í tvær vikur eftir að beiðni um eyð­ingu er í vinnslu. Ef not­andi hins vegar skráir sig inn á Facebook á þessu tveggja vikna tíma­bili, gengur eyð­ingin til baka og hann þarf að byrja uppá nýtt.

Bent er á í grein­inni að það sé í raun til þriðji val­kostur sem er að gera ekki neitt. Ein­fald­lega að hætta að skrá sig inn á Facebook. Telur Serge að það ger­ist oft.

Facebook svar­aði ekki fyr­ir­spurn blaða­manns Huffington Post um hve margir not­endur hefðu óvirkjað eða eytt síðum sínum við vinnslu grein­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco