InnlentBrynjar fékk vinnu Dómsmálaráðherra skipaði Brynjar Níelsson i gær sem dómara við Héraðadóm Reykjavíkur. Brynjar er því kominn með vinnu eftir að hafa verið í óvissu allt frá því hann féll af þingi í þarsíðustu kosningum. Hann hefur síðan sverið sem aðstoðarmaður dómsmálaráðherra og unnið ýmis íhlaupastörf á póliískum óvissutímum. Hann hefur verið áberandi á Facebook þar sem hjann naut vinsælda fyrir gamansamar...
InnlentLögreglan vakti farþegann í leigubílnum – Drykkjubolti ógnaði vegfarendum og endaði í fangaklefa Lögregla hafði afskipti af meintum dópsala í austurborginni. Hann er grunaður um vörslu fíkniefna. Buðarþjófur gripinn við iðju sína í verslun. Hinn grunaði laus að lokinni skýrslutöku. Innbrotsþjófur var staðinn að verki við iðju sína. Hann var handtekinn áður en honum tókst ætlunarverk sitt. Hinn handtekni er grunaður um vörslu fíkniefna. Lögreglan hafði afskipti af einstaklingi í vesturborginni. Sá er...
InnlentSjálfstæðisflokknum sparkað út: „Mér þykir þetta í raun með eindæmum lítilmannlegt“ Þingflokki Sjálfstæðisflokksins hefur verið sparkað út úr vinnuherbergi sínu á Alþingi en flokkurinn hefur haft sama herbergi í meira en 80 ár. Þetta er ákvörðun forsætisnefndar Alþingis en áður hafði Ragna Árnadóttir, skrifstofustjóri Alþingis, úrskurðað um að Sjálfstæðisflokkurinn myndi halda herberginu. Ljóst er að þingflokkur Samfylkingarinnar muni fá herbergið til afnota en flokkurinn vildi fá herbergið verandi fjölmennasti flokkurinn á...
InnlentÁrshátíð borgarstjórnar kostaði Reykvíkinga tæpar tvær milljónir króna Árshátíð borgarstjórnar Reykjavíkur þann 11. janúar síðastliðinn kostaði borgarbúa rúmlega 1,8 milljónir króna. Árshátíð borgarstjórnar Reykjavíkur var haldin með pompi og prakt á Kjarvalsstöðum þann 11. janúar síðastliðinn en samkvæmt upplýsingum frá borginni voru 91 gestur á hátíðinni. Borgaði hver um sig 9.500 krónur í aðgangseyri, jafnt makar sem aðrir gestir. Eftirstandandi kostnaður vegna hátíðarinnar hljóðaði upp á 1.806.301 króna...
InnlentStarfsmannaflóttinn frá Sýn heldur áfram Kristín Ólafsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra en greint er frá þessu á vef stjórnarráðsins „Kristín er með BA-próf í íslensku frá Háskóla Íslands en hún hefur starfað á fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar frá árinu 2017. Þar hefur hún m.a. sinnt fréttaskrifum á Vísi, flutt fréttir í sjónvarpi og útvarpi, haft umsjón með fréttatímum, stýrt umræðuþáttum...
InnlentFlestir telja að Heiða Björg verði næsti borgarstjóri Nú eru oddvitar Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokksins, Flokks fólksins og Vinstri grænna í borgarstjórn Reykjavíkur að reyna koma sér saman um nýjan meirihluta eftir að Framsóknarflokkurinn sprengdi fráfarandi meirihluta. Líklegt verður að teljast að einhver af oddvitum flokkanna sem eru í viðræðum núna verði borgarstjóri. Mannlíf spurði því lesendur sína: Hver verður næsti borgarstjóri Reykjavíkur? Niðurstaðan var nokkuð jöfn hjá efstu...
InnlentKSÍ með hugann við veðmálafíkn: „Samfélagslegt vandamál“ Meira og meira verða Íslendingar varir við veðmálastarfsemi á Íslandi en fyrirtæki í bransanum hafa á undanförnum árum sett aukið fé í að kynna starfsemi sína, sem er í mörgum tilfellum ólögleg á Íslandi. Ísland er þó ekki eina landið sem stendur í þessum sporum en opnað hefur verið fyrir aukna veðmálastarfsemi í mörgum löndum á sama tíma. Ekki eru...
InnlentÞyrlusveit Landhelgisgæslunnar sótti veikan sjómann undan Hornströndum Veikinda varð vart um borð í íslensku skipi sem statt var um 60 sjómílur norður af Hornströndum í fyrradag en þyrslusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð á vettvang. Á níunda tímanum á þriðjudagsmorgun tók áhöfnin á TF-GRO á loft frá Reykjavíkurflugvelli en samkvæmt heimasíðu Gæslunnar er önnur þyrluáhöfn sett í viðbragðsstöðu í Reykjavík þegar farið er í útköll á borð við þessa,...
InnlentKraftur gegn Kryddpíum Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, í borgarstjórn segir væntanlegan meirihluta Kryddpíanna í Reykjavík ekki endurspegla samfélagið eða niðurstöðu síðustu kosninga. Nýr meirihluti Samfylkingar, Sósíalista, Vinstri grænna, Flokks fólksins og Pírata er í burðarlið. Meirihlutinn nefnist Kryddpíurnar. Nafnið er til komið vegna þess að á fundi kvennanna fimm sem leiða nýju valdaflokkana bauð Heiða Björg Hilmisdóttir, leiðtogi Samfylkingar, upp á kryddbrauð á...
InnlentÞrír slagsmálahundar börðu á einum í verslunarmiðstöð – Þjófur lét greipar sópa í anddyri hótels Sjö einstaklingar gistu í fangaklefa lögreglunnar í nótt. Tveir menn voru handtekni,r grunaðir um húsbrot. Báðir voru læstir inni í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins. Um svipað leyti var tilkynnt um innbrot í heimahús. Málið er í rannsókn. Enn einn einstaklingur handtekinn grunaður um húsbrot. Sá var vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins. Búðarþjófur var staðinn að verki. Sá...
InnlentFlokkarnir fimm formlega komnir í viðræður um samstarf: „Ætlum að vanda vel til verka“ Samfylkingin, Píratar, Sósíalistaflokkurinn, Flokkur fólksins og Vinstri græn í borgarstjórn Reykjavíkur hafa ákveðið að hefja formlegar viðræður um samstarf á nýjum grunni en þetta kemur fram í tilkynningu frá flokkunum. Eins og flestir þekkja sleit Einar Þorsteinsson borgarstjóri meirihlutasamstarfi Framsóknar, Samfylkingar, Viðreisnar og Pírata í síðustu viku og ætlaði hann að reyna mynda nýjan meirihluta þar sem Framsóknarflokkurinn, Viðreisn, Sjálfstæðisflokkurinn...
InnlentHandboltaferill Kára í hættu eftir hjartaþræðingu: „Við sjáum bara hvað setur“ Handboltakappinn Kári Kristján Kristjánsson dvaldi vikulangt á sjúkrahúsi í Reykjavík en er nú kominn aftur heim til Vestmannaeyjum. Gekkst hann undir hjartaþræðingu en grunur er um að streptókokkasýking sé orsakavaldurinn. Kár Kristján, sem leikur sem línumaður hjá ÍBV í Olísdeild karla í handbolta, var lagður inn á sjúkrahús í Reykjavík fyrir viku vegna hjartabólgna. „Ég veiktist helgina sem úrslitaleikurinn á...