Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

KSÍ með hugann við veðmálafíkn: „Samfélagslegt vandamál“

KSÍ með hugann við veðmálafíkn: „Samfélagslegt vandamál“

Meira og meira verða Íslend­ingar varir við veð­mála­starf­semi á Íslandi en fyr­ir­tæki í brans­anum hafa á und­an­förnum árum sett aukið fé í að kynna starf­semi sína, sem er í mörgum til­fellum ólög­leg á Íslandi.

Ísland er þó ekki eina landið sem stendur í þessum sporum en opnað hefur verið fyrir aukna veð­mála­starf­semi í mörgum löndum á sama tíma. Ekki eru allir sáttir við þessa þróun og hafa rann­sóknir sýnt fram á aukna veð­málafíkn og þá sér­stak­lega meðal ungra karl­manna. Mannlíf hafði sam­band við KSÍ til að spyrj­ast fyrir um hvernig sam­bandið liti á veð­mála­starf­semi og fylgi­fiska þess en langstærstur hluti veð­mála í Evrópu teng­ist knatt­spyrnu með einum eða öðrum hætti.

„Veð­málafíkn er fyrst og fremst sam­fé­lags­legt vanda­mál, sem a.m.k. íþrótta­hreyf­ingin er með­vituð um, og miðað við þær upp­lýs­ingar sem liggja fyrir þá eru ungir karl­menn stór hluti þess hóps sem stundar veð­mál,“ sagði Eysteinn Pétur Lárusson, fram­kvæmda­stjóri KSÍ, við Mannlíf um málið.

Vitundarvakning

Þorkell Máni Pét­urs­son, stjórn­ar­maður KSÍ, tal­aði fyrir því áður en hann var kos­inn í stjórn sam­bands­ins á síð­asta árs­þingi að hjálpa þyrfti leik­mönnum og þjálf­urum sem eiga við veð­mála­vanda­mál að stríða.

Hvernig er staðan á því í dag?

„KSÍ vinnur t.a.m. að verk­efni í sam­starfi við HSÍ og KKÍ þar sem hvert félag myndi til­nefna sinn heil­inda­full­trúa. Sá aðili myndi þá halda utan um almenna fræðslu til félags­manna um veð­mál og veð­málafíkn (fræðslu­efni kæmi frá ýmsum aðilum, t.d. sér­sam­bönd­unum eða regn­hlíf­ar­sam­böndum þeirra) og vera tengiliður fyrir þá ein­stak­linga sem vilja vita meira eða vilja vita hvert þeir geti leitað telji þeir sig þurfa á hjálp að halda. Einnig er á teikni­borð­inu sam­fé­lags­legt verk­efni (for­varna­verk­efni) sem snýr að vit­und­ar­vakn­ingu um veð­málafíkn, sem gæti komið til fram­kvæmda á þessu ári eða því næsta.“

Nokkur til­felli hafa komið upp þar sem leik­menn á Íslandi hafa verið dæmdir í bann fyrir að veðja á leiki. Þekktasta nafnið er án efa Steinþór Freyr Þor­steins­son sem var dæmdur í bann árið 2023 en hann spil­aði á sínum tíma átta lands­leiki fyrir Ísland og var atvinnu­maður í nokkur ár. Sama ár var Sigurður Gísli Snorra­son einnig dæmdur í bann fyrir að veðja á leiki. Steinþór og Sigurður veðj­uðu báðir á leiki hjá þeim liðum sem þeir voru að spila fyrir.

„KSÍ er með sína ferla varð­andi mál sem kunna að koma upp og þau mál fara bara sína eðli­legu leið innan okkar kerfis. Mót og leikir á vegum KSÍ eru með virka vöktun og KSÍ fær fyr­ir­spurnir og/eða ábend­ingar og eftir atvikum skýrslur frá vökt­un­ar­að­ilum þegar við á. Það hafa komið upp til­vik hér á landi þar sem reglur hafa verið brotnar og þá eru ferlar virkj­aðir, eins og vera ber.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag